Bæjarráð Grindavíkur - 1389. fundur
- 01.09.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1389
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Móttaka flóttamanna: Grindavíkurbær bjóði fram aðstoð
Fulltrúi S-lista leggur til að bæjarstjóra verði falið að útbúa minnisblað um fyrirkomulag og hlutverk sveitarfélaga við móttöku flóttamanna, kostnað og þátttöku ríkissjóðs, og stöðu húsnæðismála í Grindavík fyrir bæjarstjórn til að geta tekið ákvörðun um hvort ganga eigi til viðræðna við velferðarráðuneytið um mögulega móttöku flóttamanna til Grindavíkur. Minnisblaðið verði lagt fyrir bæjarstjórnarfund þann 29. september næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.2. Starfsmat: Kerfisbundin endurskoðun starfsmatskerfisins SAMSTARF
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti áhrif endurskoðunar starfsmatskerfisins Samstarfs á launakjör starfsmanna og fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 sem lagður verði fyrir næsta fund bæjarstjórnar.3. Fjárhagsáætlun 2015: beiðni um að nýta söluhagnað af slökkvibíl
Slökkvistjóri óskar eftir heimild til að nýta söluhagnað af eldri slökkvibíl til viðhalds og endurgerðar tankbíls.
Samþykkt samhljóða.4. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka við fjárhagsáæltun 2015
Skólastjóri Leikskólans Lautar leggur fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015, með vísan til ákvörðunar bæjarráðs á fundi sínum 2. júní síðastliðinn um að fjölga leikskólarýmum í Grindavík með því að bæta einni deild við Leikskólann Laut frá og með næsta hausti.
Farið er fram á viðauka að fjárhæð 7.300 þús kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé.5. Umsókn: Námsvist í grunnskóla utan sveitarfélags
Óskað er endurskoðunar ákvörðunar um synjun um námsvist í grunnskóla utan lögheimilissveitarfélags. Félags- og fræðsluþjónustan hafnaði umsókninni með vísan til Reglna Grindavíkurbæjar um námsvist nemenda í grunnskóla utan lögheimilissveitarfélags.
Bæjarráð samþykkir að veita umsækjanda heimild til námsvistar utan lögheimilissveitarfélags til 1. janúar 2016 og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 600.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.6. Reykjanes jarðvangur: Aðalfundur 18.09 2015
Boðað er til aðalfundar Reykjanes jarðvangs ses. þann 18. september 2015 kl. 10.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum. Grindavíkurbæjar tilnefnir Róbert Ragnarsson sem aðalmann og Jón Þórisson til vara.