Bæjarráð Grindavíkur - 1320. fundur
- 04.06.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1320
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. 236.fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
2. 84.fundur þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum.
Fundargerðin er lögð fram.
3. 85.fundur þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum.
Fundargerðin er lögð fram.
4. Aðalfundur Reykjanes jarðvangs ses.
Fundargerð lögð fram.
Fundargerðin er lögð fram.
5. Ástand gömlu bryggjanna í Þórkötlustaðanes og Staðarhverfi
Málið tekið fyrir að nýju. Mannvirkin eru að öllum líkindum í eigu Grindavíkurhafnar/Grindavíkurbæjar. Landið er hinsvegar í eigu viðkomandi landeiganda. Það er engin lóð afmörkuð fyrir mannvirkin.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar.
6. Bygging reiðhallar í Grindavík
Bréf frá stjórn Brimfaxa dags. 15. maí lagt fram.
Félagið fer fram á að byggingareitur reiðhallarinnar verði stækkaður um 15 metra til vesturs, en reiðvöllur verði stækkaður um 15 metra til austurs.
Bæjarráð vísar beiðni um stækkun byggingareits til skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar, en felur bæjarstjóra að ræða stækkun reiðvallar við landeigendafélag óskipts lands Þórkötlustaða.7. Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir niðurfellingu fasteignagjalda
Hestmannafélagið Brimfaxi óskar eftir styrk á móti fasteignagjöldum af reiðhöll og reiðvelli félagsins við Hópsheiði.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að gera drög að samstarfssamningi við félagið á sambærilegum forsendum og tíðkast við önnur félagasamtök í Grindavík.8. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2014-2017. Íbúasamráð.
tillaga um að kanna kosti og galla þess að gera rafræna könnun næsta haust fyrir fjárhagsáætlun. Forgangsröðun verkefna eða kalla fram tillögur, sbr. Rvík og Mos.
Bæjarráð felur upplýsinga- og þróunarfulltrúa að kanna möguleika á að framkvæma rafræna könnun meðal íbúa Grindavíkurbæjar fyrir næstu fjárhagsáætlun, eða aðra möguleika á auknu samráði við íbúa við gerð fjárhagsáætlunar.
9. Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs ses
Fundargerðir stjórnar nr. 3-6 lagðar fram.
Fundargerðir stjórnar nr. 3-6 lagðar fram.
10. Gjaldskrár Grindavíkurbæjar
Ræða gjaldastefnu Grindavíkurbæjar með það fyrir augum að hún liggi fyrir í fjárhagsáætlunarvinnu haustsins. Fela RR og JÞ að hefja greiningarvinnu, svo sem skoða gjaldskrár bæjarins í samanburði við sambærileg sveitarfélög og landsmeðaltal. Leggja fram tillögu fyrir ágústlok. Getið séð núverandi gjaldskrá á grindavik.is
Umræða hafin um gjaldskrár Grindavíkurbæjar fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2014-2017.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að greina gjaldskrár Grindavíkurbæjar í samanburði við gjaldskrár sambærilegra sveitarfélaga. Jafnframt að kanna hvað gjöld eru hátt hlutfall af kostnaði við viðkomandi þjónustu og leggja fyrir bæjarráð í ágústlok.11. Innkaupareglur Grindavíkurbæjar. Endurskoðun
Reglurnar teknar aftur fyrir að fenginni umsögn sviðsstjóra og forstöðumanna.
Reglurnar teknar aftur fyrir að fenginni umsögn sviðsstjóra og forstöðumanna. Ein breytingatillaga lögð fram við 19. gr., en lagt er til að ákvæðinu sé breytt til samræmis við drög að siðareglum bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglurnar verði staðfestar.12. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Verksamningur lagður fram. $line$
Drög að verksamningi við Grindina lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggja aftur fyrir til staðfestingar.13. Samningur um ábúðarrétt af jörðinni Hóp og nýting á svokölluðu Rollutúni og Kristinsbletti
Birgir Ingi Guðmundsson fer fram á framlengingu erfðafestu á Hópi I og Hópi II til 25 ára með þriggja ára uppsagnarfresti.
Bæjarstjóri upplýsir að hann hafi átt fundi með Birgi Inga og skrifað honum bréf vor og sumar 2012 vegna málsins, en hjá Grindavíkurbæ er ekki að finna nein gögn um erfðafesturétt hans í landi Hóps. Kallað hefur verið eftir slíkum gögnum frá Birgi Inga án þess að nokkur hafi borist.
Bæjarráð hafnar beiðninni, en felur bæjarstjóra að útbúa tillögu að endurnýjun lóðarleigusamnings dags. 13. desember 1996 um lóð úr landi Hóps. Sá samningur rennur út 1. júlí 2013.14. Samstarfssamningur milli Hópsness ehf. og Grindavíkurbæjar varðandi jarðvegsúrgang
Tillaga sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs um samstarfssamning milli Hópsness ehf. og Grindavíkurbæjar um söfnun og meðhöndlun jarðvegsúrgangs lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn til 1. janúar 2016 með þriggja mánaða uppsagnarfresti og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.15. Stefna á hendur Grindavíkurbæ til greiðslu bóta vegna brottvikningar úr starfi
Stefna Gísla Þorlákssonar á hendur Grindavíkurbæ til greiðslu skaðabóta vegna brottvikningar úr starfi lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka til varna í málinu.16. Sustainable Feed-viljayfirlýsing
tillaga að framlengingu lögð fram
Tillaga að árs framlengingu viljayfirlýsingar milli Grindavíkurbæjar og Sustainable feed um uppbyggingu eldisstöðvar fyrir svifdýr í Grindavík lögð fram.
Bæjarráð samþykkir framlenginguna og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.17. Tryggingar Grindavíkurbæjar
Bæjarráð þarf að meta hvort eigi að viðhafa nýtt útboð á tryggingum, eða framlengja samning við Sjóvá
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að hefja undirbúning að útboði trygginga Grindavíkurbæjar.
18. Umsókn um lóðina Melhólabraut 2
Beiðni um gerð viljayfirlýsingar um lóð við Melhólabraut lögð fram.
Tillaga að viljayfirlýsingu milli Alice-Algae Iceland ltd (Alice) og Grindavíkurbæjar um lóð við Melhólabraut 2 undir smáþörungaframleiðslu lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.19. Viðræður við velferðarráðuneytið um yfirtöku Grindavíkurbæjar á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu viðræðna Grindavíkurbæjar og velferðarráðuneytisins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu viðræðna Grindavíkurbæjar og velferðarráðuneytisins um yfirtöku Grindavíkurbæjar á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar.
Samkvæmt viðræðuáætlun er ráðgert að ljúka viðræðum í septemberlok, en hlé hefur verið á viðræðum undanfarnar vikur vegna stjórnarskipta.20. Vistvænni innkaup stofnana Grindavíkurbæjar
Fundargerð lögð fram og kynning.
Fundargerð frá fundi forstöðumanna stofnanna Grindavíkurbæjar um vistvæn innkaup, dags. 6. febrúar 2013, lögð fram.
Bæjarráð vísar í bókun sína frá 1303. fundi um að hafin verði vinna við að auka endurvinnslu og umhverfisvitund í stofnunum Grindavíkurbæjar og óskar eftir tillögum forstöðumanna að aðgerðum.21. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, ráðning
Markmiðið er að fyrstu viðtölum verði lokið 4. júní, þannig að ég á von á tillögum fyrir fundinn frá Talent um umsækjendur í síðari viðtöl. Bæti við gögnum um leið og berast.
Umsóknarfrestur um starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs rann út 27. maí síðastliðinn. Umsækjendur um starfið voru 21.
Arnþór Tryggvason
Atli Geir Júlíusson
Ármann Halldórsson
Árni Þorvaldur Jónsson
Bjarki Þórir Valberg
Davíð Arnar Stefánsson
Drífa Gústafsdóttir
Einar Friðrik Brynjarsson
Elísa Sóley Magnúsdóttir
Gísli Hermannsson
Halldór Karl Hermannsson
Hallur Kristmundsson
Helgi Már Magnússon
Hildur Björk Einarsdóttir
Hilmar Freyr Gunnarsson
Jónas Pétur Hreinsson
Karl Ómar Jónsson
Marta María Jónsdóttir
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
Vilhjálmur Ragnar Kristjánsson
Vífill Björnsson
Ráðgjafi hjá Talent ráðningum hefur lokið við yfirferð umsókna og tekið fyrstu viðtöl. Lagt er til að fimm umsækjendur komi til viðtals hjá bæjarráði.22. Alexander Ólafsson ehf. óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku við Vatnskarðsnámu
Framkvæmdaleyfisgögn dags. maí 2013 vegna óskar Alexanders Ólafssonar ehf. um framkvæmdarleyfi lögð fram til samþykktar.
Framkvæmdaleyfisgögn dags. maí 2013 vegna óskar Alexanders Ólafssonar ehf. um framkvæmdarleyfi lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir framkvæmdaleyfið.23. Opnunartími íþróttamannvirkja veturinn 2013-2014
Tillaga um að kannaður verði kostnaður við að auka opnunartíma íþróttamannvirkja næsta vetur, þannig að opið sé á sunnudögum og til kl. 22 virka daga. $line$Jafnframt verði kannað hversu margir tímar bætast við og hvernig þeir nýtast.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að kanna kostnað við að auka opnunartíma íþróttahúss næsta vetur, þannig að opið sé á sunnudögum og til kl. 22 virka daga. Samhliða verði kannaður kostnaður við að auka opnunartíma sundmiðstöðvar um kvöld og helgar. Upplýsingarnar liggi fyrir í byrjun ágúst.
24. Beiðni um launalaust leyfi frá störfum á Túngötu 15-17
Sigríður Þorgilsdóttir starfsmaður á Túngötu 15-17 óskar eftir 20 vikna launalausu leyfi frá störfum, frá 9. september næstkomandi, til að ljúka starfsþjálfun í sjúkraliðanámi.
Umsögn næsta yfirmanns liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir beiðnina á grundvelli Viðmiðunarreglna um veitingu launalausra leyfa starfsmanna Grindavíkurbæjar dags. 18.12.12.25. Samningur við UMFG um eflingu íþróttastarfs barna og ungmenna.
Drög að samningi lögð fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd fjallar um hann miðvikudaginn 5. júní.
Drög að samningi lögð fram til kynningar.
26. Samningur við aðalstjórn UMFG 2013
Drög að samningi lögð fram til kynningar. Frístunda- og menningarnefnd fjallar um hann miðvikudaginn 5. júní.
Drög að samningi lögð fram til kynningar.