Bæjarráð Grindavíkur - 1397. fundur
- 01.12.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1397
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Rekstraryfirlit janúar - sept. 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs fór yfir rekstraryfirlit fyrir janúar til september 2015.
2. Tölvubúnaðarkaup 2015: Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015
Tölvukaupum ársins dreift á deildir.
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs leggur fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna tölvubúnaðarkaupa.
Farið er fram á viðauka að fjárhæði 19.837.984 kr. sem fjármagnaður verði með fjármagni af lið tölvudeildar nr. 21421.
Gjaldfærðar verða 7.297.000 kr á einstakar deildir í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað.
Eignfærðar verða 12.541.000 kr hjá Eignasjóði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.3. Grunnskóli Grindavíkur: tillaga að breyttri stjórnun
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við skólastjóra og forstöðukonu skólaþjónustuteymis og verður vinnu haldið áfram.
4. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja
Bíðum eftir umsögn Frímenn
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir framlengingu á samningi um verktöku við umsjón mannvirkja.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar frístunda- og menningarnefndar.5. Starfsmannamál: Reglur um árshátíð o.fl.
Framhald frá fundi 1395.
Bæjarstjóri leggur fram breytingatillögu við reglurnar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.6. Sala á Óla á Stað: boð um neyta forkaupsréttar skv. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða
Stakkavík ehf. býður Grindavíkurbæ að neyta forkaupsréttar á skipinu Óla á Stað skv. 12. gr. laga um stjórn fiskveiða.
Lagt fram.