Bæjarráð Grindavíkur - 1387. fundur
- 04.08.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1387
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar
Kostnaðaráætlun lögð fram eftir breytingu.
Uppfærð kostnaðaráætlun lögð fram.
2. Beiðni um umsögn: umsókn Kristínar Gísladóttur um leyfi til reksturs gististaðar í flokki I (heimagistin)
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
3. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Vinnuáætlun lögð fram
Bæjarstjóri kynnti fyrstu drög að vinnuáætlun fyrir fjárhagsáætlunargerð fyrir 2016-2019.
4. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga: Framlag vegna lækkaðra fasteignaskattstekna
Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 10. júlí lagt fram, varðandi framlög vegna lækkaðra fasteignaskattstekna. Framlög til Grindavíkurbæjar á árinu 2015 verða um 61,9 milljónir sem er um 13 milljónum króna lægra en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2015.
5. Þjóðarsáttmáli um læsi
Menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands og Heimili og skóli, landssamtök foreldra hvetja sveitarfélög til að undirrita Þjóðarsáttmála um læsi.
Bæjarráð tekur undir hvatninguna og felur bæjarstjóra að undirrita sáttmálann fyrir hönd Grindavíkurbæjar. Ráðgert er að undirritun fari fram í Iðunni, þann 15. september næstkomandi.6. ÖBÍ: Aðgengileg ferðasalerni fyrir fatlað fólk
Öryrkjabandalag Íslands skorar á sveitarfélög og aðra sem standa að útihátíðum og viðburðum að tryggja hreyfihömluðum aðgengi að ferðasalernum.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna. Salerni fyrir hreyfihamlaða á Sjóaranum síkáta eru staðsett miðsvæðis á hátíðasvæðinu, í Kvikunni. Bæjarráð felur frístunda- og menningarsviði að kynna betur aðgengi að salernum fyrir hreyfihamlaða í dagskrá Sjóarans síkáta á næsta ári.