Bæjarráð Grindavíkur - 1329. fundur
- 01.10.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1329
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Samningur við Grindina ehf um verkframkvæmdir lagður fram. Jafnframt lögð fram tilboð í verkeftirlit.
Samningur við Grindina ehf. um verkframkvæmdir lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Tilboð í verkeftirlit með framkvæmdunum lögð fram eftir verðkönnun.
1. Verksýn ehf. kr. 9.373.344
2. Tækniþjónusta Sigurðar Ásgrímssonar ehf. kr. 9.674.293
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við Verksýn ehf. og leggja undirritaðan samning fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Fyrsta skóflustunga fer fram 2. október kl. 10 og munu nemendur í Hópsskóla taka hana.2. Gatnagerð í Hesthúsahverfi
Tilboð í gatnagerð í hesthúsahverfi lögð fram eftir verðkönnun. Kostnaðaráætlun vegna gatnagerðar var 9.863.800 kr. og vegna veitna 1.500.000 kr.
Eftirfarandi tilboð bárust í heildarverkið: eftir yfirferð % af áætlun
1. G.G. Sigurðsson ehf. 12.827.900.- 113
2. Litlafell ehf. 14.447.400.- 127
3. Grindverk ehf. 17.147.500.- 151
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda og leggja undirritaðan samning fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.3. Hestamannafélagið Brimfaxi óskar eftir niðurfellingu fasteignagjalda
Samningsdrög við Hestamannafélagið Brimfaxa vegna niðurfellingar á fasteignagjöldum.
Framhald frá fundi 1320.
Tillaga sviðsstjóra frístunda-og menningarsviðs að samningi um styrk á móti fasteignagjöldum lögð fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.4. Lóð undir gróðurhús
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu viðræðna við ESBRO sem hefur áhuga á að reisa 15ha gróðurhús til tómataframleiðslu
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu viðræðna við hollenskan aðila sem hefur áhuga á að reisa 15 ha gróðurhús til tómataframleiðslu á reit i5 skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030.
Vinna við deiliskipulagstillögugerð er að hefjast og er fyrirhugað að halda kynningarfund fyrir íbúa þann 16. október næstkomandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna tillögu að viljayfirlýsingu við félagið um framgang verkefnisins og leggja fyrir bæjarráð.5. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Bréf frá innanríkisráðuneytinu dags. 18. september lagt fram, þar sem ráðuneytið hvetur kjörna fulltrúa, embættismenn og aðra starfsmenn sveitarfélaga til að sækja fræðsluþing um ofbeldi gegn börnum. Þingin eru haldin í öllum landshlutum, en kveðið er á um í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að stjórnvöld skuli stuðla að fræðslu um ákvæði sáttmálans fyrir fólk sem starfar með börnum.
Málþing tengt þessu verður haldið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja fimmtudaginn 3. október og hefst kl. 12:30.
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar og félagsmálanefndar til upplýsingar.6. Beiðni um heimild til að leigja Kirkjukot út fyrir dagforeldraþjónustu
Tveir áhugasamir dagforeldrar óska eftir því að leigja Kirkjukot til reksturs dagforeldraþjónustu frá 1. mars næstkomandi. RR óskar eftir heimild til samningsgerðar.
Bæjarstjóri óskar eftir heimild til að leigja Kirkjukot til reksturs dagforeldraþjónustu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og hafa samráð við núverandi notendur Kirkjukots um annað húsnæði fyrir þeirra starfsemi.7. Beiðni um umsögn frá Allsherjar- og menntamálanefnd um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.
Allsherjar- og menntamálanefnd óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar styður það að innanríkisráðherra skipi nefnd með þátttöku sveitarfélaganna sem geri tillögu að áætlun um hvernig sveitarfélögin standi að því að bjóða leikskólaúrræði strax og fæðingarorlofi lýkur.
Bæjarráð telur hinsvegar ljóst að sveitarfélögin muni ekki hafa bolmagn til að bjóða upp á slíka þjónustu að óbreyttum tekjustofnum sveitarfélaga.8. Beiðni um umsögn frá Atvinnuveganefnd Alþingis um tillögu til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál.
Atvinnuveganefnd Alþingis óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál.
Grindavíkurbær er aðili að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga og Samtökum orkusveitarfélaga og fagnar því að stefnt sé að samráði við samtökin um málið. Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög njóti ágóða af nýtingu auðlinda innan þeirra.9. Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2013.
Boð fjárlaganefndar Alþingis til sveitarfélaga um fundi með nefndinni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi fyrir hönd Grindavíkurbæjar.10. Fyrirspurn um stæði fyrir hús
umsögn HES lögð fram
Framhald frá fundi 1327 þar sem bæjarstjóra var falið að leita umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja áður en ákvörðun verður tekin um framhald málsins.
Umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja lögð fram, en Heilbrigðiseftirlitið telur opnun á gististað í minna en 500 metra fjarlægð frá kjúklingabúi sé brot á 24. gr. reglugerðar um hollustuhætti og heilbrigðisnefnd muni ekki veita slíkri starfsemi starfsleyfi.
Með vísan til umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hafnar bæjarráð að hefja vinnu breytingu á deiliskipulagi við Hópsheiði.11. Greiðsla framlag til eflingar tónlistarfræðslu og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.
Lagt fram bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dagsett 24. september sl., þar sem farið er yfir vinnu við gerð samkomulags um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til námsins.
Bæjarráð harmar þær seinkanir sem hafa orðið á því að endurnýja samkomulagið. Seinkanir sem koma sér afar illa fyrir nemendur. Bæjarráð vísar erindinu til fræðslunefndar til upplýsingar.12. Ósk um viðbótarstöðugildi í tónlistarskólann
Tónlistarskólinn í Grindavík óskar eftir því að fá að auka við starfsemi sína á árinu 2014 með einu viðbótarstöðugildi.
Afgreiðslu er frestað.13. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, ráðning
Tilboð í ráðningarferlið og tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2013
Tilboð í ráðgjöf og aðstoð vegna ráðningar í starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lögð fram að lokinni verðkönnun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda Intellecta.14. Skipulagsbreytingar vegna búsetuþjónustu fullorðinna
Tilnefning í starfshóp.$line$Tillaga RR$line$Róbert, Nökkvi, Ásrún, Stefanía(Sirrý), Sigurbjörg Erlingsdóttir (fulltrúi starfsmanna). Fleiri/færri/aðrir?
Bæjarstjóri leggur fram tillögu að tilnefningum í starfshóp sem skal leggja fram tillögu að skipulagsbreytingum í búsetuþjónustu fullorðinna.
Bæjarráð samþykkir að skipa starfshóp sem skal skila tillögum til bæjarráðs fyrir 12. nóvember næstkomandi. Starfshópurinn hefur heimild til að leita ráðgjafar sérfræðings og færa kostnað vegna þess á óviss útgjöld.
Grindavíkurbær hefur um skeið unnið að hugmyndum um breytingar í búsetuþjónustu. Verkefni starfshópsins er að leggja fram tillögur um breytingar á þjónustu fyrir fullorðna sem þarfnast aðstoðar, hvort sem þær eru vegna öldrunar, fötlunar eða örorku. Markmiðið tillagnanna verði að bæta þjónustu fyrir þessa hópa í Grindavík, auka lífsgæði þeirra og gera þeim kleift að búa lengur heima. Fyrirmyndar er meðal annars hægt að leita hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.
Tillaga að starfshópi:
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs
Ásrún Kristinsdóttir formaður félagsmálanefndar
Stefanía Sigríður Jónsdóttir forstöðukona Miðgarðs
Sigurbjörg Erlingsdóttir fulltrúi starfsmanna
Tveir fulltrúar notenda
Bæjarráð samþykkir tillöguna.