Bæjarráð Grindavíkur - 1611. fundur
- 24.05.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 16:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1611
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Viljayfirlýsing um ljósleiðaravæðingu Ljósleiðarans í Grindavík
Viljayfirlýsing við Ljósleiðarann tekin til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Viljayfirlýsing við Ljósleiðarann lögð fram.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með málið og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs að vinna málið áfram.2. Leigusamningur um aðstöðu Ljósleiðarans hjá Grindavík
Leigusamningur um aðstöðu Ljósleiðarans í íþróttamiðstöð Grindavíkurbæjar við Austurveg 1 til umræðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrirmynd leigusamnings um aðstöðu Ljósleiðarans í fasteign sveitarféæagsons lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs að vinna málið áfram.3. Umsókn um leyfi fyrir rekstri á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur
Samstarfssamningur milli Grindavíkurbæjar og Hopp lagður fram til samþykktar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samstarfssamningur milli Grindavíkurbæjar og Hopp lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.4. Viðgerð á stíg frá Grindavík vestur að golfvelli 2022
Kostnaðaráætlun vegna viðgerðar á göngu- og hjólastíg lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kostnaðaráætlun vegna viðgerðar á göngu- og hjólastíg lögð fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leita tilboða í verkið.5. Hjólreiðakeppni á Suðurstrandarvegi
Borist hefur ósk um leyfi fyrir hjólreiðakeppni og að fá að loka Krísuvíkurleiðinni og Suðurstrandarvegi tímabundið.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Beiðni um leyfi fyrir hjólreiðakeppni og að fá að loka Krísuvíkurleiðinni og Suðurstrandarvegi tímabundið er lögð fram.
Bæjarráð gerir athugasemd við það að óskað er eftir lokun á vegum vegna mótahaldins.6. Beiðni um viðauka - Loftræstikerfi leikskólans Laut
Borist hefur eftirlitsskýrsla um Leikskólann Laut frá Vinnueftirlitinu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Eftirlitsskýrsla um Leikskólann Laut frá Vinnueftirlitinu, dags. 09.05.22, er lögð fram.
Bæjarráð felur leikskólastjóra og umsjónarmanni fasteigna Grindavíkurbæjar að bregðast við athugasemdum í skýrslunni.7. Umsókn um launalaust leyfi
Launalaust leyfi skal aðeins veitt þegar til þess liggja ríkar ástæður, sem starfsmanni ber að tilgreina. Framlenging á barnsburðarleyfi, alvarleg veikindi í fjölskyldu, sérstakar heimilisaðstæður, framhaldsnám eða annað sem metið er sambærilegt réttlætir launalaust leyfi. Ef starfsmaður hyggst ráða sig til annarrar vinnu verður launalaust leyfi ekki veitt.
Umsókn Halldóru Guðbjargar Sigtryggsdóttur um launalaust leyfi til tveggja ára er lögð fram.
Bæjarráð samþykkir launalaust leyfi til tveggja ára þar sem fyrirhugað nám er til tveggja ára.8. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Landsþing sambandsins fer fram á Akureyri 28.-30. september nk. Tilnefna þarf landsþingsfulltrúa.
Landsþing sambandsins fer fram á Akureyri 28.-30. september nk.
9. Tækifærisleyfi - Íþróttahúsið í Grindavík
Sótt er um leyfi til að halda sjómannadagsball í íþróttahúsinu þann 11. júní nk.
Sótt er um tækifærisleyfi vegna sjómannadagsballs í íþróttahúsinu þann 11. júní nk.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.