Bæjarráð Grindavíkur - 1548. fundur
- 19.05.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1548
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Helga Dís Jakobsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka á dagskrá mál með afbrigðum sem 4. mál á dagskrá:
Yfirlit yfir eignfærða fjárfestingu janúar-mars 2020 - mál 2005056.
Samþykkt samhljóða.
1. Styrkbeiðni vegna markaðsátaks
Fulltrúar frá Grindavík Experience koma til fundarins og fara yfir fyrirhugað markaðsátak í samvinnu við Grindavíkurbæ
Fulltrúar frá Grindavík Experience sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að verkefnið sé í umsjón Grindavíkurbæjar og tilnefnir upplýsinga- og markaðsfulltrúa sem tengilið vegna verkefnisins.2. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
NMJ hefur fundað með leikskólafulltrúa og skólastjórnendum leikskóla. Dagsins ljós líta uppfærðar tillögur þar sem nokkuð hefur verið dregið úr frá því sem var.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagðar fram tillögur fræðslunefndar vegna starfsumhverfis í leikskóla í 9 liðum.
Bæjarráð samþykkir liði I, hækkun lægstu launa í leikskóla, og II, breytingar á útreikningi barngilda, og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2021.
Bæjarráð samþykkir lið VII, sem snýr að TV einingum, og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að reikna kostnað vegna þeirra með það í huga að þetta taki gildi við upphaf næsta skólaárs.
Bæjarráð samþykkir jafnframt valkvæða lokun á milli jóla og nýárs skv.
Bókun S-lista
Fulltrúi S-lista harmar að meirhluti bæjarráðs skuli ekki fara að fullu eftir þeirri vinnu og niðurstöðum hennar sem fram hefur farið á vettvangi fræðslunefndar með þátttöku skólaskrifstofu, starfsfólks leikskólanna, leikskólakennara og skólastjórnenda í bænum hvað varðar bætt starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara. Það er öllum ljóst að mikil mönnunarvandi steðjar að yngsta skólastiginu og ef ekki verður brugðist við þessum vanda eins og hann blasir við gætum við í átt í miklum erfiðleikum með að manna þessar mikilvægu stofnanir okkar á komandi misserum. Það eru allir sammála um að við viljum búa í bæ sem er framúrskarandi fyrir börn og barnafjölskyldur þar sem foreldrar geta verið öruggir um að börnum þeirra sé séð fyrir faglegu uppeldi og menntun um leið og fæðingarorlofi lýkur. Mjög stór þáttur í því að það takist er að starfsaðstæður þeirra sem vinna í leikskólum séu eins og best verður á kosið sem aftur gerir það að verkum að fagmenntað fólk jafnt sem ólærðir sækjast eftir að vinna í skólunum. Allir þeir fjármunir sem fara í velferð og umönnun barna er ekki eingöngu kostnaður heldur fjárfesting.
Bókun M- og U-lista
Bæjarfulltrúar M og U lista vilja samþykkja lið 8 í tillögum vegna bætts starfsumhverfis við leikskólann en hann felst í því að auka undirbúningstíma í þágu faglegs starf í leikskólum bæjarins.3. Rekstraryfirlit janúar - mars 2020
Rekstraryfirlit janúar - mars 2020 er lagt fram.
Rekstraryfirlit janúar - mars 2020 er lagt fram.
4. Yfirlit yfir eignfærða fjárfestingu janúar-mars 2020
Yfirlit yfir eignfærða fjárfestingu janúar - mars 2020 er lagt fram.