Bæjarráð Grindavíkur - 1502. fundur
- 11.12.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:25
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1502
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Götulýsing - ósk um viðauka
Greinargerð unnin af Sigurði R Karlssyni yfirmanni þjónustumiðstöðvar vegna gatnalýsingar bæjarins.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar óskar eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 2.732.000 kr. til að fara í nauðsynlegt viðhald á ljósastaurum vegna óvenjumikilla bilana undanfarið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka vegna ársins 2018 að fjárhæð 2.732.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.2. Þjónustumiðstöð - þakklæðning
Greinargerð unnin af Sigurði R Karlssyni yfirmanni þjónustumiðstöðvar varðandi endurbætur á þaki þjónustumiðstöðvar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar óskar eftir að flytja fjárheimildir af árinu 2018 yfir á árið 2019 að fjárhæð 4.000.000 kr. til viðhalds á þaki Hafnargötu 34. Á árinu 2018 hafa ekki fengist verktakar til þessara hluta. Auk þess er óskað eftir til viðbótar 6.000.000 kr. til framkvæmdanna á árið 2019.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2019 að fjárhæð 10.000.000 kr. sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.3. Þjónustumiðstöð - vélakaup
Greinargerð unnin af Sigurði R Karlssyni yfirmanni þjónustumiðstöðvar vegna vélakaupa.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og forstöðumaður þónustumiðstöðvar sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að fresta málinu þar til frekari gögn berast.4. Starfsumhverfi leikskóla og menntun kennara
Fram kom í upplýsingum frá leikskólastjórnendum að svo virðist sem allt að 5 lfl munur sé á sambærilegum störfum í leik- og grunnskóla.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjórum bæjarins að skoða hvaða leiðir eru til meiri menntunar lægstu starfshópanna sem þar með gæfi hækkun í launaflokki.5. Reglur um lyfjagjafir barna í skólum Grindavíkurbæjar
Fræðslunefnd óskar eftir staðfestingu bæjarráðs á reglum um lyfjagjafir barna í skólum Grindavíkurbæjar.
Fræðslunefnd óskar eftir staðfestingu bæjarráðs á reglum um lyfjagjafir barna í skólum Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við reglurnar.6. Rekstraryfirlit janúar - september 2018 - Grindavíkurbær og stofnanir
Rekstraryfirlit janúar til september 2018 lagt fram ásamt skýringum forstöðumanna.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2018 fyrir tímabilið janúar - september 2018.
7. Mat á áhrifum fjárfestinga, sbr. 66. gr. sveitarstjórnarlaga
Lagt fram minnisblað PWC vegna fjárfestinga vegna leik- og grunnskóla, í samræmi við 66. gr. sveitarstjórnarlaga
Lagt fram mat PWC á áhrifum áætlaðra fjárfestinga í leik- og grunnskóla næstu ára á fjárhag Grindavíkurbæjar.
Niðurstaða PWC er að fjárhagsleg staða Grindavíkurbæjar ráði fyllilega við þá fjárfestingu sem fyrirhuguð er við nýjan leikskóla og viðbyggingu við Hópsskóla, bæði hvað varðar fjárfestinguna sjálfa og áhrifa á rekstur Grindavíkurbæjar.8. Áhrif kjarasamninga 2018 - beiðni um viðauka á árið 2018
Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 vegna áhrifa kjarasamninga á árinu.
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 22.487.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun áætlunar launa á starfsmannakostnaði, 21611, að fjárhæð 19.462.000 kr. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 3.025.000 kr.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 vegna áhrifa kjarasamninga á árinu.
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 20.055.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun áætlunar launa á starfsmannakostnaði, deild 21611, að fjárhæð 19.462.000 kr. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 593.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 að fjárhæð 20.055.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á launalið deildar 21611 að fjárhæð 19.462.000 kr. og mismuninn með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 593.000 kr.9. Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2019-2021
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningur milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG um eflingu íþróttastarfs verði framlengdur út árið 2019. Upphæðir hækka um 2,908% fyrir utan framlag til barna og unglingastarfs sem hækkar um 1.200.000 kr. frá árinu 2018. Aðilar munu setjast niður á árinu 2019 og endurskoða gildandi samning.
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að samningur milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG um eflingu íþróttastarfs verði framlengdur út árið 2019. Upphæðir hækka um 2,908% fyrir utan framlag til barna og unglingastarfs sem hækkar um 1.200.000 kr. frá árinu 2018. Aðilar munu setjast niður á árinu 2019 og endurskoða gildandi samning.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlengingu á núverandi samningi til eins 31.12.2019 með þeim hækkunum sem frístunda- og menningarnefnd leggur til.10. Beiðni um viðauka vegna samstarfssamnings milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG 2019
Í framhaldi af afgreiðslu á máli nr. 1710022 (Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur) er lögð fram beiðni um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2019 að upphæð kr. 793.974.
Lögð er fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 794.000 kr. vegna samnings við aðalstjórn UMFG.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að fjárhæð 794.000 kr. vegna hækkunar á samstarfssamningi við aðalstjórn UMFG sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.11. Umferðaröryggi er okkar mál! - Niðurstöður málþings og þakkir
Niðurstöður málþingsins Umferðaröryggi er okkar mál! sem Ungmennaráð Grindavíkurbæjar stóð fyrir 8.-9. nóvember sl. lagðar fram ásamt þökkum fyrir stuðning og þátttöku.
Niðurstöður málþingsins "Umferðaröryggi er okkar mál" sem Ungmennaráð Grindavíkurbæjar stóð fyrir 8.-9. nóvember sl. lagðar fram ásamt þökkum fyrir stuðning og þátttöku.
12. Stofnun öldungaráðs: Erindi frá Félagi eldri borgara í Grindavík
Málið sett á dagskrá vegna kosninga í öldungaráð.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
13. Félag eldri borgara Suðurneslum - Viðmiðunartekjur vegna fasteignagjalda
Félagið skorar á sveitarstjórnir á Suðurnesjum að hækka viðmiðunartekjur hjá eldri borgurum þegar afsláttur er reiknaður.
Félag eldri borgara á Suðurnesjum skorar á sveitarstjórnir á Suðurnesjum að hækka viðmiðunartekjur hjá eldri borgurum þegar afsláttur er reiknaður.
Bæjarráð bendir á að Grindavíkurbær hefur hækkað tekjuviðmið ársins 2019 um allt að 34% frá því sem gilti fyrir árið 2018.