Bæjarráð Grindavíkur - 1585. fundur
- 22.06.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1585
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Grænir iðngarðar á Suðurnesjum
Karl Eðvaldsson framkvæmdastjóri ReSource og gæðastjóri skýrslunnar um grænan iðngarð á Suðurnesjum mætir á fundinn.
Karl Eðvaldsson framkvæmdastjóri ReSource og gæðastjóri skýrslunnar um grænan iðngarð á Suðurnesjum mætti á fundinn og fór yfir efni skýrslunnar og svaraði fyrirspurnum.
Bæjarstjóra falið að leita til ráðgjafa vegna aðstoðar við frekari uppbyggingu græns iðnaðar í Grindavík.2. Málavog í barnavernd
Máli frestað á síðasta fundi og tekið fyrir að nýju.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að auka starfshlutfall í félagsþjónustu um 1,8 stöðugildi frá 1. ágúst 2021 og samþykkir viðauka að fjárhæð 8.550.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.3. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað vegna deiliskipulags íþróttasvæðis. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022
Lagðar fram umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði vegna ársins 2022.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram yfirlit um umsóknir um starfsstyrki á frístunda- og menningarsviði 2022.5. Starfshópur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum
Málið er lagt fram til umræðu.
Farið yfir stöðu mála vegna eldgossins í Geldingadölum.