Bæjarráð Grindavíkur - 1481. fundur
- 29.05.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1481
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félagslegar íbúðir: Framleiga
Óskað eftir heimild til að taka á leigu húsnæði og framleigja.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Félagsmálanefnd leggur til við bæjarráð að sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs verði veitt heimild til að taka á leigu húsnæði og framleigja.
Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar.2. VMST: Húsnæðisbætur
Greint frá áhrifum þess að breyta tekjutöflu í reglum Grindavíkurbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóri greindi frá áhrifum þess að breyta tekjutöflu í reglum Grindavíkurbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.
Bæjarráð samþykkir tillögu að hækkun viðmiðunartöflu tekna vegna sérstaks húsnæðistuðnings hjá Grindavíkurbæ og leggur til við bæjarstjórn að staðfesta töfluna.3. Göngu- og hjólreiðastígur frá Bláa Lóni að Reykjanesbraut
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
4. Ísland ljóstengt: framkvæmd
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
5. Ný persónuverndarlöggjöf 2018: Undirbúningur og innleiðing
Meðfylgjandi er ósk um viðauka ásamt tilboði í verkið frá Skipulagi og skjölum.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 5.215.000 kr. vegna sérfræðiaðstoðar við innleiðingu nýrra persónuverndarlaga.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 5.215.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.6. Þorbjörn hf: Sala á Krumma GK-10
Skipið er selt til niðurrifs, en Grindavíkurbær hefur forkaupsrétt.
Skipið er selt til niðurrifs, en Grindavíkurbær hefur forkaupsrétt.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsréttinn.7. Fisktækniskóli Íslands: Styrktarsamningur
Fyrir liggur samningur um styrk upp í húsaleigu skólans. Leitað er samþykkis bæjarráðs.
Lögð fram drög að samningi um styrk til Fisktækniskóla Íslands.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.8. HS Orka: Veðsetning samningsbundinna réttinda
Borist hefur tillaga að yfirlýsingu vegna ákvæða í hagnýtingarsamningi frá 17. maí 2010.
Drög að yfirlýsingu lögð fram.
9. Kalka-Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Lóð í Helguvík
Kalka hefur sótt um lóð fyrir sorpbrennslustöð í Helguvík
Lögð fram tilkynning frá Kölku - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. varðandi umsókn stjórnar Sorpeyðingarstöðvarinnar til Reykjaneshafnar um lóð fyrir sorpbrennslustöð.
10. Markaðsstofa Reykjaness: Áfangastaðaáætlun
Fyrir liggja drög að Áfangastaðaáætlun Reykjaness ásamt viðaukum, en skýrslan er unnin í samstarfi við Ferlamálastofu sem leitt hefur verkefnið á landsvísu.
Lögð fram drög að Áfangastaðaáætlun Reykjaness ásamt viðaukum, en skýrslan er unnin í samstarfi við Ferlamálastofu sem leitt hefur verkefnið á landsvísu.