Bæjarráð Grindavíkur - 1443. fundur
- 02.05.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1443
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Lagðar fram hugmyndir að húsnæðisaðstöðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að auglýsa eftir dagmæðrum sem tilbúnar eru að starfa í húsnæði í eigu bæjarins.
Jafnframt samþykkir bæjarráð að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að útfæra nánar tilboð 1b frá Stólpa Gámum, dags. 26. apríl sl. og leggja fyrir bæjarráð.2. Hóp: Endurgreiðsla á ræktun
Ósk um viðauka við fjárhagsáætlun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Drög að samkomulagi um greiðslu fyrir ræktað land lagt fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 1.143.000 kr. til að greiða fyrir ræktun á hluta úr landi jarðarinnar Hóps í Grindavík.
Bæjarráð samþykkir samkomulagið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 1.143.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.3. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Lögð fram tilboð í gerð húsnæðisáætlana.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Lögð fram verðkönnunargögn í gerð húsnæðisáætlunar.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Eflu um gerð húsnæðisáætlunar fyrir Grindavíkurbæ.4. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Minnisblað lögfræðings vegna ábyrgðar Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Leitað var eftir áliti lögfræðings og var minnisblað hans lagt fram.
Í minnisblaðinu kemur fram að með tilliti til laga, reglugerða og sölugagna er rétt að hafna því að sá kostnaður er kemur til vegna sérteikninga sé á ábyrgð sveitarfélagsins.5. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Samningur um nýtingu á aðstöðu.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Samningur um afnot 240 ehf. af hluta tjaldsvæðahúss á tjaldsvæði Grindavíkurbæjar og samningur um afnot bílastæða lagðir fram.
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að vinna málið áfram.6. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Fyrir liggur tillaga að samningi vegna umsjónar mannvirkja á íþróttasvæðinu.
Samningur við knattspyrnudeild UMFG vegna umsýslu eigna á knattspyrnuvelli lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
Jafnframt leggur meirihluti bæjarráðs til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 2.760.000 kr. á lið 06611-4341 sem verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Ásrún situr hjá.7. TG Raf: Bréf vegna þjónustusamnings
Greint verður frá samskiptum félagsins og starfsmanna Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn við umræður og afgreiðslu þessa máls.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra vegna fundar við TG raf ehf.8. Lánasjóður sveitarfélaga: Arðgreiðsla 2017
Tilkynning um arðgreiðslu lögð fram.
Tilkynning um arðgreiðslu á árinu 2017 að fjárhæð 5.346.990 kr. lögð fram.