Bæjarráð Grindavíkur - 1415. fundur
- 04.08.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1415
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
1. Fasteignir bæjarsins: Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla - framhaldsmál
Drög að verksamningi lögð fram.
Verksamningur lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.2. Minja-og sögufélag Grindavíkur: Verndarsvæði í byggð
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna umsókn um styrk í Húsafriðunarsjóð til að undirbúa tillögur að verndarsvæði í byggð.
3. Íbúðalánasjóður: Framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir
Bréf frá Íbúðalánasjóði um framkvæmd nýrra laga um almennar íbúðir lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í starfshópi um uppbyggingu íbúða í Víðihlíð og felur bæjarstjóra að gera drög að auglýsingu eftir aðilum sem hafa áhuga á að taka þátt í stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar um almennar leiguíbúðir í Grindavík.4. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2016
Fundargerð 704. fundar til kynningar
Fundargerð 704. fundar lögð fram til kynningar.
5. Kvikan: ársreikningur 2015
Ársreikningur lagður fram til kynningar.
Ársreikningur ársins 2015 lagður fram til kynningar.
6. Viktoría Róbertsdóttir: Umsókn um launalaust leyfi
Viktoría Róbertsdóttir starfsmaður á Bókasafni Grindavíkur sækir um launalaust leyfi í eitt ár til að taka við starfi grunnskólakennara við Grunnskóla Grindavíkur.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.7. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2016
Fundur 470
Fundargerð fundar 470 lögð fram til kynningar.
8. Fasteignagjöld 2016
Samanburður fasteignagjalda 2016 á 27 þéttbýlisstöðum.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið kynnti samanburð Byggðastofnunar á fasteignagjöldum árið 2016, á 27 þéttbýlisstöðum.
Samanburðurinn leiðir í ljós að fasteignagjöld í Grindavík eru með þeim lægstu á landinu. Samanburður við þéttbýlisstaði sem eru með sambærilegt fasteignamat og Grindavík sýnir að fasteignagjöld eru lægst í Grindavík í þeim hópi.9. Fasteignagjöld 2017
Áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2017 miðað við nýtt fasteignamat og óbreyttar álagningarforsendur.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið kynnti áætlun fasteignagjalda fyrir árið 2017 miðað við nýtt fasteignamat og óbreyttar álagningarforsendur.