Bæjarráð Grindavíkur - 1312. fundur
- 05.03.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1312
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Kynning á nýju húsnæði undir Bókasafn og tónlistarskóla
Farið yfir stöðuna. Forval auglýst
Fundargerðir fyrstu tveggja funda bygginganefndar lagðar fram, ásamt verkáætlun og aðaluppdráttum.
Forval vegna framkvæmda hefur verið auglýst.2. Efnis- og nýtingaráætlun ásamt útboðsgögnum vegna Melhólsnámu
Tilboð í námureksturinn lögð fram.
Niðurstöður útboðs á nýtingu Melhólsnámu lagðar fram.
Bæjarráð hafnar öllum tilboðum og felur skipulags- og umhverfisnefnd að fara yfir stöðuna.3. Bílamál Grindavíkurbæjar
Set inn gömul minnisblöð um bílakost bæjarins svo við höfum eitthvað. Aðalatriði er að hefja málið og vísa því til Sigmars og fá fram tillögur. Ég hef rætt þetta við hann.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að taka saman upplýsingar um ástand og fjölda þeirra bifreiða sem eru í eigu Grindavíkurbæjar og leggja fram tillögur um endurnýjun og viðhald eftir því sem við á.
4. Undirskriftarlisti vegna óska um breytingar á skipulagi í Dalbraut
Undirskrifatarlisti íbúa við Dalbraut og Laut
Undirskriftalisti íbúa við Dalbraut og Laut með ósk um breytingar á skipulagi við Dalbraut lagður fram.
Erindinu er vísað til skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.5. Uppsögn á þjónustu vegna neyðarboða í Víðihlíð
NMJ fylgir málinu úr hlaði. Hann getur komið rúmlega 18.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerir grein fyrir breytingum á þjónustu vegna neyðarboða í íbúðum aldraðra í Víðihlíð.
Bæjarráð óskar frekari gagna og frestar afgreiðslu til næsta fundar.6. Fundargerð fundar um heimilisofbeldi.
NMJ fylgir málinu úr hlaði
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerir grein fyrir fundi með lögreglustjóra um heimilisofbeldi, þar sem óskað er eftir stuðningi félagsþjónustunnar í heimilisofbeldismálum.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu og felur sviðsstjóra að útfæra verkefnið í samstarfi við lögregluna.7. Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Undirritaður samningur lagður fram til staðfestingar.
Samningur við Fasteignasölu Suðurlands um sölu félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar lagður fram til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir samninginn.8. Mögulegar breytingar í rekstri og þjónustu í nýrri íþróttamiðstöð
hefja umræðu um hvernig rekstur og þjónusta breytist með tilkomu nýrra mannvirkja.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, formanni frístunda- og menningarnefndar og formanni skipulags- og umhverfisnefndar að hefja viðræður við aðalstjórn UMFG, stjórnir deilda UMFG og stjórn Kvenfélags Grindavíkur um þau tækifæri sem opnast í nýjum íþróttmannvirkjum og hvernig rekstri verður best háttað, og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
9. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja 11. mars 2013.
Fundarboð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurnesja sem fram fer 11. mars 2013 lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sitja fundinn.10. Aðalfundur HS veitna hf. 14.mars 2013
Fundarboð aðalfundar HS veitna hf. sem fram fer 14.mars 2013 lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslu að sitja fundinn.11. Nauðungarsala á eigninni Heiðarhraun 13a, 209-1841
Framhald frá fundi 1311.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu fór yfir stöðu málsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslu að mæta á uppboðið og gæta hagsmuna Grindavíkurbæjar.12. Heimsókn til Piteå vinabæjar Grindavíkurbæjar í Svíþjóð 2013
Pitea hafa staðfest að við séum velkomin á umræddum tíma. Eins hefur Rovaniemi samþykkt beiðni um að RR og BG heimsæki þau til að opna á samskiptin að nýju. Taka þarf ákvörðun um hvaða bæjarfulltrúar fara með til Piteå. RR, KJR, NMJ, SSJ og HKM hafa staðfest þátttöku.
Framhald frá fundi 1310.
Bæjarstjóri upplýsir um stöðu mála. Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar munu nýta ferðina til að heimsækja vinabæ Grindavíkur í Finnlandi, Rovaniemi, dagana 24.-26. júní.13. Beiðni um umsögn frá Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna, 537. mál
Lagt fram.
14. Viðræður um yfirtöku Grindavíkurbæjar á sjúkraflutningum HSS í Grindavík
RR og JÞ gera grein fyrir fundi með stjórnendum HSS og hækkuðu tilboði þeirra. Næsta skref er væntanlega að ræða þetta frekar við ráðuneytið. Höfum óskað eftir fundi með þeim.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu gera grein fyrir fundi með stjórnendum HSS og hækkuðu tilboði þeirra um 600.000 kr. á árinu 2013.
Bæjarráð telur að fjárhæðin standi samt sem áður ekki undir kostnaði við sjúkraflutninga í Grindavík og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra að taka upp viðræður við velferðarráðuneytið um framhald málsins.15. Bygging reiðhallar í Grindavík
Framhald frá síðasta fundi
Framhald frá fundi 1312.
Frekari gögn lögð fram um stöðu verkefnisins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna í málinu með stjórn Brimfaxa.16. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Kynna teikningar
Fundargerðir 8. og 9. fundar bygginganefndar íþróttamannvirkja lagðar fram.
Bæjarstjóri kynnti kynningarmyndband með teikningum 2. áfanga. Bæjarráð felur bæjarstjóra að birta það á heimasíðu Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til að gert verði ráð fyrir þvottaaðstöðu í námunda við afgreiðslu og starfsmannaaðstöðu. Jafnframt verði endurskoðað hvort þörf sé á sérstöku rými fyrir verslun UMFG.
Bókun
Fulltrúa D-lista þykir eðlilegt að haft verði samráð við deildir UMFG áður en ákvörðun verði tekin um þvottaaðstöðu.
Fulltrúi D-lista
Bókun
Mikilvægt er að hönnun á íþróttamannvirkinu taki mið af þeirri þróun sem á sér stað víðsvegar á landinu þar sem íþróttafélög sjá um rekstur þeirra eða starfsfólk íþróttamannvirkja veita margskonar þjónustu til íþróttahreyfinga. Þá er mikilvægt að hægt sé að nýta starfsfólk íþróttamannvirkja sem best, meðal annars til að sjá um að þvo þvott er tengist íþróttahreyfingunni. Því er mikilvægt að þvottahús sé staðsett nálægt afgreiðslu og starfsmannaaðstöðu. Staðsetning þvottahúsins mun ekki á neinn hátt breyta nýtingarmöguleikum deilda UMFG á þvottahúsinu og ábendingar bæjarráðs um staðsetningu felur ekki í sér neina ákvörðun um hver muni nýta þá aðstöðu eða hvernig. Að auki má benda á að fulltrúi UMFG er í nefndinni og tekur því fullan þátt í hönnun íþróttamannvirkjanna.
Fulltrúi B-lista.