Bæjarráð Grindavíkur - 1478. fundur
- 30.04.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:30 - 19:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1478
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Efnistaka í Rauðamel á Reykjanesi: beiðni um umsögn.
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Sjá meðfylgjandi gögn frá skipulagsstofnun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá skipulagsstofnun dags. 17. apríl 2018 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni "Efnistaka í Rauðamel á Reykjanesi - Tillaga að matsáætlun" dagsett 6.4.2018.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umhverfisþætti matsins, valkosti þess, gagnaöflun sem fyrirhuguð er né hvernig til standi að vinna úr gögnum til að meta umhverfisáhrif og hvernig fyrirhugað er að setja þau fram í frummatsskýrslu.
Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.2. Efnistaka í Stapafelli og Súlum: beiðni um umsögn.
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Sjá meðfylgjandi gögn frá skipulagsstofnun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá skipulagsstofnun dags. 9. apríl 2018 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni " Efnistaka í Stapafelli á Reykjanesi " dagsett 5.4.2018
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umhverfisþætti matsins, valkosti þess, gagnaöflun sem fyrirhuguð er né hvernig til standi að vinna úr gögnum til að meta umhverfisáhrif og hvernig fyrirhugað er að setja þau fram í frummatsskýrslu.
Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.3. Suðurnesjalína 2: beiðni um umsögn
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um meðfylgjandi tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar. Sjá meðfylgjandi gögn frá skipulagsstofnun.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá skipulagsstofnun dags. 23. apríl 2018 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar um tillögu að matsáætlun fyrirhugaðra framkvæmda vegna Suðurnesjalínu 2.
Bæjarráð telur að vel sé gerð grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni "Suðurnesjalína 2 milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavíkurbæ - Tillaga að matsáætlun" dagsett 16.4.2018.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umhverfisþætti matsins, valkosti þess, gagnaöflun sem fyrirhuguð er né hvernig til standi að vinna úr gögnum til að meta umhverfisáhrif og hvernig fyrirhugað er að setja þau fram í frummatsskýrslu.
Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi hjá Grindavíkurbæ.4. Húsnæðisáætlanir: Undirbúningur og gerð
Húsnæðisáætlun hefur ekki verið samþykkt formlega í bæjarstjórn. Ekki er gerð bein krafa um slíkt, en fyrr verður hún ekki birt. Hjálögð er nýjasta útgáfa.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Húsnæðisáætlun og drög að reglum um stofnstyrki lagðar fram.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja húsnæðisáætlunina.
Reglum um stofnstyrki er vísað til næsta bæjarráðsfundar til frekari umfjöllunar.5. Staður: Fyrirspurn um smáhýsi
Taka þarf afstöðu til þess hvort ganga eigi til viðræðna við Ríkiseignir um hugsanleg kaup eða leigu á landi úr jörðinni Stað.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að kanna hjá landeiganda hvort landið geti nýst undir þessa starfsemi.6. Starf frístundaheimila: Markmið og viðmið
Reglur um frístundaheimili í Grindavík lagðar fram. Vilji til að þær öðlist gildi frá og með næsta skólaári.
Reglur um frístundaheimili í Grindavík lagðar fram.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.7. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Ófullnægjandi frágangur frárennslislagna
HES vekur athygli á ófullnægjandi frágangi á brunnum tengdum frárennslisveitu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma með mögulegar lausnir á málinu á næsta bæjarráðsfund.
8. Fisktækniskóli Íslands: Aðalfundur 2018
Fundarboð á aðalfund. Ákveða þarf hver fari með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum. Einnig þarf að tilnefna aðalmann og varamann í stjórn.
Fundarboð á aðalfund Fisktækniskóla Íslands þann 8. maí n.k. lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta á fundinn fyrir hönd Grindavíkurbæjar. Jafnframt tilnefnir bæjarráð Ólaf Þór Jóhannsson sem aðalmann og bæjarstjóra til vara.