Bæjarráð Grindavíkur - 1482. fundur
- 26.06.2018
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 17:40
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1482
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla : Húsnæðismál
Rætt um stöðu málsins og nýtingu húsnæðisins við Gerðavelli.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byrjað er framkvæmdum innanhúss á Gerðavöllum 17 og gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar um miðjan ágúst.2. Beiðni um undanþágu frá greiðslu íbúðarréttar í Víðihlíð
Óskað er eftir að fá undanþágu frá greiðslu íbúðaréttar í Víðihlíð. Útreiknaður íbúðaréttur viðkomandi íbúðar er 4.582.972 kr.
Bæjarráð samþykkir beiðnina. Leiga verður því 25% hærri en annars hefði verið.
3. Ný persónuverndarlöggjöf 2018: Undirbúningur og innleiðing
Samþykkja þarf meðfylgjandi samning við Dattacalabs og svo viðauka til að fjármagna samninginn.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 5.215.000 kr. vegna sérfræðiaðstoðar við innleiðingu nýrra persónuverndarlaga.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 5.215.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að ganga til samninga við Dattacalabs með hliðsjón af framlögðum samningsdrögum með endurskoðun á ákvæði um fyrirvara í samningsdrögunum. Bæjarráð samþykkir jafnframt viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 3.000.000 kr. sem fjármagnað verði með lækkun á handbæru fé.
4. Sjóvá: Ágóðahlutdeild vegna 2017
Ágóðahlutdeild bæjarins og hafnarinnar er 632.825 kr.
Ágóðahlutdeild bæjarins og hafnarinnar vegna ársins 2017 er 632.825 kr.
5. Kvikan: Sýndarveruleikasafn tengt sjómennsku
Beiðni frá Ómari Grétarssyni um að Grindavíkurbær komi að uppsetningu á sýndarveruleikasafni, tengt sjómennsku, í Kvikunni.
Lögð fram beiðni frá Ómari Grétarssyni um að Grindavíkurbær komi að uppsetningu á sýndarveruleikasafni, tengt sjómennsku, í Kvikunni.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu þar sem nú er í vinnslu stefnumótun um ferðamál og framtíð Kvikunnar.6. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar: Ráðning
Tilboð í aðstoð við ráðningu bæjarstjóra lögð fram.
Lögð fram tilboð í aðstoð við ráðningu bæjarstjóra en um er að ræða tilboð frá 3 ráðningarstofum.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Hagvang.
Bæjarráð samþykkir jafnfram viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 850.000 kr. sem fjármagnaðar verði með lækkun á handbæru fé.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að vinna málið áfram.7. Kjörnir fulltrúar: Styrkir til tölvukaupa
Á fjárhagsáætlun eru 840 þús.kr. í styrki.
Á fjárhagsáætlun 2018 eru 840 þús.kr. ætlaðar í styrki vegna tölvukaupa kjörinna fulltrúa.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram þannig að hver kjörinn fulltrúi fái að hámarki 76.000 kr. til tölvukaupa.8. Kosning í nefndir: Ákvæði jafnréttislaga
Samfylkingin óskar eftir því að nefndarskipan verði tekin upp að nýju.
Lagt fram.