Bæjarráð Grindavíkur - 1461. fundur
- 24.10.2017
- Fundargerð
- Kl. 19:30 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1461
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Fjárhagsáætlun 2018-2021 vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar 2018-2021 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að halda íbúafund um fjárhagsáætlunina þann 13. nóvember kl. 17:30-18:30.2. Íþróttamannvirki: Niðurrif og jarðvinna
Tekin fyrir 4 tilboð í verkið "Íþróttamannvirki í Grindavík, rif og jarðvinna".$line$$line$Röð bjóðenda var þessi:$line$$line$Ellert Skúlason ehf$line$kt. 610472-0289$line$7.345.165 kr. mvsk.$line$$line$G.G. Sigurðsson ehf$line$kt. 680297-2589$line$9.192.350 kr. mvsk.$line$$line$Work North ehf$line$kt. 521184-0869$line$12.160.000 kr. mvsk.$line$$line$Jón og Margeir ehf$line$kt. 680807-2130$line$19.990.200 kr. mvsk.$line$$line$Kostnaðaráætlun var 18.360.002 kr. mvsk.$line$$line$Tillaga. Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja við lægstbjóðanda þegar gögnum skv. kafla 0.1.6 hefur verið skilað inn
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
4 tilboð bárust í verkið.
Kostnaðaráætlun er 18.360.002 kr. með virðisaukaskatti.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Ellert Skúlason ehf. að fjárhæð 7.345.165 kr. með virðisaukaskatti og felur bæjarstjóra undirritun.3. Hópið: Aðstaða milli Hóps og stúku
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
4. Grindavíkurhöfn: fyrirspurn um matsskyldu
Hafnarstjórn Grindavíkurhafnar, framkvæmdaaðili fer þess á leit við sveitarstjórn Grindavíkur, með vísan í 6. grein laga um mat á umhverfisáhrifum 106/2000, að ákveða hvort dýpkun í Grindavíkurhöfn sé háð mati á umhverfisáhrifum. $line$Um er að ræða dýpkun framan við nýtt stálþil við Miðbakka á alls um 3 þús. fermetra svæði. Dýpkunarsvæðið er allt hrein klöpp. Áður hefur verið dýpkað í höfninni á svæðum sem liggja að því svæði sem dýpka á nú.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð telur að framkvæmdin þurfi ekki í að fara í mat á umhverfisáhrifum og telur að framkvæmdin hafi ekki áhrif þar sem losunarstaðurinn er sá sami og hefur verið vegna framkvæmda á höfninni undanfarinna ára.5. Félagsþjónusta: Beiðni um viðauka
Beiðni um viðauka vegna félagsþjónustu. Skýringar liggja frammi.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Óskað er eftir 2.000.000 kr. á deildina 02361 og 21.430.000 kr. á deildina 02562. Fjármögnun verði með hækkun tekna frá Jöfnunarsjóði að fjárhæð 19.800.000 kr. og mismunurinn að fjárhæð 3.630.000 kr. verði með lækkun á handbæru fé.
Jafnframt er óskað eftir að viðauka að fjárhæð 4.500.000 kr á deildina 02561 sem fjármagnaður verður með 4.500.000 kr. lækkun á deildinni 02562.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina.6. Ferðaþjónusta: Gjaldskrá
Gjaldskrá vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks lögð fram og óskað eftir samþykki bæjarráðs og í kjölarið samþykki og formlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar. Stefnt að því að hefja gjaldtöku frá og með nóvember. Gjaldið tekur mið af almenningssamgöngum hverju sinni.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Gjaldskrá vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks lögð fram. Stefnt að því að hefja gjaldtöku frá og með nóvember og mun gjaldið taka mið af almenningssamgöngum hverju sinni.
Bæjarráð samþykkir gjaldsskrána og vísar henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.7. Fræðsluþjónusta: Ósk um viðauka
Óskað er eftir viðuaka við fjárhagsáætlun vegna Leikskólans Króks. Skýringar fylgja.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Óskað er eftir viðauka við rekstur leikskólans Króks að fjárhæð 8.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann.8. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mættu á fundinn og kynntu þeir málið.
9. Grindavíkurhöfn: Gjaldskrá 2018
Gjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2018 lögð fram til staðfestingar
Gjaldskráin er lögð fram.