Bæjarráð Grindavíkur - 1433. fundur
- 24.01.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1433
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Frestað á síðasta fundi bæjarráðs. Leitað var til 3. aðila (Sjómannastofan Vör) og kannaður áhugi á því að selja sveitarfélaginu heitan mat í hádeginu og var kallað eftir verði per skammt afhent í hús (Miðgarð). Fyrirsvarsmaður Vararinnar fékk viku umþóttunartíma en gaf frá sér verkefnið í morgun.$line$Nökkvi Már og Sirrý mæta til fundar við bæjarráð.
Til fundarins voru mætt Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, og forstöðukona Miðgarðs, Stefanía S. Jónsdóttir og kynntu þau stöðu málsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerð verði tilraun til þriggja mánaða með því að bjóða eldri borgurum upp á niðurgreiddan heitan mat í hádeginu virka daga í Miðgarði.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og forstöðukonu Miðgarðs er falið að útbúa viðauka sem lagður verður fyrir næsta bæjarstjórnarfund.2. VMST: Húsnæðisbætur
Er að bíða eftir samanburðinum frá Reykjanesbæ og SGV. Einnig viðbrögðum Tryggva hjá sambandi varðandi vangaveltur Mörtu frá síðasta fundi.
Til fundarins var mættur sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson og kynnti hann málið.
Bæjarráð vísar reglum um sérstakan húsnæðisstuðning Grindavíkurbæjar til bæjarstjórnar.3. Gallup: Þjónustukönnun 2016
Niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup um þjónustu Grindavíkurbæjar lögð fram. Könnunin var framkvæmd í nóvember og desember 2016.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með að niðurstöður könnunarinnar 2016. Ljóst er að bæjarfélagið er að bæta sig á flestum sviðum.4. Styrkbeiðni: Kóramót Eldeyjar, kórs eldri borgara á Suðurnesjum
Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, leitar eftir styrk vegna kóramóts sem haldið verður 27. maí n.k. Sjá nánar í meðfylgjandi bréfi.
Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, leitar eftir styrk vegna kóramóts sem haldið verður 27. maí n.k.
Bæjarráð samþykkir að veita kórnum styrk að fjárhæð 50.000 kr.5. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Drög að samningi um samstarf lögð fram til umræðu
Drög að samningi um samstarf tjaldsvæðis og rekstaraðila smáhýsa við tjaldsvæðið lögð fram.
Bæjarráð vísar drögunum til umfjöllunar í umhverfis- og ferðamálanefnd.