Bæjarráð Grindavíkur - 1354. fundur
- 24.06.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1354
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Bæjarráð skiptir með sér verkum
Kjósa þarf formann, varaformann og ritara
Hjálmar Hallgrímsson D-lista er kjörinn formaður. Kristín María Birgisdóttir G-lista er kjörin varaformaður og Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra er falið að vera ritari.
2. Kosning í nefndir til fjögurra ára samkvæmt b-lið 57. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Kjósa þarf í stjórn Kvikunnar, almannavarnanefnd og fjallskilanefnd. Auk aðal- og varamanns í stjórn Reykjanesfólkvangs.
Formaður leggur fram tillögu um kjör í eftirtaldar nefndir og stjórnir.
Stjórn Kvikunnar
Aðalmenn
Jónas Þórhallsson
Kristín María Birgisdóttir
Ásrún Kristinsdóttir
Magnús Andri Hjaltason
Róbert Ragnarsson
Varamenn
Jóna Rut Jónsdóttir
Dagbjartur Willardsson
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Valgerður Jennýjardóttir
Jón Þórisson
Stjórn Reykjanesfólkvangs
Kristín María Birgisdóttir og Þórir Sigfússon til vara.
Fjallskilanefnd
Ásta Jóhannesdóttir
Hermann Th. Ólafsson
Hörður Sigurðsson
Varamenn
Guðjón Þorláksson
Þórir Kristinsson
Ómar Davíð Ólafsson
Almannavarnanefnd
Sigurður Bergmann, fulltrúi lögreglustjóra
Ásmundur Jónsson, Slökkviliðsstjóri, formaður
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri
Ármann Halldórsson, Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Jón Valgeir Guðmundsson, fulltrúi Björgunarsveitar
Ágústa Gísladóttir, fulltrúi Rauða kross
Samþykkt samhljóða.3. 677. fundur í stjórn SSS Fundarboð og fundargerð
Fundargerðin er lögð fram.
4. Beiðni um stuðning við starf Hróksins
Skákfélagið Hrókurinn óskar eftir stuðningi við starf Hróksins í þágu barna og ungmenna á Grænlandi og Íslandi. Óskað er eftir því að Grindavíkurbær gerist gull-,silfur-, eða bronsbakhjarl félagsins.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.5. Fisktækniskóli Íslands óskar eftir stuðningi til áframhaldandi uppbyggingar
Stjórn Fisktækniskóla Íslands óskar eftir stuðningi Grindavíkurbæjar til áframhaldandi uppbyggingar.
Óskað er eftir því að skipuð verði nefnd fulltrúa Grindavíkurbæjar og skólans til að gera úttekt á þörfum skólans til næstu ára og koma með tillögur um framtíðarskipan húsnæðismála.
Jafnframt er óskað eftir því að Grindavíkurbær leggi fram 4 milljóna króna rekstrarstyrk árlega til næstu þriggja ára.
Bæjarráð samþykkir að skipa fulltrúa í nefnd um framtíðarskipan húsnæðismála Fisktækniskólans og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja tillögu fyrir bæjarráð.6. Ósk um styrk til að halda jólatónleika í Grindavíkurkirkju
Alexander Birgir Björnsson óskar eftir styrk til að halda jólatónleika í Grindavíkurkirkju til stuðnings einhverfusamtökunum og Birtu-landssamtök foreldra barna eða ungmenna sem hafa látist fyrirvaralaust.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk til verkefnisins.7. Samstarf á milli Grindavíkurbæjar og Grindavíkurkirkju um æskulýðsstarf.
Grindavíkursókn fer fram á að styrkur vegna ársins 2013 verði greiddur út samhliða styrk vegna ársins 2014, en styrkurinn var ekki greiddur vegna þess að skýrsla um starfið barst ekki á réttum tíma.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.8. Beiðni um umsögn um umsókn Stakkavíkur ehf. um endurnýjun á rekstarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II að Bakkalág 15b í Grindavík.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
9. Endurnýjun samnings við Skólamat ehf.
Samningurinn er útrunninn. Þau bjóðast til að framlengja á óbreyttum kjörum. Hafa hafnað kröfum um lækkun og vísa til þess að samningurinn lækkaði við síðustu endurnýjun 2010
Lögð fram tillaga um endurnýjun samnings Grindavíkurbæjar og Skólamats ehf.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.10. Fasteignagjöld vegna gróðurhúss Orf Líftækni hf.
Tillaga að samkomulagi við ORF um greiðslu fasteignagjalda
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað í kjölfar fundar með fulltrúa ORF líftækni.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi við ORF líftækni um greiðslu fasteignagjalda.11. Sveitarfélagamörk. Krafa Hafnarfjarðarbæjar, um að Óbyggðanefnd úrskurði um sveitarfélagamörk.
Úrskurður Óbyggðanefndar í máli nr. S-1/2011 um sveitarfélagamörk til norðausturs er fallinn.
Nefndin hafnaði kröfum Grindavíkur um að mörk sveitarfélagsins næðu til Stóra-Kóngsfells og staðfesti sveitarfélagamörk til norð-austurs í skurðarpunktinum við dæmd norðurmörk Krýsuvíkur.
Lögmenn Grindavíkurbæjar eru að yfirfara forsendur úrskurðarins.12. Útsending bæjarstjórnarfunda
Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.
Formaður leggur til að afgreiðslu verði frestað til næsta fundar.
Samþykkt með tveimur atkvæðum.
Bryndís situr hjá.13. Lausar skólastofur
Minnisblað bæjarstjóra og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram. Að þeirra mati er nauðsynlegt að Grindavíkurbær eigi áfram þær lausu skólastofur sem til staðar eru, í það minnsta þar til stefnumótunarvinnu í frístunda- og menningarstarfi lýkur.
14. Trúnaðarlæknisþjónusta
Bæjarstjóri óskar eftir heimild til að gera 6 mánaða samning við Vinnuvernd ehf. um trúnaðarlæknisþjónustu.
Samþykkt samhljóða.