Bæjarráð Grindavíkur - 1497. fundur
- 23.10.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1497
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
2. Kynjahlutföll í fastanefndum - fyrirspurn
Lögð fram beiðni Jafnréttisstofu um kynjahlutfall í fastanefndum Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að svara erindinu.
3. Styrkbeiðni - Skákmót í Svíþjóð
Skákdeild UMFG óskar eftir styrk að upphæð 300.000 kr til að fara á skákmót í Svíþjóð í nóvember. Meðfylgjandi er afrit af tölvupósti frá Siguringa, þjálfara liðsins.
Skákdeild UMFG óskar eftir styrk að upphæð 300.000 kr til að fara á skákmót í Svíþjóð í nóvember.
Bæjarráð samþykkir að styrkja skákdeild UMFG um 150.000 kr. vegna ferðarinnar.4. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk
Lögð fram beiðni stjórnar Fjáreigendafélags Grindavíkur um 500.000 kr. styrk til áburðarkaupa til að viðhalda gróðri í beitarhólfi í Krísuvíkurlandi.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr. sem komi til greiðslu árið 2019.5. Slysavarnardeildin Þorbjörn, nýr samstarfssamningur
Samningsdrög frá björgunarsveitinni.
Lögð fram drög að nýjum samningi milli Grindavíkurbæjar og Slysavarnardeildarinnar Þorbjarnar.
Bæjarráð samþykkir samninginn með þeirri breytingu að hann gildi til 5 ára í 31.12.2023.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram.6. Eignarhaldsfélag Brunabótafélag Íslands -Ágóðahlutagreiðsla 2018
Ágóðahlutagreiðsla Grindavíkurbæjar er 1.152.500 kr.
Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands samþykkir að greiða 50 milljónir kr. til aðildarsveitarfélaganna fyrir árið 2018. Hlutdeild Grindavíkurbæjar í Sameignarsjóði EBÍ er 2,305% og því verður ágóðahlutagreiðsla ársins 1.152.500 kr.
7. Fjárhagsáætlun 2019-2022: Grindavíkurbær og stofnanir
Vísa þarf áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir Grindavíkurbæ og stofnanir 2019-2022 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.