Bæjarráð Grindavíkur - 1469. fundur
- 23.01.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1469
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka inn mál með afbrigðum sem bætist aftan við útsenda dagskrá:
Nýbygging björgunarsveitarinnar: Styrkbeiðni - 1611060
1. Fræðslumál: Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Erindi frá foreldrum vegna barns í grunnskóla lagt fram. Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Bæjarráð hafnar erindinu.2. Íþróttahús 2018: útboð
Upp kom ný staða þegar í ljós kom sprunga undir byggingarreit hússins.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Upp er komin ný staða en í ljós hefur komið sprunga undir byggingarreit hússins.
Meðan verið er að breyta burðarvirki hússins mun opnun tilboða og verktíma verða frestað um mánuð.3. Reglur og gjaldskrá: Gatnagerðargjöld
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Bæjarráð samþykktir Samþykkt um gatnagerðargjöld með áorðnum breytingum og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.4. Gallup: Þjónustukönnun 2017
Niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup um þjónustu Grindavíkurbæjar lagðar fram. Könnunin var framkvæmd í nóvember og desember 2017.
Niðurstöður úr þjónustukönnun Gallup um þjónustu Grindavíkurbæjar lagðar fram. Könnunin var framkvæmd í nóvember og desember 2017.
5. Samband ísl. sveitarfélaga: Opinber innkaup
Sambandið hvetur sveitarstjórnir til að kynna sér skýrslu Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins sem varpar á ljósi á þær hliðar innkaupamála sem krefjast sérstakrar árvekni.
Sambandið hvetur sveitarstjórnir til að kynna sér skýrslu Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins sem varpar á ljósi á þær hliðar innkaupamála sem krefjast sérstakrar árvekni. Skýrslan er lögð fram.
6. Nýbygging björgunarsveitarinnar: styrkbeiðni
Á fundi bæjarstjórnar nr. 469 þann 29.12.2016 bókaði bæjarstjórn eftirfarandi:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að veita Björgunarsveitinni styrk að fjárhæð 7.000.000 króna. Útgreiðsla styrksins verður í nánara samkomulagi við Björgunarsveitina.
Bæjarráð samþykkir útgreiðslu styrksins og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 7.000.000 kr. sem tekið verði af handbæru fé.