Bæjarráð Grindavíkur - 1446. fundur
- 23.05.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1446
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Minnisvarði um áhöfn og sögu flugvélar sem fórst í Fagradalsfjalli 3. maí 1943: Heimild til uppsetningar
Jim Lux, bandarískur áhugamaður um sögu flugslyssins, mun koma á fund bæjarráðs ásamt nokkrum öðrum og halda kynningu á verkefninu.
Jim Lux, bandarískur áhugamaður um sögu flugslyssins, ásamt konu sinni Nancy, Terry Hinde og Sherri Hinde og Þorsteini Marteinssyni mættu á fundinn og kynnti Mr. Lux verkefnið. Fyrirhugað er að reisa minnisvarða við Grindavíkurveg og vígja hann í maí 2018.
2. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Framvinda málsins kynnt.
Til fundarins var mættur Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og fór hann yfir stöðu málsins.
3. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Lagt fram minnisblað og frumkostnaðaráætlanir frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
Til fundarins voru mættir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Lagt fram minnisblað og frumkostnaðaráætlanir.4. Ósk um viðauka: Götusópun
Beiðni um viðauka frá Ármanni Halldórssyni vegna götusópunar og niðurfallshreinsunar.
Lögð fram beiðni um viðauka frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Ármanni Halldórssyni, vegna götusópunar og niðurfallshreinsunar að fjárhæð 5.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 4.000.000 kr. til götusópunar og niðurfallshreinsunar sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.5. Rekstraryfirlit janúar - mars 2017: Grindavíkurbær og stofnanir
Rekstraryfirlit janúar - mars 2017 lagt fram.
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, fór yfir rekstaryfirlit janúar til mars 2017.
6. Minja- og sögufélag Grindavíkur: Viðauki vegna samstarfssamnings
Í fjárhagsáætlun 2017 vantar upp á fjárhæðin til þess að hægt sé að uppfylla greiðslur skv. ákvæðum samningsins.
Lögð fram beiðni um viðauka frá sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, Björgu Erlingsdóttur, vegna samnings við Minja- og sögufélag Grindavíkur að fjárhæð 320.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 320.000 kr. sem verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 170.000 kr. og hækkun tekna Vinnuskóla að fjárhæð 150.000 kr.7. Hjólreiðanefnd UMFG: sækir um að halda hjólreiðamót í Grindavík 11. júní 2017
Óskað er eftir að nokkrar götur verði lokaðar meðan á hjólreiðamótinu stendur.
Hjólreiðanefnd Grindavíkur óskar eftir að fá að halda hjólreiðamót í Grindavík í tengslum við Sjóarann síkáta og að nokkrum götum verði lokað meðan mótið stendur yfir.
Bæjarráð gerir athugasemdir við tímasetningar og hugmyndir um lokanir gatna í ljósi þess að um sjómannadag er að ræða og hátíðarmessa og skrúðganga að minnisvarða er á þessum tíma. Einnig gengur ekki að takmarka akstur til og frá tjaldsvæði. Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs til frekari vinnslu.8. Kvíabryggja: Nýr löndunarkrani
Hafnarstjórn fól hafnarstjóra að kanna verð í löndunarkrana og fyrir liggja tilboð.
Hafnarstjórn hefur falið hafnarstjóra að kanna verð í löndunarkrana en einn af löndunarkrönum hafnarinnar er ónothæfur.
Bæjarráð samþykkir að hafnarstjóri haldi áfram með málið.9. Beiðni um umsögn: Körfuknattleiksdeild UMFG
Körfuknattleiksdeild sækir um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Gjánni í tengslum við hátíðahöld 10. og 11. júní 2017.
Körfuknattleiksdeild sækir um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Gjánni í tengslum við hátíðahöld 10. og 11. júní 2017.
Fyrir liggur að byggingafulltrúi gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfisins.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.10. Málræktarsjóður: Aðalfundur
Grindavíkurbær á rétt á að tilnefna mann í fulltrúaráð Málræktarsjóðs
Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn þriðjudaginn 13. júní nk.
Bæjarráð samþykkir að bjóða forstöðumanni bókasafns að vera fulltrúi bæjarins á fundinum.