Bæjarráð Grindavíkur - 1417. fundur
- 23.08.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1417
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Kostnaður vegna námsgagna í grunnskóla.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að skoða möguleika á að verða við tilmælum um frían grunnskóla þannig að sveitarfélagið leggi út fyrir kostnaði við ritföng og önnur gögn fyrir nemendur og stuðli þannig að enn meiri jöfnuði meðal nemenda í Grindavík. Með hagstæðum innkaupum og samnýtingu má minnka heildarkostnað við kaupin þegar upp er staðið.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir skólaárið 2017-2018.2. Tjaldsvæði: útboðsgögn
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Minnisblað bæjarstjóra og sviðsstjóra lagt fram og rætt, ásamt drögum að útboðsgögnum fyrir tjaldsvæðið. Reksturinn var boðinn út í árslok 2014, en tilboð voru ekki ásættanleg og var öllum hafnað.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar í umhverfis-og ferðamálanefnd.3. Íþróttamiðstöð: aukin sumaropnun um helgar
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Minnisblað forstöðumanns íþróttamannvirkja varðandi sumaropnun lagt fram.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umsagnar í frístunda- og menningarnefnd.4. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Vinnuáætlun lögð fram og forsendur ræddar. Drög að áætlun staðgreiðslu og skatttekna 2017 lögð fram.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti vinnuáætlun fjárhagsáæltunar 2017-2020 og drög að áætlun staðgreiðslu og skatttekna fyrir árið 2017.
5. Fundargerðir: Samtök sjávarútvegssveitarfélaga 2016
Fundargerðir 27 og 28 lagðar fram
Fundargerðir 27. og 28. funda lagðar fram.