Bæjarráð Grindavíkur - 1361. fundur
- 23.09.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1361
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Ræða breytingatillögu við verkefnið, sem feli í sér að hætt verði við lengingu hússins, en í staðinn verði byggt nýtt hús. Kostnaðaráætlun lögð fram.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir kostnaðaráætlun fyrir nýtt íþróttahús. Frumhönnun lögð fram og rædd.
Ármanni er falið að vinna frekari gögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.2. Gjaldskrár Grindavíkurbæjar
Ræðum gjaldskrár næsta árs og mögulega gjaldskrárstefnu.
Umræða um gjaldskrár Grindavíkurbæjar og forsendur næsta árs. Farið yfir gildandi gjaldskrá.
3. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Eignfærð fjárfesting 2015-2018 eins og hún var samþykkt út í fjárhagsáætlun 2014
Jón Þórisson fór yfir áætlun um eignfærða fjárfestingu eins og hún liggur fyrir í gildandi þriggja ára áætlun.
4. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Minnispunktar fra´fundi með FJR og ANR lagði fram, ásamt tillögu að kaupum sem rædd var í bæjarráði í maí.
Bæjarstjóri lagði fram minnispunkta frá fundi sínum með fulltrúum atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins vegna mögulegra kaupa eða leigu á landi á iðnaðarsvæði i5.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.5. Stofnun byggðasamlags um Brunavarnir Suðurnesja. Boð um viðræður.
Bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar gerðu grein fyrir umræðum á fundi með starfsmönnum Slökkviliðs Grindavíkur sem fram fór 22. september.
Bæjarráð samþykkir að hefja viðræður við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum um byggðasamlag um brunavarnir. Hvað svo sem viðræðurnar leiða í ljós er skýr krafa Grindavíkurbæjar að áfram verði starfandi slökkvilið í Grindavík, og að slökkvistöð og búnaður verði áfram af sambærilegum gæðum og nú er. Að greiningarvinnu lokinni skal leggja þær niðurstöður fyrir bæjarráð, áður en viðræðum verði haldið áfram.6. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Bæjarstjóri fór yfir breytingar sem gerðar hafa verið frá síðasta fundi.
Fulltrúi B-lista óskar eftir því að á bæjarstjórnarfundinum verði lagðar fram tvær útgáfur af orðalagi 66. gr.
Samþykkt samhljóða.
Umræðu frestað til næsta fundar.7. Öldungaráð á Suðurnesjum
Bæjarstjórn óskaði eftir því að félagsmálanefnd tilnefndi tvo fulltrúa í undirbúningshóp um stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum.
Félagsmálanefnd bókaði eftirfarandi.
Í ljósi þess að stefna Grindavíkurbæjar er að taka yfir rekstur hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrun, telur félagsmálanefnd rétt að Grindavíkurbær einbeiti sér að því að koma á fót Öldungaráði í Grindavík sem geti verið bæjarstjórn til samráðs um það verkefni.
Félagsmálanefnd telur eftir sem áður mikilvægt að halda góðu samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum um uppbyggingu þjónustu við eldri borgara á Suðurnesjum, en telur ekki tímabært að taka þátt í stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum að svo stöddu.
Bæjarráð tekur undir tillögu félagsmálanefndar um að ekki sé tímabært að taka þátt í stofnun Öldungaráðs á Suðurnesjum.8. Ósk um samstarf og stuðning við samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF)á komandi árum.
Samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs óskar eftir því að gerður verði samningur til nokkurra ára milli Grindavíkurbæjar og samtakanna, þar sem m.a. kom til árlegt framlag til samtakanna.
Bæjarráð hafnar því að gera langtímasamning við GFF.9. Beiðni um umsögn frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um hafnalög (ríkisstyrkir o.fl.)
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um hafnalög (ríkisstyrkir o.fl.).
Bæjarráð samþykkir að umsögn Grindavíkurbæjar verði óbreytt frá því að frumvarpið var lagt fram á vorþingi og felur bæjarstjóra að senda hana til umhverfis- og samgöngunefndar alþingis.