Bæjarráð Grindavíkur - 1322. fundur
- 02.07.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1322
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
1. Beiðni um viðbótarfjármagn vegna ráðningar umsjónarmanns félagsstarfs barna og ungmenna.
Minnisblað frístunda- og menningarfulltrúa lagt fram þar sem óskað er eftir viðbótarfjármagni á launalið félagsmiðstöðvarinnar um 400.000- 500.000 kr. vegna vanáætlunar við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2013.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 450.000 kr. sem kemur til lækkunar handbæru fé.2. Samningur milli Grindavíkurbæjar og GG um rekstur golfvallar 2013 - 2015
tillaga að uppfærðum samningi lögð fram.
Tillaga að uppfærðum samningi milli Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð vísar tillögunni til frístunda- og menningarnefndar til umfjöllunar og samráðs við GG.3. Beiðni um endurskoðun samnings GG og Grindavíkurbæjar vegna barna- og unglingastarfs GG fyrir árið 2013.
tillaga að uppfærðum samningi lögð fram.
Tillaga að uppfærðum samningi milli Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð vísar tillögunni til frístunda- og menningarnefndar til umfjöllunar og samráðs við GG.4. Samstarfssamningur Skógræktarfélags Grindavíkur, Skógræktarfélags Íslands og Grindavíkurbæjar.
tillaga að samningi lögð fram, ásamt uppdráttum sem sýna afmörkun svæðisins.
Tillaga að þríhliða samningi milli Grindavíkurbæjar, Skógræktarfélags Grindavíkur og Skógræktarfélags Íslands um ræktun uppgræðsluskógar á landspildu úr jörðinni Hópsheiði og yfir á Klifhólahraun lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggja fyrir bæjarstjórn staðfestingar.5. Garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja
Ræða hvort ástæða sé til að veita afsláttarkjör af garðslætti. Eldri borgarar hafa komið athugasemdum á framfæri.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2013 var ákveðið að leggja á gjald fyrir garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja. Slík gjaldtaka tíðkast mjög víða í sveitarfélögum. Ákveðið var að hafa gjaldið hóflegt og enga afslætti. Gjaldið er 2.000 kr fyrir smærri lóðir og 4.000 kr fyrir stærri lóðir. Til samanburðar má nefna að algengt er að gjald fyrir slátt fyrir eldri borgara og öryrkja í öðrum sveitarfélögum sé á bilinu 4.000-8.000 kr.
Grindavíkurbæ hafa borist ábendingar vegna gjaldtökunnar þar sem gerðar eru athugasemdir við að ekki séu tekjutengd afsláttarkjör.
Bæjarráð samþykkir að endurskoða gjaldið við vinnslu fyrir fjárhagsáætlun ársins 2014.6. Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata
Verðtilboð í skipulagsgerðina lagt fram.
Áætlun verkfræðistofunnar Eflu fyrir deiliskipulag fyrir miðbæ Grindavíkur 2. hluti lögð fram.
Verkefnið er á fjárhagsáætlun ársins 2013.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga til samninga við Eflu um verkefnið og hefja skipulagsgerðina.7. Skipulagslýsing fyrir gamla bæinn í Grindavík
Umsögn Hafnarstjórnar lögð fram ásamt áætluðum kostnaði við vinnuna.
Áætlun verkfræðistofunnar Eflu fyrir deiliskipulag gamla bæjarins lögð fram.
Verkefnið er á fjárhagsáætlun ársins 2013.
Jafnframt er lögð fram tillaga að skipulagslýsingu verkefnisins og umsögn hafnarstjórnar um hana.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga til samninga við Eflu um verkefnið og hefja skipulagsgerðina.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa skipulagslýsinguna skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.8. Ósk um sameiningu lóða - Seljabót 12 og Miðgarður 1
Umsögn Hafnarstjórnar er lögð fram.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
9. Umsókn um byggingarleyfi við Víðihlíð
Fasteignir ríkissjóðs óska eftir því að byggja þak yfir útbyggða glugga sbr. meðfylgjandi teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ dags. 18.04.2013
Fasteignir ríkissjóðs óska eftir því að byggja þak yfir útbyggða glugga sbr. meðfylgjandi teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ dags. 18.04.2013.
Bæjarráð samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingafulltrúa þegar skilyrði 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.10. Umsókn um byggingarleyfi Heiðarhraun 12
Sigmar J. Eðvarðsson kt. 020961-2289 og Linda Oddsdóttir, kt. 130061-3699, sækja um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús sitt. Meðfylgjandi eru teikningar frá Þórhalli Garðarssyni dags.apríl 2013.
Sigmar J. Eðvarðsson kt. 020961-2289 og Linda Oddsdóttir, kt. 130061-3699, sækja um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús sitt. Meðfylgjandi eru teikningar frá Þórhalli Garðarssyni dags.apríl 2013.
Bæjarráð samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingafulltrúa þegar skilyrði 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.11. Bygging reiðhallar í Grindavík
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt beiðni um stækkun byggingareits og landeigandi fallist á stækkun reiðvallar um 15 metra til austurs.
Framhald frá fundi 1320.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt beiðni um stækkun byggingareits um 15 metra til vesturs og landeigandi fallist á stækkun reiðvallar um 15 metra til austurs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.12. Rammaskipulag neðri hluta iðnaðarsvæðis merkt i5 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
Minnisblað Eflu verkfræðistofu dags. 3. júní 2013 um uppbyggingu veitna inn á iðnaðarsvæði merkt I5 skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er lagt fram.
Minnisblað Eflu verkfræðistofu dags. 3. júní 2013 um uppbyggingu veitna inn á iðnaðarsvæði merkt I5 skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er lagt fram.
13. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Samningur við Verksýn um verkeftirlit lagður fram.
Undirritaður samningur við Verksýn um verkeftirlit lagður fram til staðfestingar.
14. Lóð undir gróðurhús
Málið kynnt. Upphaflega var þeim kynnt lóð við Mölvík. Nú er komið í ljós að kostnaður og tímarammi fyrir að leggja hitaveitu frá Reykjanesvirkjun í Mölvik gerir það að verkum að þeir vilja skoða reit i5.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir aðila sem eru að kanna möguleika á að reisa gróðurhús á reit I5 skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030.
15. Viðræður um yfirtöku Grindavíkurbæjar á sjúkraflutningum HSS í Grindavík
Svar velferðarráðuneytis lagt fram, þar sem upplýst er að ráðuneytið getur ekki veitt meira fjármagni til verkefnisins að óbreyttum fjárlögum.
Framhald frá fundi 1312.
Svar velferðarráðuneytis lagt fram, þar sem upplýst er að ráðuneytið getur ekki veitt meira fjármagni til verkefnisins að óbreyttum fjárlögum.
Bæjarráð harmar hve langan tíma hefur tekið að fá svör frá ráðuneytinu vegna málsins og ítrekar andstöðu sína við breytingar á sjúkraflutningum í Grindavík, sem fela í sér að ábyrgð á flutningunum færast frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til Brunavarna Suðurnesja.16. Beiðni um greiðslu til söngnáms hjá Tónlistarskóla Akureyrar
Samningur milli jöfnunarsjóðs og sveitarfélaga um áframhaldandi stuðning við tónlistarnám nemenda utan lögheimilissveitarfélags er í endurskoðun og verður ekki tilbúinn fyrr en í ágúst. Þar af leiðandi er ekki hægt að afgreiða umsóknina fyrr en þá. Mögulega hægt að samþykkja með fyrirvara?
Bæjarráð samþykkir beiðnina með fyrirvara um að samningur milli ríkis og sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám verði endurnýjaður fyrir ágústlok.
17. Fundargerðir bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir 10.-12. fundar bygginganefndar íþróttamannvirkja.
Fundargerðir 10.-12. fundar bygginganefndar íþróttamannvirkja lagðar fram.
Bæjarráð felur bygginganefnd íþróttamannvirkja að finna útfærslu á framkvæmdinni sem tryggir að Gula húsið standi áfram og geti verið í notkun knattspyrnudeildarinnar á framkvæmdatíma.18. 658. stjórnarfundur S.S.S. Fundarboð og fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
19. 659.fundur haldin í stjórn Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum. Fundarboð og fundargerð.
Fundargerðin er lögð fram.
20. Hafnarstjórn Grindavíkur - 419
Fundargerðin er lögð fram.
21. Frístunda- og menningarnefnd - 22
Fundargerðin er lögð fram.
22. Fræðslunefnd - 19
Fundargerðin er lögð fram.
23. Félagsmálanefnd - 21
Fundargerðin er lögð fram.
24. 27.fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
25. 28. fundur Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Fundargerðin er lögð fram.
26. Fundargerðir 436. og 437. funda stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerðirnar er lagðar fram.
27. Skipulags- og umhverfisnefnd - 27
Fundargerðin er lögð fram.