Bæjarráð Grindavíkur - 1317. fundur
- 23.04.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1317
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Beiðni um styrk til malbikunar og frágangs á bílastæði við Húsatóftavöll og klæðningar golfskála
Umsögn frímenn lögð fram og óskar Sigmar Eðvarðsson eftir því að fylgja erindinu eftir.
Sigmar Eðvarðsson stjórnarmaður í Golfklúbbi Grindavíkur kom á fundinn og fylgdi erindinu eftir.
Umsögn frístunda-og menningarnefndar liggur fyrir og tekur hún jákvætt í beiðni um frágang bílastæða og leggur til að bæjarráð komi verkefninu inn á fjárhagsáætlun komandi ára. Er varðar beiðni um styrk vegna klæðningar á golfskálanum þá vísar nefndin til fyrri afgreiðslu vegna þessa erindis á 14. fundi frístunda- og menningarnefndar þann 17. október 2012.
Bæjarráð frestar afgreiðslu meðan beðið er frekari gagna.2. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs segir starfi sínu lausu
RR og IÞG koma á fundinn og gera tillögu að starfslysingu
Bæjarstjóri gerði grein fyrir minnisblaði sínu varðandi auglýsingu starfsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa tillögu að auglýsingu fyrir næsta bæjarstjórnarfund og leita tilboða hjá ráðningarfyrirtæki.3. Reglur um ferðaþjónustu hjá Grindavíkurbæ
Tillaga lögð fram.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom á fundinn og gerði grein fyrir tillögu félagsmálanefndar að reglum um ferðaþjónustu hjá Grindavíkurbæ.
Ábendingum bæjarráðs er vísað til frekari vinnslu í félagsmálanefnd og umsagnar þjónustumiðstöðvar.4. Innkaupareglur Grindavíkurbæjar. Endurskoðun
Tillaga að endurskoðuðum innkaupareglum lögð fram.
Tillaga að breytingum á innkaupareglum Grindavíkurbæjar lögð fram, ásamt minnisblaði sem tilgreinir helstu breytingar.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar sviðsstjóra og forstöðumanna bæjarins.5. Siðareglur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
Tillaga að dagsetningu og dagskrá lögð fram, ásamt tilnefningum í vinnuhóp. Stjórnendur tilnefna Jón Þórisson fyrir sína hönd.
Bæjarráð tilnefnir eftirfarandi í vinnuhóp til að vinna tillögu að siðareglum bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og stjórnenda. Í hópnum verða fulltrúar allra framboða í bæjarstjórn auk fulltrúa stjórnenda. Bæjarstjóri er starfsmaður hópsins.
Bryndís Gunnlaugsdóttir, Kristín María Birgisdóttir, Marta Sigurðardóttir, Guðmundur Pálsson og Jón Þórisson.
Ákveðið að halda opinn íbúafund um markmið, hlutverk og innihald siðareglna þann 6. maí næstkomandi og fá innlegg sérfræðings.6. Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012
Ársreikningur. Jón fer yfir ársreikninginn á fundinum.
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana hans vegna ársins 2012 er lagður fram. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir helstu atriðum.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi við 4. mgr. 61. gr. laga nr. 138/2011.7. Vinnuskóli Grindavíkur 2013
Minnisblað sviðsstjóra
Minnisblað með tillögum sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs varðandi fyrirkomulag Vinnuskóla Grindavíkur sumarið 2013 lagt fram. Gert er ráð fyrir sambærilegu fyrirkomulagi og undanfarin ár, þ.e. að 14 ára vinni í 19 daga, 15 ára vinni í 27 daga og 16 og 17 ára vinni í 36 daga.
Tímalaun verða eftirfarandi.
17 ára: 1.292 kr. með orlofi (var 1.379 kr.)
16 ára: 718 kr. með orlofi (var 585 kr.)
15 ára: 574 kr. með orlofi (var 495 kr.)
14 ára: 502 kr. með orlofi (var 405 kr.)
Frístunda- og menningarnefnd leggur til að tillögurnar verði samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tillögu frístunda- og menningarnefndar.8. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Fundargerðir 4 og 5 lagðar fram, ásamt teikningum.
Fundargerðir 4. og 5. fundar bygginganefndar lagðar fram. Auk þess eru lagðar fram teikningar og kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Bygginganefnd leggur til að verkefnið verði útvíkkað og samhliða verði gerðar breytingar á aðgangsstýringum, tölvukerfi og neyðarlýsingum innanhúss í öllu húsnæði grunnskólans að Ásabraut 2. Jafnframt að lýsing utanhúss verði endurnýjuð. Í fyrirliggjandi kostnaðaráætun er gert ráð fyrir þessum auka þáttum.
Bæjarráð samþykkir tillögur bygginganefndar og mun útboð fara fram á næstu vikum.