Bæjarráð Grindavíkur - 1426. fundur
- 22.11.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1426
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Víðihíð: Breytingar á reglum um úthlutun íbúða í Víðihlíð
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögu að breytingum á úthlutunarreglum íbúða í Víðihlíð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglurnar verði samþykktar.2. VMST: Húsnæðisbætur
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir breytingum á lögum um húnæðisbætur sem taka gildi um næstkomandi áramót. Við breytinguna falla húsaleigubætur niður í núverandi mynd og við taka húsnæðisbætur sem verða á ábyrgð Vinnumálastofnunar.
3. Fjárhagsáætælun: Viðauki vegna Króks
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögu að viðauka vegna þjónustusamnings við Skóla ehf. vegna Heilsuleikskólans Króks.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 16.900.000 kr. sem komi til lækkunar á lykil nr. 02562-4341 en til hækkunar á 04112-4341.4. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar: Ráðning
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tilboðum ráðningarstofa.
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Með ástæðulausri uppsögn núverandi bæjarstjóra sem getur kostað bæjarfélagið allt að 18 milljónum króna hlýtur meirihluti bæjarstjórnar að hafa ákveðinn aðila í huga, því telur fulltrúi framsóknarflokksins að um sýndarmennsku sé að ræða með þessu ráðningarferli og mun ekki taka þátt í því.
Fulltrúar D og G lista harma afstöðu fulltrúa B lista varðandi ráðningu nýs bæjarstjóra þar sem gefið er í skyn að þegar sé búið að ráðstafa stöðunni. Þær ásakanir eiga ekki við nein rök að styðjast og eru hreinn rógburður. Jafnframt lýsa fulltrúar D og G lista yfir furðu að fulltrúi B lista ætli sér ekki að taka þátt í því faglega ráðningarferli sem framundan er í stöðu bæjarstjóra.
Formaður bæjarráðs leggur til að sviðsstjóra verði falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda Hagvang, um ráðgjöf við ráðningu bæjarstjóra.
Tillagan er samþykkt með tveimur atkvæðum D- og G- lista. Fulltrúi B-lista situr hjá.5. Fjárhagsáætlun 2017: ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars 2017
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á árinu 2016, þ.e. 13,99%.
6. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Framhald frá síðasta fundi
Frestað.
7. Kjarasamningar kennara: áskorun grunnskólakennara í Grindavík
Áskorun grunnskólakennara í Grindavík lögð fram, þar sem kennarar lýsa yfir áhyggjum af stöðu og þróun kjaramála hjá kennurum.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur kennara af stöðu mála í viðræðum samninganefnda Kennarasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga, og vonar að samningsaðilar nái sáttum innan tíðar.8. Kvennaathvarfið: Styrkbeiðni
Kvennaathvarfið óskar eftir 200.000 kr. rekstrarstyrk fyrir starfsárið 2017.
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. rekstrarstyrk á árinu 2017.9. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
Vinnuverndarnefnd bókaði eftirfarandi á fundi sínum 9. nóvember síðastliðinn:$line$$line$Upphæð heilsustyrks í starfsmannastefnu - nefndin beinir þeirri ósk til bæjarráðs að upphæð heilsustyrks í starfsmannastefnu verði hækkuð á ný, í samræmi við hækkun vísitölu frá því að styrkurinn var lækkaður árið 2010.
Vinnuverndarnefnd Grindavíkurbæjar beinir þeirri ósk til bæjarráðs að upphæð heilsustyrks í starfsmannastefnu verði hækkuð á ný, í samræmi við hækkun vísitölu frá því að styrkurinn var lækkaður árið 2010.
Bæjarráð samþykkir að hækka styrkinn á árinu 2017 úr 20.000 kr. í 25.000 kr.10. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur: Bókaútgáfa um Guðberg Bergsson
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur hug á að ráðast í útgáfu á greinasafni erinda frá Guðbergsþingi sem haldið var 1. júní 2013, í tilefni þess að Guðbergur Bergsson var sæmdur doktorsnafnbót í heiðursskyni við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda.
Heildarkostnaður er áætlaður um 12 milljónir króna og er leitað til Grindavíkurbæjar og helstu fyrirtækja bæjarins um fjárstuðning að upphæð 2,5-3 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir að veita 1 milljón króna til verkefnisins og skorar á fyrirtæki í Grindavík til að leggja sitt af mörkum svo verkefnið verði að veruleika.