Bæjarráð Grindavíkur - 1488. fundur
- 21.08.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1488
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaramaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna breytinga á aðstöðu
Vegna þess að útistofa við Laut hefur verið dæmd ónothæf þarf að aðlaga starfsemina við þann veruleika að hún mun ekki verða notuð í vetur. Breytingar á starfseminni munu kosta 4.600.000 kr. það sem eftir lifir árs.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 sem því nemur.Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs óskar eftir 4.600.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun Leikskólans Lautar vegna ársins 2018 til að mæta þeim kostnaði sem hlýst af því að færa starfsemi sem verið hefur í útistofu við Laut inn í leikskólann.
Bæjarráð samþykkir viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.2. Tónlistarskólinn: Umfang náms
Kynnt áform um aukið samstarf tónlistarskóla og grunnskóla og áhrif þess á launaröðun skólastjóra og aðstoðarskólastjóra tónlistarskóla.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti áform um aukið samstarf tónlistarskóla og grunnskóla og áhrif þess á launaröðun skólastjóra og aðstoðarskólastjóra tónlistarskóla.
Bæjarráð samþykkir þá auknu þjónustu sem grunnskólanemendum verður veitt með samstarfinu sem og 250.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2018 og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.3. Miðgarður: Þekja, lagnir og raforkuvirki
Vegagerðin bauð út ofangreint verk. Þrjú tilboð bárust og Vegagerðin leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Hagtak hf. Óskað er samþykkis bæjarráðs. Hlutur hafnarsjóðs er áætlaður 50 m.kr. Gert var ráð fyrir þessari framkvæmd í fjárhagsáætlun 2018.
Vegagerðin bauð út tilboðsverk í þekju, lagnir og raforkuvirki við Miðgarð. Þrjú tilboð bárust og Vegagerðin leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Hagtak hf. Hlutur hafnarsjóðs er áætlaður 50 m.kr. Gert var ráð fyrir þessari framkvæmd í fjárhagsáætlun 2018.
Bæjarráð samþykkir tillögu Vegagerðarinnar um að gengið verði til samninga við Hagtak hf.4. Ný persónuverndarlöggjöf 2018: Undirbúningur og innleiðing
Fyrir liggur tillaga að samningi við Reykjanesbæ um persónuverndarfulltrúa.
Fyrir liggur tillaga að samningi við Reykjanesbæ um starf persónuverndarfulltrúa fyrir Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir samninginn.5. Sóknaráætlun SSS 2015: tilnefningar í samráðshóp
Óskað er eftir að Grindavíkurbær tilnefni fjóra aðila í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja óskar eftir því að Grindavíkurbær tilnefni fjóra aðila í úthlutunarnefnd sjóðsins.
Bæjarráð samþykkir að fresta málinu til næsta bæjarráðsfundar.6. Fjallskilanefnd: Erindi frá nefndarmanni
Bæjarráði hefur borist bréf þar sem þess er m.a. óskað að kosið verði aftur í fjallskilanefnd.
Bæjarráði hefur borist bréf þar sem þess er m.a. óskað að kosið verði aftur í fjallskilanefnd.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að leita eftir frekari sjónarmiðum vegna málsins.8. Rekstraryfirlit janúar-júní 2018: Grindavíkurbær og stofnanir
Rekstaryfirlit janúar til júní 2018 lagt fram.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2018 fyrir tímabilið janúar - júní 2018.
9. Innri leiga Eignasjóðs: Viðauki við fjárhagsáætlun 2018
Endurútreikningur innri leigu 2018 að teknu tilliti til fjárfestinga árið 2017.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 vegna endurreiknings á innri leigu. Viðaukinn felur í sér lækkun gjalda hjá aðalsjóði að fjárhæð 55.863.153 kr. og lækkun gjalda hjá þjónustumiðstöð að fjárhæð 2.004.033 kr. Á móti lækka tekjur Eignasjóðs um 57.867.186 kr.
Bæjarráð samþykkir viðaukann.10. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2018
Fundargerð 733. fundar, dags. 8. ágúst 2018, lögð fram til kynningar.
Fundargerð 733. fundar, dags. 8. ágúst 2018, lögð fram til kynningar.