Bæjarráð Grindavíkur - 1464. fundur
- 21.11.2017
- Fundargerð
- Kl. 19:00 - 21:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1464
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla við Hraunbraut: Húsnæðismál
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mættu á fundinn og kynntu málið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kanna áhuga á daggæslu í heimahúsi gegn sérstökum húsnæðisstyrk.2. Gjaldskrá Fráveitu Grindavíkurbæjar
Tillaga um að lækka a lið 3. gr. gjaldskrár fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Grindavíkurbæ, nr. 565 frá 10. júní 2015, í 0,051%
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lækka a lið 3. gr. í gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Grindavíkurbæ, nr. 565 frá 10. júní 2015, í 0,075%.
3. Gjaldskrá Vatnsveitu
Tillaga um lækkun á vatnsgjaldi á íbúðarhúsnæði, sbr. gjaldskrá nr. 752 frá 28. ágúst 2012, í 0,055% og lækkun á vatnsgjaldi atvinnuhúsnæðis í 0,2%
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn lækkun í 1. gr. Gjaldsskrár um Vatnsveitu Grindavíkur, nr. 752 frá 28. ágúst 2012, á álagningarhlutfalli vatnsgjalds vegna eigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4 frá 1995 í 0,055% og vegna eigna skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4 frá 1995 í 0,2%.
4. Fjárhagsáætlun 2018: Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars 2018
Útsvarshlutfall 2017 er 13,99%. Forsendur í fjárhagsáætlun 2018 miða við óbreytt útsvarshlutfall.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að útsvarshlutfall á árinu 2018 verði áfram 13,99%.
5. Fasteignagjöld: Álagningarreglur 2018
Bæjarráð samþykkir framlagðar álagningarreglur og vísar þeim til staðfestinar í bæjarstjórn.
6. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum: Tekjuviðmið 2018
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hækka tekjuviðmið á árinu 2018 um 3%
7. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2018
Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til staðfestinar í bæjarstjórn.
8. Fjárhagsáætlun 2018-2021: Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarráð þarf að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að uppfæra áætlunina miðað við umræður á fundinum og samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2018-2021 til síðari umræðu í bæjarstjórn þannig breyttri.
9. Fjárhagsáætlun 2017: Beiðni um viðauka vegna tölvudeildar
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 vegna sérfræðiþjónustu hjá tölvudeild að fjárhæð 2.000.000 kr.
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 vegna sérfræðiþjónustu hjá tölvudeild að fjárhæð 2.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.000.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.10. Fjárhagsáætlun 2017: Beiðni um viðauka vegna skólasels
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka á launaliði skólasels að fjárhæð 3.070.000 sem verði fjármagnaður með hækkun tekna skólasels að fjárhæð 830.000 og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 2.240.000 kr.
11. Rekstraryfirlit janúar-september 2017: Grindavíkurbær og stofnanir
Rekstaryfirlit janúar til sept 2017 lagt fram ásamt skýringum forstöðumanna.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu frávik rekstrar frá fjárhagsáætlun 2017 fyrir tímabilið janúar - september 2017.
12. Breyting á lögreglusamþykkt: Ályktun um gistingar á sérmerktum svæðum
Fyrir liggja drög að lögreglusamþykkt fyrir Suðurnes
Lögð fram drög að lögreglusamþykkt fyrir Suðurnes.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.13. Leikskólar: Ályktun um stöðu barna
Fræðslunefnd ítrekar fyrri bókun og vísar málinu til bæjarráðs til umfjöllunar.
Ályktun fræðslunefndar lögð fram. Bæjarráð hyggst vinna málið áfram í samstarfi við sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og stjórnendur leikskóla.
14. Körfuboltavél: ósk um styrk frá unglingaráði körfukn. UMFG
Erindi frá unglingaráði körfuknattleiksdeildar UMFG. Óskað er eftir styrk vegna kaupa á körfuboltavél.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.