Bæjarráð Grindavíkur - 1439. fundur
- 21.03.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1439
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Lagðar fram kostnaðaráætlanir og beiðni um viðauka
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Drög að samningi við 240 ehf. lögð fram.
Sviðsstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagáætlun ársins 2016 vegna framkvæmda á svæðinu.
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð 14.000.000 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 14.000.000 kr. sem verði fjármagnaður með hækkun á áætlun gatnagerðargjalda að fjárhæð 10.000.000 kr. og lækkun á handbæru fé að fjárhæð 4.000.000 kr.2. Ársuppgjör 2016: Grindavíkurbær og stofnanir
Yfirlit frávika frá áætlun 2016.
Yfirlit helstu frávika í rekstri frá fjárhagsáætlun 2016 lagt fram.
3. Nefndarsvið Alþingis: beiðni um umsögn, 120. mál, afnám lágmarksútsvars
Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 120. mál.$line$Umsagnarfrestur er til 30. mars nk.
Bæjarráð Grindavíkur ræddi frumvarpið í desember 2014 og afstaða þess hefur ekki breyst. Þá taldi bæjarráð mikilvægt að við mat á því hvort æskilegt væri að afnema lágmarksútsvar, yrðu könnuð áhrif slíkra breytinga á aðra tekjustofna sveitarfélaga, ekki síst Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og framlög hans til sveitarfélaga sem kjósa að afnema lágmarksútsvar.
4. Rósa S Baldursdóttir: Umsókn um launalaust leyfi
Bæjarráð samþykkir erindið.
5. Kvikan: breytt nýting eða sala
Stjórn Kvikunnar leggur til að leitað verði leiða að bæta reksturinn með því að auglýsa eftir rekstaraðilum inn í húsið.
Bæjarráð tekur undir með stjórn Kvikunnar og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.