Bæjarráð Grindavíkur - 1413. fundur
- 21.06.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- á skrifstofu bæjarstjóra
- Fundur nr. 1413
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
1. Beiðni um umsögn: umsókn Rutar Jónsdóttur um rekstrarleyfi vegna gististaðar í flokki I að Suðurvör 5
Umsögn vegna heimagistingar
Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við umsóknina.
Sviðsstjóra fjármála-og stjórnsýslusviðs falið að endurreikna fasteignagjöld af eigninni til samræmis við breytta nýtingu.2. Fjárhagsáæltun 2016: Samþykktir viðaukar ársins
Jón Þórisson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti fjárhagsáætlun ársins 2016 með samþykktum viðaukum.
3. Fundargerðir: Heklan 2016
Fundargerð 50. fundar til kynningar
Fundargerð 50. fundar lögð fram til kynningar.
4. Fundargerðir: Þjónustuhópur aldraðra á Suðurnesjum - safnmál
Fundargerðir 102. og 103. fundar til kynningar
Fundargerðir 102. og 103. fundar lagðar fram til kynningar.
5. Héraðsnefnd Suðurnesja: fundargerð og slit nefndar
Fundargerð 2. fundar slitastjórnar Héraðsnefndar Suðurnesja lögð fram, ásamt skýrslu um slit héraðsnefndarinnar.
6. Kvenfélag Grindavíkur: Ósk um styrk vegna leigu á sal
Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir styrk á móti leigu á sal Iðunnar vegna páskabingós.
Samþykkt samhljóða.7. Markaðsstofa Reykjaness: sókn í markaðsmálum
undirritaður samningur lagður fram til staðfestingar
Á fundi 1403 fól bæjarráð bæjarstjóra að undirrita samstarfssamning um sókn í markaðsmálum á Reykjanesi fyrir hönd Grindavíkurbæjar, og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Markmið samningsins er að sveitarfélögin á Suðurnesjum, ásamt Samtökum atvinnurekenda og Markaðsstofu Reykjaness taki höndum saman um efla ímynd Reykjaness.
Samningurinn er lagður fram, en öll sveitarfélög á Suðurnesjum hafa undirritað samskonar samninga.
Bæjarráð staðfestir samninginn.8. Vinabæjarheimsókn: Saltfiskhátíð í Ilhavo í Portugal
Bæjarstjóri segirfrá heimsókn gesta frá Ilhavo. $line$$line$Taka ákvörðun um fulltrúa sem fara til Ilhavo á saltfiskhátiðina.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir heimsókn bæjarstjóra Ilhavo ásamt föruneyti um Sjómannadagshelgina. Jafnframt er lögð fram verkefnistillaga Íslandsstofu um þátttöku Grindavíkurbæjar á Íslandsdegi á árlegri Saltfiskhátíð í Ilhavo 17.- 21. ágúst.