Bæjarráð Grindavíkur - 1379. fundur
- 21.04.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1379
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Dagvistun barna: fjölgun rýma í dag-og leikskólavistun
Sviðsstjóri kemur á fundinn og ræðir möguleika á fjölgun rýma. Engin fylgigögn
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og bæjarstjóri gerðu grein fyrir hugmyndum og vinnu við fjölgun rýma í dagvistun og leikskóla.
Bæjarráð felur félagsþjónustu- og fræðslusviði að vinna minnisblað með möguleikum á fjölgun rýma í dagvistun og leikskóla.2. Ársuppgjör 2014: Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur 2014
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti ársreikning Grindavíkurbæjar og stofnana hans fyrir árið 2014, og fór yfir helstu frávik í rekstri.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.3. Fjölmenningarstefna: tillaga B-lista
Verkefnislýsing lögð fram, ásamt tillögu að verkefnishópi
Verkefnislýsing lögð fram að nýju, ásamt tillögu að verkefnishópi.
Bæjarráð samþykkir verkefnislýsinguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 750.000 kr. Janframt felur bæjarráð bæjarstjóra að vera verkefnisstjóra verkefnisins og boða verkefnishópinn til fundar.4. Málefni eldri borgara: Fundargerð bæjarráðs Sandgerðisbæjar
Lagt fram til upplýsingar
Fundargerð bæjarráðs Sandgerðisbæjar þann 24. mars 2015 lögð fram.
Bæjarráð tekur undir með bæjarráði Sandgerðisbæjar að fjölga þurfi hjúkrunarrýmum á Suðurnesjum.5. Ósk um aukafjárveitingu: Hitalagnir í gömlu sundmiðstöð.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram, þar sem hann gerir grein fyrir því að við upphaf framkvæmda í gömlu sundmiðstöðinni hafi komið í ljós að hitalagnir eru ónýtar. Fer hann fram á viðauka við fjárhagsáætlun ársins að fjárhæð 2.000.000 kr. til endurnýjunar hitalagna.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 2.000.000 kr.6. Vatnstankur í Þórkötlustaðarhverfi: fyrirspurn um sölu.
Arnar Freyr Jónsson hefur óskað eftir viðræðum við Grindavíkurbæ um möguleg kaup á gömlum vatnstanki við Austurveg. Markmið Arnars er að breyta vatnstanknum í Micro-hús, sem yrði hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar í skipulagsnefnd á fundi sínum þann 19. janúar síðastliðinn.
Arnar hefur kynnt verkefnið fyrir nefndinni og lagt fram teikningar. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði lóð undir mannvirkið áður en gengið verði til samninga um sölu.
Bæjarráð samþykkir að stofnuð verði lóð undir mannvirkið og hafnar verði viðræður við umsækjandann um kaup á eigninni á grundvelli framlagðrar tillögu.