Bæjarráð Grindavíkur - 1364. fundur
- 22.10.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1364
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Íþróttamannvirki áfangi 2.
Samanburður á kostnaðaráætlun og raunkostnaði. Staðan á verkefninu rædd. Ármann og Sigmar koma til fundarins.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Sigmar B. Árnason byggingafulltrúi komu á fundinn og gerðu grein fyrir áætluðum heildarkostnaði við verkefnið og samanburði við fjárhagsáætlun.
2. Starfslok leikskólastjóra á Laut
Framhald frá fundi 1353.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom inn á fundinn og gerði grein fyrir því að skólastjóri Leikskólans Lautar hyggist láta af störfum vegna aldurs. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.3. Fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar 2015-2018
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2015 og þriggja ára rammaáætlun 2016-2018.
Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.4. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Umsögn sambandsins lögð fram.
Bæjarstjóri kynnti umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillöguna.
Bæjarráð vísar tillögu að nýrri Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar til síðari umræðu í bæjarstjórn, með áorðnum breytingum.5. Búsetumál eldri borgara í Grindavík
Framhald frá síðasta fundi.
Bæjarstjóri kynnti kostnaðaráætlun vegna byggingar fjögurra íbúða viðbyggingar við Víðihlíð.
Bæjarráð vísar kostnaðarmatinu til fjárhagsáætlunargerðar.6. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Ræða hvort við eigum að fá fasteignasala til að meta landið fyror okkar hönd. Ríkið hefur fengið VSÓ til að gera það fyrir sína hönd.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu viðræðna við fjármálaráðuneytið um kaup eða leigu á landi á iðnaðarsvæði i5.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.7. Beiðni um stofnframlag til búsetuúrræðis Þroskahjálpar á Suðurnesjum
Þroskahjálp á Suðurnesjum óskar eftir 10 milljóna kr. framlagi frá sveitarfélögunum á Suðurnesjum til að breyta húsnæði Þroskahjálpar að Suðurvöllum 7-9 í einstaklingsíbúðir fyrir fatlaða einstaklinga, 6 íbúðir ásamt þjónusturými. Hlutur Grindavíkurbæjar væri 2 milljónir kr.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, enda nægt framboð af þjónustuíbúðum fyrir fatlað fólk í Grindavík.8. Ósk um styrk til að græða upp og styrkja gróður í beitarhólfi
Fjáreigendafélag Grindavíkur óskar eftir 500.000 kr. styrk á árinu 2015 til kaupa á áburði til uppgræðslu lands í beitarhólfi austur við Krýsuvík.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að veitt verði 100.000 kr. til verkefnisins á árinu 2015.9. Veðleyfi á 1. veðrétt vegna lántöku Víkurbrautar 58 ehf.
Framhald frá fundi 1362.
Bæjarstjóri leggur fram tillögu að samkomulagi um veðflutning.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulaginu og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.10. Nýtt launakerfi fyrir Grindavíkurbæ
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs óskar eftir heimild til að ganga til samninga við Applicon um nýtt launakerfi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að ganga til samninga við Applicon.11. Ósk um niðurfellingu á leigu vegna lokahófs Knattspyrnudeildar 2014
Knattspyrnudeild UMFG óskar eftir styrk á móti leigu vegna lokahófs knattspyrnudeildar 2014.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.