Bæjarráð Grindavíkur - 1629. fundur
- 22.11.2022
- Fundargerð
- Kl. 15:00 - 17:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1629
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Helga Dís Jakobsdóttirvaraformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Öldungaráð Grindavíkurbæjar - Fundur með bæjarráði
Öldungaráðið hefur óskað eftir fundi með bæjarráði og mætir undir þessum dagskrárlið.
Bæjarfulltrúarnir Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Gunnar Már sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Stjórn öldungaráðs Grindavíkurbæjar mætti til fundar við bæjarráð og fóru þau yfir áherslumál sem hvíla á eldri borgurum.2. Nýr leikskóli í Hlíðarhverfi - undirbúningur og hönnun
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mun sitja fundinn undir dagskrárliðnum. Tillaga að breytingum á hönnun nýs leikskóla lagðar fram til umræðu. Breytingin snýr fyrst og fremst að því að tæknirými fyrir loftræstingu ásamt geymslu er fært niður í kjallara ásamt breytingum á þakvirki.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga að breytingum á hönnun nýs leikskóla lagðar fram til kynningar. Breytingin snýr fyrst og fremst að því að tæknirými fyrir loftræstingu ásamt geymslu er fært niður í kjallara ásamt breytingum á þakvirki.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með þessar breytingar.3. Fyrirspurn vegna svæðis við Hafnargötu
Málið lagt fyrir bæjarráð til að fá nánari umræður um næstu skref varðandi umrætt svæði og hver vilji bæjarráðs er.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir áhugasömum aðilum um uppbyggingu á reitnum á horni Mánagötu og Hafnargötu. Samkvæmt aðalskipulagi skal uppbyggingin vera verslunar-og/eða þjónustustarfsemi.4. Fundur Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni 4. nóvember 2022
Fundargerð eftir fund Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni þann 4. nóvember 2022 lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fundargerð upplýsingafundar Grindavíkurbæjar með Vegagerðinni þann 4. nóvember 2022 lögð fram til kynningar.5. ADHD samtökin - styrkbeiðni
Samtökin óska eftir styrk frá Grindavíkurbæ.
Lögð fram styrkbeiðni frá ADHD samtökunum.
Bæjarráð samþykkir 100.000 kr. styrk af styrktarlið bæjarráðs.6. Rekstraryfirlit janúar - september 2022
Rekstraryfirlit vegna janúar - september 2022 lagt fram.
Rekstraryfirlit janúar til september 2022 er lagt fram.
7. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar fyrir árið 2023
Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar lögð fram.
Vísa þarf til bæjarstjórnar til samþykktar.Tillaga að þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar lögð fram.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til samþykktar í bæjarstjórn.8. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum - Tekjuviðmið 2023
Tekjuviðmið lögð fram.
Vísa þarf til bæjarstjórnar til samþykktar.Tillaga að tekjuviðmiðum vegna afsláttar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi til elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2023 eru lögð fram.
Bæjarráð vísar tekjuviðmiðum til samþykktar í bæjarstjórn.9. Álagningareglur fasteignagjalda 2023
Álagningarreglur 2023 lagðar fram.
Vísa þarf til bæjarstjórnar til samþykktar.Tillaga að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2023 eru lögð fram.
Bæjarráð vísar álagningarreglunum til samþykktar í bæjarstjórn.10. Fjárhagsáætlun 2023-2026 - Grindavíkurbær og stofnanir
Lokastaða áætlunar 2023-2026 lögð fram. Vísa þarf henni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Drög að fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2023-2026 er lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að vísa áætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundinum.