Bæjarráð Grindavíkur - 1475. fundur
- 20.03.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1475
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Valgerður Jennýjardóttirvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Verkefnislýsing nefndar lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að nýta þá fjármuni sem eru nú þegar í fjárhagsáætlun 2018, vegna daggæslu, leikskóla og grunnskóla, að byggja við Hópsskóla sem svo gæti nýst sem úrræði fyrir daggæslu.
Bæjarráð ásamt, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og sviðsstjóra félagsþjónustu og fræðslusviðs, munu vinna málið áfram.2. Hópið: Aðstaða milli Hóps og stúku
Málið var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs og þá frestað til næsta fundar.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindi frá Knattspyrnudeild um hönnun húsnæðis við Hóp og stúku sem kosta mun 237,5 milljónir kr. í byggingu, samkvæmt frumkostnaðaráætlun, fyrir utan hönnunarkostnað sem áætlaður er 26 milljónir kr.
Fundarhlé tekið kl. 18:00 - 18:15
Bókun frá fulltrúa B-lista
Fulltrúi B lista heldur sig við þá ákvörðun sem tekin var í fjárhagsáætlunargerð sl. haust að leggja til 110 milljónir árin 2018 - 2019 svo hægt yrði að byggja aðstöðu við Hópið sem innihéldi salerni, aðstöðu fyrir veitingasölu og skiptiklefa. Hönnunin sem lögð er fyrir bæjarráð er langt umfram það sem rætt var eða í kringum 800 fermetrar og kostnaður yfir 230 milljónir. Þar að auki mun þessi bygging vera dýrari í rekstri en sú sem áætluð er. Á sama tíma og lögbundin verkefni, svo sem fræðslumál mega við því að fá viðbótarhúsnæði og aukna fjármuni til rekstrarins er ekki ásættanlegt að auka byggingarmagn á íþróttasvæðinu og rekstrarkostnað umfram það sem ákveðið var í síðustu fjárhagsáætlun.
Fulltrúi B-lista
Bókun frá fulltrúa D-lista
Fulltrúi D-lista vill að haldið verði áfram með hönnunarvinnu í samræmi við tillögur knattspyrnudeildar. Þó að hönnunarvinnan sé kláruð hljóti að vera hægt að skipta upp verkinu síðar.
Fulltrúi D-lista
Bókun frá fulltrúa G-lista
Fulltrúi G-lista tekur undir með fulltrúa B-lista með frumkostnað á nýju mannvirki knattspyrnudeildarinnar. 26 milljón króna hönnunarkostnaður á byggingu sem er rúmlega 100% umfram þann kostnað sem settur var fram í fjárhagsáætlun er of mikill. Það er ríkur vilji G-listans að koma upp bæði salernisaðstöðu og veitingaaðstöðu ásamt því að settir verði skiptiklefar í aðstöðu knattspyrnudeildarinnar við Hópið. Sú áætlun þarf einfaldlega að vera í samræmi við fyrirliggjandi áætlun.
Fulltrúi G-lista
Bæjarráð hafnar erindinu með 2 atkvæðum Ásrúnar og Kristínar Maríu, gegn atkvæði Hjálmars.3. Rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV: Bláa Lónið hf.
Óskað er eftir umsögn vegna umsókna frá Bláa Lóninu vegna rekstrarleyfis fyrir veitingastaði, hótel og afþreyingarlaug.
Sýslumannsembættið á Suðurnesjum hefur sent Grindavíkurbæ umsóknir frá Bláa Lóninu um rekstrarleyfi að Norðurljósavegi 9-11. Fyrir liggja umsagnir frá Slökkviliði Grindavíkur, byggingarfulltrúa Grindavíkurbæjar og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja þar sem fram kemur að rekstrarleyfið nái til eftirfarandi reksturs:
1. Moss restaurant, veitingastaður sem rúmar allt að 60 gesti.
2. SPA restaurant, veitingastaður sem rúmar allt að 40 gesti.
3. Hótel með 150 rúmum í 62 gistirýmum, ásamt gestamóttöku þar sem hægt er að taka á móti allt að
200 gestum. Morgunverðarsalur í gestamóttöku hótels, sem rúmar allt að 60 gesti.
4. Afþreyingarlaug skv. reglugerð nr. 460/2015 og baðhús fyrir allt að 200 gesti.
Bæjarráð mælir með veitingu leyfisins.4. Kosningar: Sveitarstjórnarkosningar 2018
Kjósa þarf aðalmann í kjörstjórn Grindavíkurbæjar.
Tillaga um að Þorgerður Herdís Elíasdóttir verði aðalmaður í kjörstjórn í stað Jónínu Ívarsdóttur.
Samþykkt samhljóða5. Svæðisskipulag Suðurnesja: Fundarbókun
Á fundi Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja var minnisblað um Málþing og íbúaþróun á dagskrá. Á fundinum var gerð bókun sem óskað var að tekin væri til umfjöllunar hjá bæjarfélaginu.
Lögð fram bókun af fundi Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja þann 7. mars sl. vegna minnisblaðs um Málþing um íbúaþróun.