Bæjarráð Grindavíkur - 1472. fundur
- 20.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1472
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þórir Sigfússonvaramaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla barna í heimahúsi: Reglur
Drög að reglum um daggæslu í Grindavík lagðar fram. Samþykktar í félagsmálanefnd og vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Lagður til aukinn almennur stuðningur við starfsemi dagforeldra.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Drög að reglum um daggæslu í Grindavík lagðar fram. Þær hafa veirð samþykktar í félagsmálanefnd sem vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs. Í þeim er lagður til aukinn almennur stuðningur við starfsemi dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.2. Golfklúbbur Grindavíkur: Íslandsmót 35+ í Grindavík
Ósk frá Golfklúbbi Grindavíkur um stuðning og styrk vegna umsóknar um að halda íslandsmót í golfi 35+ næstu 3-5 árin. Stuðningur samþykktur í frístunda- og menningarnefnd, ósk um styrk vísað til bæjarráðs.
Ósk frá Golfklúbbi Grindavíkur um stuðning og styrk vegna umsóknar um að halda íslandsmót í golfi 35+ næstu 3-5 árin. Stuðningur samþykktur í frístunda- og menningarnefnd, ósk um styrk vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir 300.000 kr. styrk á árinu 2018 og að annað fyrirkomulag á mótstíma verður útfært nánar í samráði við sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og lagt fyrir bæjarráð.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 300.000 kr. sem tekinn verði af handbæru fé.3. Lögreglusamþykkt fyrir Grindavíkurbæ
Fyrir liggur tillaga að sameiginlegri lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélög í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum
Lögð fram drög að lögreglusamþykkt sem gildi fyrir öll sveitarfélögin í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.
Bæjarráð vísar lögreglusamþykktinni til bæjarstjórnar.4. Markaðsstofa Reykjaness: Áfangastaðaáætlun
Mælst er til þess að sveitarfélagið og nefndir þess skoði drög að áfangaáætlun Reykjaness og skili athugasemdum og tillögum fyrir áframhaldandi vinnu við gerð skýrslunnar.
Markaðsstofa Reykjaness mælist til þess að sveitarfélagið og nefndir þess skoði drög að áfangaáætlun Reykjaness og skili athugasemdum og tillögum fyrir áframhaldandi vinnu við gerð skýrslunnar.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og ferðamálanefnd.5. Fundargerðir: Kvikan 2018
Lögð fram fundargerð stjórnar Kvikunnar, greinargerð um aðsókn og áætlun um opnunartíma sumarið 2018. Enn framur viðhaldsáætlun og skýrsla um ástand hússins.
Lögð fram fundargerð stjórnar Kvikunnar, greinargerð um aðsókn og áætlun um opnunartíma sumarið 2018. Ennfremur viðhaldsáætlun og skýrsla um ástand hússins.
Bæjarráð samþykkir að Kvikan verði opin næsta sumar frá miðjum maí til miðjan ágúst og að rekstur Kvikunnar árið 2018 fari ekki yfir þau framlög sem eru í fjárhagsáætlun.6. Lánasjóður sveitarfélaga: Framboð til stjórnar
Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum í stjórn sjóðsins.
Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Bæjarstjóra er falið að koma tilnefningu í stjórn á framfæri við kjörnefnd.