Bæjarráð Grindavíkur - 1448. fundur
- 20.06.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1448
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Þórir Sigfússonvaramaður
1. íþróttamannvirki: Áfangi 3, hönnun
Taka þarf afstöðu til liðar 8 í fundargerð.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Fundargerð verkefnisnefndar íþróttamannvirkja, dags. 7. júní sl. lögð fram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka til að klára hönnun á mannvirkinu á árinu 2017 en í fjárhagsáætlun 2016 voru 30.000.000 kr. vegna hönnunarinnar en það fé nýttist ekki á því ári. Gert er ráð fyrir að sá hönnunarkostnaður verði 30.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 30.000.000 kr sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.
Tillaga
Bæjarráð samþykkir að kálfurinn verði rifinn og að farið verði í jarðvegsframkvæmdir nú í haust þannig að bygging hússins getur hafist strax í ársbyrjun 2018. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að gera verðkönnun og í kjölfarið að koma með viðaukabeiðni til bæjarráðs.
Samþykkt með 2 atkvæðum, Ásrún greiðir atkvæði á móti.
Bókun
Sú tillaga nefndarinnar að taka út ákveðna verkliði úr heildarútboði og hefja jarðvinnu og niðurrif á ,,kálfi“ geta undirritaðar ekki stutt.
Eins og sviðsstjóri skipulags - og umhverfissviðs bendir á í fundargerð nefndarinnar þann 7. júní sl. þá er mikilvægt að skilgreina verkliði vel og samræmingu byggingastjóra milli verkliða.
Í þeim þrönga húsakosti sem til staðar er gegnir ,,kálfurinn“ stóru hlutverki og mikilvægt er að nýta hann eins lengi og kostur er.
Einnig skal það tekið fram að ekki er búið að samþykkja teikningar af framkvæmdinni né klár kostnaðaráætlun og eru það vinnubrögð sem okkur hugnast ekki og ekki til heilla fyrir Grindavíkurbæ.
Fulltrúar B og S lista2. Tjaldsvæði: Smáhýsi
240 hafa hug á því að greiða fyrir gerð bílastæða vestan við tjaldsvæðahús eins og var áætlað upprunalega.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð óskar eftir að forsvarsmenn 240 ehf. komi til fundar við bæjarráð á næsta bæjarráðsfund.3. Ísland ljóstengt 2017: styrkur 2017
Taka þarf ákvörðun um hve mikið á að innheimta fyrirtæki fyrir tengingu. Tæknideild leggur til 800.000 - 1.000.000 kr. í ljósi kostnaðar við lagningu strengsins og hve fyrirtækin eru fá
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð samþykkir að tengigjöld fyrirtækja verði 800.000 kr.4. Melhólsnáma: Vinnsluáætlun
Jón og Margeir hafa sótt um að fá að nýta námuna. Tæknideild lét vinna vinnsluáætlun og drög að samning. Tæknideild leggur til að gengið verði til samninga við Jón og Margeir, samningurinn er á bls 12. bæjarráð þarf að taka ákvörðun um hvort þau vilji bjóða þetta út eða ganga beint til samninga við Jón og Margeir. álit lögfræðings er einnig sem fylgiskjal.$line$-kv Ármann
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð samþykkir að bjóða út nýtingu námunnar, umsýslu tippsins og frágangs á svæðinu í samræmi við vinnsluáætlun.5. Rekstrarleyfi veitingastaðar: Bláa lónið
Bláa lónið sækir um rekstrarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki III.
Bláa lónið sækir um rekstrarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki III.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.6. Rekstrarleyfi gististaðar: MAR Guesthouse
Sótt er um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Sótt er um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.7. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.9. Grindavíkurhöfn: Ósk um viðauka
Ósk um 7.500.000 kr viðauka vegna kaupa á löndunarkrana
Hafnarstjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 7.500.000 kr. vegna kaupa á löndunarkrana.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 7.500.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.10. Grunnskóli Grindavíkur: Beiðni um viðauka 2017, leiktæki á skólalóð
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri óskar eftir viðauka að fjárhæð 4.500.000 kr. til að setja upp leiktæki á skólalóðinni á Ásabraut.
Skólastjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 4.500.000 kr. til að setja upp leiktæki á skólalóðinni á Ásabraut.
Beiðni um viðauka er hafnað með 2 atkvæðum gegn atkvæði Ásrúnar.
Bókun
Í ljósi þess að mikið var skorið niður til Grunnskólans í fjárhagsáætlun ársins 2017 þá er ákvörðun fulltrúa Lista Grindvíkinga og Sjálfstæðismanna merkileg. Ákvörðun að láta leiktækið vera í geymslu þannig að nokkur hundruð nemenda fái ekki notið þess á næsta skólaári er skýrt dæmi þess hver forgangsröðun meirihlutans er.
Fulltrúar B og S lista.
Bókun
Meirihluti bæjarráðs bendir á að stjórnandi skólans verði að fara eftir fjárhagsáætlunum. Hann óskaði eftir fjármagni til viðhalds og uppsetningar á eldri leiktækjum á skólalóð samkvæmt fjárhagsáætlun 2017. Hins vegar er búið að fjárfesta í nýju leiktæki að fjárhæð tæpar 4,4 milljónir króna. Nú er óskað eftir viðauka upp á 4,5 milljónir króna vegna kostnaðar við uppsetningar á leiktækinu. Að þessu gefnu er ekki hægt að samþykkja beiðnina heldur skoða málið í fjárhagsáætlunum næsta haust.
Fulltrúar D- og G-lista
Tillaga
Lagt er til að vísa erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu vegna fjárhagsáætlunar 2018.
Samþykkt samhljóða11. Grunnskóli Grindavíkur: Beiðni um viðauka 2017, námsgagnakaup
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri óskar eftir viðauka að fjárhæð 3.500.000 til kaupa á námsgögnum fyrir nemendur skólaárið 2017-2018.
Skólastjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 3.500.000 kr. til kaupa á námsgögnum fyrir nemendur skólaárið 2017-2018.
Beiðni um viðauka er hafnað með 2 atkvæðum gegn atkvæði Ásrúnar.
Bókun
Á bæjarstjórnarfundi í lok nóvember sl. var bent á að hægt hefði verið að mynda samstarfsvettvang þegar Foreldrafélag Grunnskóla Grindavíkur gerði það að tillögu sinni að bærinn tæki þátt í námsefniskostnaði nemenda. Beiðni félagsins hefði mátt útfæra eða skoða betur og sýna þar með ákveðinn samstarfsvilja. Rök skólastjóra eru haldbær og skýr þar sem m.a. er vitnað í grunnskólalögin, Velferðavaktina og Samband íslenskra sveitafélaga. Nágranna sveitarfélögin hafa stigið það skref að kosta til námsgagna m.a. svo efnahagur komi ekki niður á námi og lífi barna.
Fulltrúar B og S lista
Tillaga
Lagt er til að vísa erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu vegna fjárhagsáætlunar 2018.
Samþykkt samhljóða12. Grunnskóli Grindavíkur: Greiðsla á TV-einingum
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri óskar eftir heimild til að halda áfram greiðslu á TV-einingum til leiðbeinenda með BEd próf á sömu forsendum og undanfarin skólaár.
Skólastjóri óskar eftir heimild til að halda áfram greiðslu á TV-einingum til leiðbeinenda með BEd próf á sömu forsendum og undanfarin skólaár.
Bæjarráð samþykkir erindið.13. Læsisstefna leikskóla Grindavíkurbæjar
Fræðslunefnd telur mikilvægt að sveitarfélagið hlutist til um heildræna læsisstefnu fyrir allt samfélagið. Á fundi nefndarinnar voru lagðar fram læsis/lestrarstefnur skólanna. Fela þarf verkefnið ákveðnum ábyrgðaraðila og ákveða hverjir eigi að koma að verkefninu, s.s. skólar, bókasafn,dagforeldrar, foreldrar og fleiri, jafnvel með skipan starfshóps.
Bókun fræðslunefndar lagðar fram.
Bæjarráð felur skólaskrifstofu að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir bæjarráð.14. Breyting á lögreglusamþykkt: ályktun um gistingar á sérmerktum svæðum
Stjórn Reykjanes Geopark leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum breyti lögreglusamþykktum.
Stjórn Reykjanes Geopark leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum breyti lögreglusamþykktum.
Bæjarráð vísar málinu til Umhverfis- og ferðamálanefndar.15. Íbúðalánasjóður: Möguleg kaup á eignum sjóðsins
Íbúðalánasjóður býður til viðræðna um möguleg kaup á fasteignum sjóðsins í Grindavík.
Lagt fram bréf frá Íbúðalánasjóði þar sem boðið er til viðræðna um möguleg kaup Grindavíkurbæjar á fasteignum, í eigu sjóðsins, í Grindavík.
Bæjarráð hafnar erindinu.16. Framkvæmdasjóður aldraðra: Umsóknir úr sjóðnum
Vakin er athygli á umsóknarfresti til að sækja um framlag úr sjóðnum.
Lögð fram tilkynning frá Framkvæmdasjóði aldraðra um að umsóknarfrestur til að sækja um hjá Framkvæmdasjóði aldraðra er til 14. júlí 2017.
17. Fundargerðir: Reykjanes Geopark 2017
Fundargerð 36. fundar til kynningar
Fundargerð 36. fundar, dags. 26. maí 2017, lögð fram.
18. Fundargerðir: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2017
Fundargerð 716. fundar til kynningar
Fundargerð 716. fundar, dags. 14. júní 2017, lögð fram.
19. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka 2017 til kaupa á eldavél
Beiðni frá skólastjóra leikskólans um viðauka
Skólastjóri leikskólans Lautar óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 348.192 kr. til kaupa á eldavél.
Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð 349.000 kr. við fjárhagsáætlun 2017 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.20. Leikskólinn Laut: Beiðni um launalaust leyfi
Guðrún Hanna Reynisdóttir óskar eftir launalausu ársleyfi frá og með sumarfríi, til að ljúka við nám í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands.
Samþykkt samhljóða.