Bæjarráð Grindavíkur - 1370. fundur
- 19.01.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1370
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Þjónustukönnun sveitarfélaga 2014: Grindavíkurbær
Niðurstöður þjónustukönnunar kynntar
Bæjarstjóri kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Capacent meðal 19 sveitarfélaga á árinu 2014.
Í úrtakinu voru 300 íbúar í Grindavík og var svarhlutfall 52%. Svarendur eru jafnaði frekar ánægðir með þjónustu Grindavíkurbæjar og Grindavík sem stað til að búa á, en hvorutveggja er í meðaltali sveitarfélaganna. Ánægja með menningarmál og þjónustu leikskóla er mjög mikil.
Bæjarráð vísar könnuninni til umfjöllunar í bæjarstjórn og nefndum bæjarins og til birtingar á vef Grindavíkurbæjar.2. Ársuppgjör 2014: Grindavíkurbær og stofnanir
Lagt fram yfirlit um handbært fé í lok árs 2014
Sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslusviðs lagði fram yfirlit um handbært fé í árslok 2014, sem er um 150 milljónum hærra en ráð var fyrir gert.
3. Deiliskipulag, Eldvörp rannsóknarborholur.frh
HS orka hf. óskar eftir heimild Grindavíkurbæjar til að vinna deiliskipulag vegna rannsóknarborhola í Eldvörpum skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið verður í fullu samræmi við Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030 og álit Skipulagsstofnunar dags. 22.9. 2014 um mat á umhverfisáhrifum rannsóknarborana í Eldvörpum.
Bæjarráð samþykkir að veita HS orku hf. heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi vegna rannsóknarborhola í Eldvörpum í samráði við skipulags- og umhverfissvið Grindavíkurbæjar og skipulagsnefnd. Tillagan mun fá kynningu og umfjöllun í samræmi við skipulagslög, eins og aðrar skipulagstillögur.4. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Framhald frá síðasta fundi
Framhald frá síðasta fundi, þar sem sviðsstjórar frístunda- og menningarsviðs, og skipulags- og umhverfissviðs kynntu tillögu nefndar um uppbyggingu tengibyggingar og íþróttasalar fyrir bardagaíþróttir.
Formaður bæjarráðs leggur til að tillaga meirihluta nefndarinnar, þ.e. tillaga G, verði samþykkt og nefndinni falið að vinna áfram að hönnun mannvirkisins og í kjölfarið gerð útboðsgagna.
Tillaga fulltrúa S-lista
Fulltrúi S-lista lýsir yfir áhyggjum sínum yfir umfangi þeirra áætlana sem lagðar eru fram. Ekki hefur gefist nægt ráðrúm fyrir greiningu á þörfum, kostnaði við framkvæmdina og áhrif á núgildandi fjárhagsáætlun 2015-2018. Fulltrúi S-lista leggur til að málinu verði frestað og að tíminn verði nýttur til þess að afla frekari gagna svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun.
Tillögu fulltrúa S-lista er hafnað með tveimur atkvæðum gegn einu.
Tillaga formanns bæjarráðs er samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu, og vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bókun fulltrúa B-lista.
Fulltrúi B-lista hvetur fulltrúa D- og G-lista til að endurskoða ákvörðun sína fram að næsta bæjarstjórnarfundi og skoða hvort ekki sé hægt að framkvæma uppbygginguna í tveimur skrefum. Þannig er hægt að tryggja að stofn- og rekstrarkostnaður hefti ekki framkvæmdir við nýtt íþróttahús er meirihlutinn hefur lofað að verði byggt á kjörtímabilinu. Núverandi tillaga gerir ráð fyrir bæði hærri stofnkostnaði og rekstrarkostnaði en fjárhagsáætlun 2015-2018 gerir ráð fyrir sem mun hafa áhrif á aðrar áætlanir. Miðað við tillögur nefndarinnar á að byggja 530 fm sal fyrir gólfíþróttir og um 1.600 fm nýtt íþróttahús. Slík stækkun er mikið stökk á skömmum tíma. Með því að byggja í tveimur skrefum er hægt að stækka hægt og rólega í samræmi við þörf og íbúaþróun. Ekki hefur verið gerð nein þarfagreining er styður við byggingu á svo stórum sal fyrir gólfíþróttir og þvert á móti hafa tvær nefndir um íþróttamannvirki talið minni sal fullnægjandi, þ.e.a.s. nefnd er kennd er við Magnús Andra frá 2009 og nefnd kennd við Pál Jóhann frá 2012. Kostnaður við að byggja efri hæðina síðar í stað þess að gera það samtímis er einnig hverfandi og jafnast út með sparnaði í rekstri en sparnaður í rekstri miðað við tölur frá meirihlutanum er um 4,4 milljónir á ári. Sé ekki vilji til að fara í framkvæmdir á þessum áfanga í tveimur skrefum er óskað eftir því að aflað verði eftirfarandi upplýsinga áður en málið verður tekið til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Þarfagreining á því hverjir nota gólfíþróttasalinn og hvort aðilar geti notað aðra sali sem eru á svæðinu, m.a. félagsheimilið (228 fm) sem verið er að byggja núna, sal í nýju líkamsræktaraðstöðunni (130fm) og rými sem hægt væri að nota sem sal í neðri hæð nýrrar byggingar þar til nýtt íþróttahús verður byggt.
Greining á þeim sparnaði sem haldið er fram að eigi sér stað við að byggja allt í einu og þá sérstaklega að byggja strax gaflinn fyrir nýtt íþróttahús. Færa má rök fyrir því að líklega er ódýrara að byggja báða gaflana í einu er öll tæki eru komin á svæðið í staðinn fyrir að gera annan núna.
Leitað sé afstöðu UMFG um hvort mikilvægara sé að fá fyrst nýtt íþróttahús eða 530 fm sal á 2. hæð og hvort íþróttahús nýtist fleiri iðkendum/íþróttagreinum eða salur á 2. hæð.
Tillaga um að bæjarstjóra verði falið að afla gagnanna fyrir bæjarstjórnarfund 27. janúar samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu.5. Grindavíkurkirkja: Umsókn um styrk
Kór Grindavíkurkirkju óskar eftir ferðastyrk vegna ferðar kórsins til Bolzano á norður Ítalíu í júní næstkomandi.
Bæjarráð samþykkir að styrkja hvern kórmeðlim í ferðinni um 15.000 kr.6. Tjaldsvæði - útboðsgögn fh
Fundargerð frá opnun tilboða í rekstur tjaldsvæðis Grindavíkur lögð fram.
Fjögur tilboð bárust.
Bæjarráð hafnar öllum tilboðum.7. Vatnstankur í Þórkötlustaðarhverfi: fyrirspurn um sölu.
Arnar Freyr Jónsson óskar eftir viðræðum við Grindavíkurbæ um möguleg kaup á gömlum vatnstanki við Austurveg. Markmið Arnars er að breyta vatnstanknum í Micro-hús, sem yrði hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í skipulagsnefnd.8. Beiðni um viðauka: Tímabundið stöðugildi í Miðgarði
Forstöðumaður Miðgarðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 1.015 þús kr. til að ráða í tímabundið stöðugildi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 1.015 þús kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.9. Almenningssamgöngur á Suðurnesjum: Kynning á nýju leiðarkerfi
Fulltrúi Strætó bs og SSS koma á fundinn kl. 18 að kynna nýja kerfið
Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri SSS og Einar Kristjánsson og Ragnheiður Einarsdóttir fulltrúar Strætó komu á fundinn og kynntu nýtt leiðarkerfi almenningssamgangna á Suðurnesjum.