Bæjarráð Grindavíkur - 1351. fundur
- 20.05.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1351
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Vilhjálmur Árnasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Ársuppgjör 2013, Grindavíkurbær og stofnanir
Yfirferð frávika vegna 2013, framhald frá síðasta bæjarráðsfundi.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fylgdi eftir skýringum við frávik frá fjárhagsáætlun ársins 2013 í félagsþjónustu og fræðslumálum.
Bæjarráð ítrekar við forstöðumenn stofnanna að halda ber samþykkta fjárhagsáætlun. Verði forstöðumenn varir við að forsendur hafi breyst eftir að áætlun hafi ber þeim að bregðast við.2. Kjörskrá vegna sveitarstjórnakosninga 2014
Kjörskrárstofn Þjóðskrár lagður fram og kjörskrá samin
Kjörskrárstofn Þjóðskrár lagður fram.
Bæjarstjórn hefur falið bæjarráði að semja kjörskrá á grundvelli kjörskrárstofns frá Þjóðskrá Íslands. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí nk. í samræmi við 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna.
Bæjarráð samþykkir kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar í Grindavík sem fram fara 31. maí næstkomandi. Á kjörskrá eru 1.992 kjósendur. Kjörstaður verður í Hópsskóla við Suðurhóp.3. Ársreikningur Sambands orkusveitarfélaga 2013
Ársreikningur Sambands orkusveitarfélaga vegna ársins 2013 lagður fram.
4. Beiðni um umsögn frá fjárlaganefnd um frumvarp til laga um opinber fjármál, 508. mál á þingskjali 869
Held við höfum lítið um þetta að segja
Lagt fram.
5. Beiðni um umsögn um umsókn Bryggjunnar Grindavík ehf. um leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna.
6. Eyðibýli á Íslandi - Rannsóknir á Suðurnesjum sumarið 2014
SSS og Vogar hafnað. Garður og Reykjanesbær samþykkt
Félagið Eyðibýli á Íslandi óskar eftir styrk að fjárhæð 100.000 kr. til að vinna rannsókn á yfirgefnum húsum í sveitum.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.7. Fundarboð á Aðalfund Fisktækniskóla Íslands 2014
Fundarboð á aðalfund Fisktækniskóla Íslands sem fram fer þann 27. maí næstkomandi, lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.8. HH smíði ehf óskar eftir áframhaldandi leyfi á Oddsbúð við Bakkalág 20.
Vísa til umsagnar Skipulags og umhverfisnefndar og Hafnarstjórnar?
HH smíði ehf óskar eftir áframhaldandi leyfi til að húsið Oddsbúð fái að standa við Bakkalág 20.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar.10. Lóðarleigusamningur á iðnaðarsvæði i5
Tillaga um að fengnir verði óháðir matsmenn til að verðmeta landið. Drög að samningi lögð fram til umræðu.
Framhald frá fundi 1343.
11. Ný líkamsræktaraðstaða
Tillaga Frímenn og að auglýsingu
Tillaga sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsingu um rekstur líkamsræktar í sundmiðstöð Grindavíkur lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að birta auglýsinguna með áorðnum breytingum.12. Starfsleyfi til reksturs fiskþurrkunar við Bakkalág 21
Veita umsögn um umsóknina?
Fulltrúar B- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar B- og S-lista leggja til að afgreiðslu umsóknar um 4 ára leyfi verði frestað fram á haust. Þegar um starfsemi er að ræða sem getur haft lyktarmengun í för veitir HES almennt ársleyfi til reynslu svo hægt sé að tryggja að mengunarvarnarbúnaður virki sem skyldi. Í framhaldinu er síðan hægt að sækja um lengra leyfi. Í ljósi þess að umrædd þurrkun fékk ársleyfi í janúar á þessu ári þykir rétt að gefa lengri reynslutíma á menungarvarnarbúnaðinn áður en 4 ára leyfi er veitt.
Fulltrúar B- og S-lista.
Fulltrúi G-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Uppbygging atvinnulífs er Grindavíkurbæ mikilvæg og við í G-listanum stöndum öll fyrir það að vilja auka fjölbreytni þess og laða til okkar fyrirtæki. Fulltrúar G-listans kynntu sér málið vandlega og heimsóttu viðkomandi fyrirtæki sem hefur verið að þurrka hausa síðan í nóvember. Við ræddum við sérfræðinga um hausaþurrkun hjá Matís, auk þess að ræða við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Það er ríkur vilji Staðarþurrkunnar að vera með sitt á hreinu enda hafa þeir fjárfest í dýrum oson búnaði til að koma í veg fyrir ólykt. Starfsleyfið sem þeir nú sækja um til HES er til fjögurra ára. Fulltrúar G-listans vilja veita þeim leyfið og eyða þeirri rekstaróvissu sem fyrirtækið býr nú við svo það geti haldið áfram sinni uppbyggingu.
Fulltrúi G-lista.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D- lista tekur undir með fulltrúa G-lista að uppbygging fjölbreytts atvinnulífs skiptir miklu máli fyrir Grindavík. Það er mikilvægt fyrir fyrirtæki sem fara út í mikinn kostnað til að bæta búnað sinn að hafa öruggan rekstrargrundvöll. Óvissa sem þessi getur því tafið úrbætur vegna lyktarmengunar og væri því nær að eyða slíkri rekstraróvissu.
Fulltrúi D-lista.13. Stefnumótun Reykjanes jarðvangs
Nefndin samþykkir stefnunmótunina og bindur mikilar vonir við starfsemi Reykjanes jarðvangs.
Tillaga að stefnumótun fyrir Reykjanes jarðvang lögð fram. Skipulags- og umhverfisnefnd og frístunda- og menningarnefnd hafa veitt jákvæða umsögn um tillöguna.
Bæjarráð bindur mikilar vonir við að starfsemi Reykjanes jarðvangs hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á Reykjanesi.14. Úttekt á frístundastarfi á vegum Grindavíkurbæjar
Tilnefningar í nefnd:$line$Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri- frístunda- og menningarnefndar$line$Stefanía Jónsdóttir, frá Miðgarði$line$Petrína Baldursdóttir, frá grunnskólanum$line$Jóhann Árni Ólafsson, frá Þrumunni
Framhald frá 1348.
Tilnefningar í stýrihóp sem skal halda utan um stefnumótun í frístundastarfi á vegum Grindavíkubæjar lagðar fram. Tilnefnd eru:
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri- frístunda- og menningarsviðs
Stefanía Jónsdóttir, frá Miðgarði
Petrína Baldursdóttir, frá Grunnskóla Grindavíkur
Jóhann Árni Ólafsson, frá Þrumunni
Samþykkt samhljóða.15. Viðhald á útivistarstígum í Grindavík
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla saman hagsmunaaðila sem nýta útivistarstíga í Grindavík til að finna lausn á skiptingu kostnaðar við viðhald stíganna.