Bæjarráð Grindavíkur - 1382. fundur
- 19.05.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1382
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Niðurstöður útboðs í lóðarhönnun lagðar fram. Fundargerðin kemur inn í fyrramálið
Niðurstöður tilboða í verkið “Íþróttamiðstöð Grindavíkur frágangur lóðar” lögð fram. Fjögur tilboð bárust. Röð tilboða breyttist ekki eftir yfirferð.
Komið hefur í ljós misræmi í útboðsgögnum. Málinu frestað á meðan beðið er lögfræðiálits á því hvort misræmið hafi áhrif á útboðið.2. Ný íþróttamiðstöð: Samantekt á athugasemdum
Minnisblað forstöðumanns íþróttamiðstöðvar lagt fram, þar sem fram koma athugasemdir og ábendingar varðandi frágang og hönnun ýmissa atriða í nýju íþróttamiðstöðinni.
Byggingafulltrúa og verkeftirliti er falið að taka saman allar athugasemdir og ábendingar varðandi mannvirkið, flokka eftir ábyrgð og leggja fyrir bæjarráð.3. Áhorfendastúka: Galli í þakklæðningu
Svarbréf Grindarinnar ehf. dags. 19. maí 2015 varðandi þakklæðningu á stúku við knattspyrnuvöllinn lagt fram ásamt skýrslu Ásbjörns Einarssonar efnaverkfræðings dags. 18. maí 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla álits á skýrslunni.4. Dagvistun barna: fjölgun rýma í dag-og leikskólavistun
Minnisblað leikskólaráðgjafa og bæjarstjóra varðandi nýtingu færanlegrar kennslustofu fyrir dagvistun lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að færanlega kennslustofan verði nýtt til að fjölga leikskólarýmum í Grindavík og felur bæjarstjóra að afla frekari gagna.
Bæjarráð óskar jafnframt eftir tillögum leikskólaráðgjafa að aðgerðum til að fjölga dagforeldrum í Grindavík.5. Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga: Skýrsla sum skilvirkt vinnulag
Skýrsla sambands íslenskra sveitarfélaga um skilvirkt vinnulag í fjárhagsáætlanagerð lögð fram.
6. Innheimta vanskilakrafna: Samningur við Inkasso
Framhald frá síðasta bæjarráðsfundi. Breyting á 18. grein.
Framhald frá síðasta fundi.
Tillaga að samsstarfssamningi við Inkasso lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og leggja hann fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Málræktarsjóður: Aðalfundur 12. Júní 2015
Fundarboð á aðalfund Málræktarsjóðs lagt fram.
Bæjarráð felur forstöðumanni bókasafnsins að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum.8. Rekstraryfirlit janúar - mars 2015: Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs fór yfir rekstaryfirlit fyrir janúar til mars 2015.
9. Beiðni um umsögn: Umsókn Pepp ehf. um breytingu á opnunartíma dagana 4. til 7. júní næstkomandi
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir umsögn um beiðni Pepp ehf. um breytingu á opnunartíma dagana 4. til 7. júní næstkomandi. Umsækjandi er með gilt rekstrarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II þar sem heimilar veitingatími er til kl. 23:00 alla virka daga. Umsækjandi óskar eftir því að veitt verði leyfi til lengri opnunartíma á framangreindum dögum, eða frá kl. 23:00 til kl. 06:00.
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við umsóknina.10. Beiðni um umsögn: umsókn Góðs lags ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki V og veitingastaðar í flokki II að Víkurbraut 58
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum óskar eftir umsögn um umsókn Góðs lags ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki V og veitingastaðar í flokki II að Víkurbraut 58.
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við umsóknina.11. Fisktækniskóli Íslands: Aðalfundur 2015
Fundarboð á aðalfund Fisktækniskóla Íslands 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með atkvæði Grindavíkurbæjar á fundinum. Grindavíkurbær tilnefnir Ólaf Þór Jóhannsson sem aðalmann í stjórn og Róbert Ragnarsson til vara.12. SSS: Óska eftir afstöðu til þátttöku í stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum óskar eftir afstöðu Grindavíkurbæjar til þátttöku í stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Bæjarráð lýsir yfir vilja til þátttöku í verkefninu gegn 60% greiðsluþátttöku ríkisins.