Bæjarráð Grindavíkur - 1314. fundur
- 19.03.2013
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1314
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Lovísa H Larsenvaramaður
- Helga Kristjánsdóttirvaramaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurnesja 11. mars 2013.
Ársreikningur lagður fram á fundinum
Ársreikningur ársins 2012 lagður fram.
2. Aðalfundur HS veitna hf. 14.mars 2013
Ársreikningur lagður fram á fundinum
Ársreikningur og ársskýrsla ársins 2012 lögð fram.
3. Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012
Skýrsla til bæjarstjóra um stjórnsýslu lögð fram til kynningar.
Skýrsla til bæjarstjóra um stjórnsýslu lögð fram til kynningar.
4. Málefni fatlaðra á Suðurnesjum, tekjur og gjöld 2012
Greining KPMG lögð fram og RR/JÞ segja frá fundi sveitarfélaganna með fulltrúum Jöfnunarsjóðs
Bæjarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjónsýslusviðs gera grein fyrir fundi sem fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum áttu með fulltrúum Jöfnunarsjóðs um framlög til málefna fatlaðs fólks á Suðurnesjum.
Greining KPMG á fjárframlögum á þjónustusvæði málefna fatlaðs fólks á Suðurnesjum lögð fram.5. Bygging reiðhallar í Grindavík
RR gerir grein fyrir fundi með Landsbankanum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sínum og fulltrúa Brimfaxa með Landsbankanum.
6. Sala félagslegra íbúða í eigu Grindavíkurbæjar
Kauptilboð lagt fram til afgreiðslu.
Kauptilboð lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í eignina Leynisbraut 13c íbúð 0101.
Bæjarstjóra falið að undirrita kaupsamning og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.7. Styrkbeiðni vegna æfingaferðar meistaraflokks kvenna í knattspyrnu
Beiðnin fellur ekki að reglum afrekssjóðs og því er beiðninni vísað til bæjarráðs.
Guðmundur lýsir sig vanhæfan við afgreiðslu málsins og víkur af fundi.
Grindavíkurbær hefur sett sér reglur til að styðja við afreksfólk í íþróttum og fellur umsóknin ekki að þeim reglum.
Bæjarráð verður því að hafna erindinu.8. Beiðni um umsögn frá Atvinnuveganefnd Alþingis um frumvarp til laga um vatnalög og rannsóknir á auðlindum í jörðu, (samræming reglna um vatnsréttindi) 634. mál.
Lagt fram.
9. Styrkir til nýsköpunar og þróunar í Grindavík
Styrkumsóknir teknar til afgreiðslu. Tvær umsóknir bárust. Styrkirnir voru auglýstir í Víkurfréttum, Fréttablaðinu og á vef Grindavíkurbæjar. Auk þess var hún send á fyrirtækjapóstlista Grindavíkurbæjar.
Styrkumsóknir teknar til afgreiðslu að loknum umsóknarfresti sem var til 15. mars síðastliðinn. Tvær umsóknir bárust. Annars vegar frá Codland og hinsvegar frá Íslenska sjávarklasanum.
Styrkirnir voru auglýstir í Víkurfréttum, Fréttablaðinu og á vef Grindavíkurbæjar. Auk þess var auglýsingin send á fyrirtækjapóstlista Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð samþykkir báðar umsóknirnar og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við umsækjendur.