Bæjarráð Grindavíkur - 1493. fundur
- 18.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1493
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna breytinga á aðstöðu
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka við samning við starfsmenn leikskólans Lautar. Þó með þeirri breytingu að láti starfsmaður af störfum af eigin hvötum fyrir 1. febrúar 2019 getur Grindavíkurbær krafið viðkomandi um endurgreiðslu sem nemur 50.000 kr. af eingreiðslunni. Láti starfsmaður af störfum eftir 1. febrúar 2019 mun ekki verða farið fram á endurgreiðslu.2. Tækifærisleyfi: Knattspyrnudeild UMFG
Knattspyrnudeild UMFG hefur sótt um tækifærisleyfi vegna lokahófs deildarinnar þann 29. september nk. Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gera ekki athugasemd við leyfisveitinguna.
Beiðni sýslumannsins á Suðurnesjum um umsögn lögð fram.
Knattspyrnudeild UMFG hefur sótt um tækifærisleyfi vegna lokahófs deildarinnar þann 29. september nk.
Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gera ekki athugasemd við leyfisveitinguna.
Bæjaráð mælir með því að leyfið verði veitt.3. Öryggi gangandi vegfarenda: Óskað eftir tillögum skipulagsnefndar
Forseti bæjarstjórnar leggur málið fyrir bæjarráð.
Lagðar fram myndir af gangbrautarmerkingum á götum í Grindavík. Þar má sjá að það eru nánast allar yfirborðsmerkingar farnar af götunum.
Starf grunnskóla er komið í fullan gang og þarf að bregðast við til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda. Einnig hægja gangbrautir á umferð.
Einnig er vakin athygli á því að það er ekki byrjað á framkvæmdum við hjólahliðið við Kúadal.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja því eftir að gangbrautir á Víkurbraut, ásamt bílastæðum verði málaðar strax.
Bæjarráð óskað eftir því að skipulagsnefnd komi með tillögur til að draga úr umferðarhraða við Víkurbraut, á þeim kafla sem að Grindavíkurbær ber ábyrgð á.4. Kosning í nefndir samkvæmt D-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
Einn fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga boðar forföll og velja þarf varamann.
Helga Dís Jakobsdóttir, aðalfulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga boðar forföll. Varafulltrúi hefur ekki tök á að mæta og því þarf að velja annan varamann.
Bæjarráð samþykkir að Hallfríður Hólmgrímsdóttir fari á landsþingið.5. Sjóarinn síkáti 2018: verkefnisáætlun
Frístunda- og menningarnefnd vísar málinu til bæjarráðs. Sjóarinn fór langt fram úr fjárheimildir. Bryggjutónleikar voru nýlunda og breyttu ásýnd hátíðarinnar en ákveða þarf um framhaldið. Nefndin leggur til að framtíð hátíðarinnar fari til umræðu hjá bæjarráði. Nefndin leggur til að skipaður verði af bæjarráði, vinnuhópur sem leggi fram tillögur að fyrirkomulagi hátíðarinnar og framtíð hátíðarinnar.
Bæjarráð tekur vel í hugmyndina en telur að nýráðinn sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs þurfi að leiða vinnu um framtíðarskipulag hátíðarinnar í samvinnu við frístunda- og menningarnefnd og bæjarráð.
Bæjarráð harmar það að ekki hafi verið farið eftir fjárheimildum hvað varðar umfang Sjóarans síkáta en umframkeyrslan er um 7 milljónir króna. Slíkar framúrkeyrslur eru óheimilar án undangenginnar beiðni um viðauka.6. Knattspyrnudeild U.M.F.G: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2019
Ósk frá Knattspyrnudeild um endurnýjun samkomulags vegna verktöku við umsjón mannvirkja
Bæjarráð samþykkir framlengingu til 31.12.2019 og að fjárhæð samnings verði óbreytt frá 2018.
7. Afrekssjóður: ósk um viðauka fyrir árið 2018
Óskað er eftir viðauka í afrekssjóð vegna aukins fjölda umsókna. Óskað er eftir viðauka að upphæð 260.000 kr.
Bæjarráð frestar málinu til næsta bæjarráðsfundar og felur bæjarstjóra að afla frekari gagna.
8. Upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar
Lagt fram yfirlit yfir verkefni upplýsingafulltrúa.
Lagt fram verkefnayfirlit.