Bæjarráð Grindavíkur - 1451. fundur
- 18.07.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1451
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Páll Jóhann Pálssonvaramaður
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Fyrirspurn um lóð: lyfjaframleiðslufyrirtæki
Páll Heiðar Pálsson mætir á fundinn og kynnir áformin.
Páll Heiðar Pálsson, Andri Björgvin Arnþórsson og Sigtryggur Arnþórsson mættu á fundinn og kynntu hugmyndir sínar.
Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til málsins fyrr en frekari upplýsingar liggja fyrir.2. Hádegismatur eldri borgara: Beiðni um niðurgreiðslur
Nökkvi Már kemur á fundinn og kynnir stöðu mála.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Nökkvi Már Jónsson, mætti á fundinn og kynnti stöðu málsins.
Bæjarráð getur ekki, að svo stöddu, haldið áfram með mötuneyti í Víðihlíð þar sem HSS er ekki tilbúið að samþykkja áframhaldandi leigu á eldhúsinu í Víðihlíð á sambærilegum forsendum og eru í núverandi samkomulagi.3. Anna Eyjólfsdóttir: Þríeind 339
Verkefnið Þríeind / Heimamenn hefur verið rætt í frístunda- og menningarnefnd og verið er að vinna fjárhagsáætlun verkefnisins. Óskað er eftir af hálfu þeirra sem að verkefninu standa að þáttur Grindavíkur sé meiri en í upphafi var rætt.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Björg Erlendsdóttir, mætti á fundinn og fór yfir málið.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í vinnu við fjárhagsáætlun 2018.4. Endurnýjun götumyndar: Arnar-, Borgar og Staðarhraun.
Tekinn fyrir drög að verksamningi við Grindverk ehf. Verkið felur í sér endurnýjun á strengjum og gangstétt á Hraunbraut milli Staðarhrauns og Heiðahrauns ásamt nýrri aðkomu að Krílakoti. Samningsupphæð er 6.793.000kr. Áætluð verklok eru í lok ágúst.$line$$line$Bæjjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita verksamninginn.
Verksamningur við Grindverk ehf. vegna endurnýjunar á strengjum og gangstétt á Hraunbraut, milli Staðarhrauns og Heiðarhrauns, ásamt nýtti aðkomu að Krílakoti lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.5. Fundargerðir: Samband íslenskra sveitarfélaga 2017
Fundargerð 851. fundar til kynningar
Fundargerð 851. fundar, dags. 30.júní sl. lögð fram.
6. Fundargerðir: Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2017
Fundargerð 482. fundar til kynningar
Fundargerð 482. fundar, dags. 13. júlí sl. lögð fram.
7. Fundargerðir: Svæðisskipulag Suðurnesja 2017
Fundargerðir 7. og 8. fundar til kynningar
Fundargerðir 7. og 8. fundar, dags. 28. sept. 2016 og 19. jan. 2017 lagðar fram.
8. Frístunda- og menningarnefnd - 64
Fundargerðin er lögð fram.