Bæjarráð Grindavíkur - 1422. fundur
- 18.10.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1422
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum og bætast við dagskrá:
6. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna launa í fjárhagsáætlun 2016.
og
7. Ráðning: sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Samþykkt samhljóða
1. Miðgarður uppbygging: Útboðsgögn
Útboðsgögn frá Vegagerðinni sem þarf að fara yfir og samþykkja
Drög að útboðsgögnum lögð fram til kynningar.
2. Brú Lífeyrissjóður: Hækkun mótframlags
Bréf frá lífeyrissjóðnum Brú um hækkun á framlagi launagreiðanda í 16,8% lagt fram.
3. Viðaukar við fjárhagsáætlun: Bréf frá Innanríkisráðuneyti
Bréf dags. 3. október 2016 lagt fram.
Bréf dags. 3. október 2016 lagt fram.
4. Viðauki við fjárhagsáætlun 2016: Áhrif kjarasamninga
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna áhrifa kjarasamninga á laun. Áætluð áhrif á fjárhagsáætlun 2016 er 85.829.000 kr. og er fjármagnað með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur.5. Fjárhagsáætlun 2017-2020: Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarráð vísar áætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Drög að fjárhagsáætlun 2017-2020 lögð fram.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.6. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka vegna launa í fjárhagsáætlun 2016
Beiðni frá skólastjóra leikskólans í Laut
Beiðni frá skólastjóra Leikskólans um viðauka við fjárhagsáætlun 2016 að fjárhæð 1.364.000 kr. á launalið leikskólans.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.7. Ráðning: sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða Björgu Erlingsdóttur stöðu sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.