Bæjarráð Grindavíkur - 1388. fundur
- 18.08.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1388
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Bílastæði við Hópið: beiðni um lokafrágang
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Bréf Jóns Fanndals Bjarnþórssonar og Ingu Marínar Björgvinsdóttur dags. 6. ágúst lagt fram, þar sem þau óska eftir að malbikun bílastæða við Hópið fái flýtimeðferð og verði framkvæmt á árinu 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu, en framkvæmdin fer ekki fram á árinu 2015. Framkvæmdin er á fjárhagsáætlun ársins 2018 sem verður tekin til umfjöllunar í haust.2. Umsókn um byggingarleyfi: Útistofa við Laut
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd leggur til, í kjölfar grenndarkynningar, að veitt verði heimild til að flytja færanlega kennslustofu frá Ásabraut inn á lóð Leikskólans Lautar. Byggingarleyfi verði gefið út þegar tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Bæjarráð samþykkir flutninginn og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara þeim er gerðu athugasemdir.