Bæjarráð Grindavíkur - 1366. fundur
- 18.11.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1366
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmaðalmaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
1. Tillaga um stefnumótun á þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðs fólks.
Ræða þjónustusvæðið
Bréf frá stjórn SSS dags. 17. nóvember lagt fram, þar sem stjórn gerir grein fyrir því að samningur um þjónustusvæði Suðurnesja um málefni fatlaðra renni út um áramót og að ljóst sé að ekki muni nást samkomulag milli sveitarfélaganna fimm um stofnun byggðasamlags um málefnið. Stjórnin vísar því verkefninu til sveitarfélaganna og felur þeim að leita leiða til að halda utanum rekstur málaflokksins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við sviðsstjóra félags-og fræðsluþjónustu.2. Skipulag á bæjarskrifstofum Víkurbrautar 62
Markmið, forsendur og teikningar lagðar fram.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti markmið, forsendur og drög að teikningum fyrir breytingar á húsnæði bæjarskrifstofa við Víkurbraut 62. Húsnæði skrifstofunnar stækkaði um rúma 120 m2 við sameiningu almennings-og skólabókasafns í Iðunni.
Markmið breytinganna eru:
Að bæta aðgengi að þjónustunni
Að aðgengi fyrir hreyfihamlaða sé þannig að sómi sé að
Að fjölga skrifstofum og fundarherbergjum
Að gera aðgengi að fundum bæjarstjórnar betra og tryggja betur öryggi
Að bæta geymslu skjala
Að bæta vinnuaðstöðu fyrir þjónustufulltrúa og geymslu fyrir afgreiðslu
Að gera viðunandi kaffiaðstöðu fyrir starfsfólk
Bæjarstjóra falið að leggja fram tillögu að áfangaskiptingu framkvæmda.3. Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvar 2015
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars á árinu 2015 verði 13,99% eins og á þessu ári.
Með vísan til 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars á árinu 2015 verði 13,99% eins og á árinu 2014.
Grindavíkurbær verður þannig áfram í hópi þeirra sveitarfélaga sem leggja á hvað lægst útsvar.4. Álagningarreglur fasteignagjalda 2015
Bæjarráð leggur fram tillögu að álagningarreglum fasteignagjalda fyrir árið 2015
Með vísan til 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að álagningarreglur fasteignagjald fyrir árið 2015 verði eftirfarandi:
1. Fasteignaskattur
1.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,36% af fasteignamati húss og lóðar
1.2. Opinberar byggingar (b-liður) 1,32% af fasteignamati húss og lóðar
1.3. Annað húsnæði (c-liður) 1,65% af fasteignamati húss og lóðar
2. Holræsagjald
2.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,10% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
2.2. Annað húsnæði (c-liður) 0,20% af fasteignamati húss og lóðar
3. Vatnsgjald
3.1. Íbúðarhúsnæði (a-liður) 0,10% af fasteignamati húss og lóðar
3.2. Opinberar byggingar (b-liður) 0,25% af fasteignamati húss og lóðar
3.3. Annað húsnæði (c-liður) 0,20% af fasteignamati húss og lóðar
3.4. Aukavatnsgjald 17 kr/m3 vatns
4. Sorphreinsunargjald/Tunnuleiga
4.1. Íbúðarhúsnæði 14.225 kr. tunnu pr. ár
5. Sorpeyðingargjald
5.1. Íbúðarhúsnæði 23.210 kr. tunnu pr. ár
6. Lóðarleiga
6.1. Íbúðahúsalóðir 1,10% af fasteignamati lóðar
6.2. Lóðir v. opinberra bygginga 2,00% af fasteignamati lóðar
6.3. Lóðir v. annað húsnæði 1,60% af fasteignamati lóðar
7. Rotþróargjald
7.1. Rotþróargjald 15.000 kr. pr. rotþró pr. ár5. Tekjuviðmið 2015 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Taka þarf ákvörðun um viðmiðunarfjárhæðir afsláttarflokka
Með vísan til 3. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og 5. gr. reglna Grindavíkurbæjar um afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega, leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að tekjuviðmið ársins 2015 hækki um 5% frá árinu 2014.
6. Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja.
Tilnefningar
Framhald frá síðasta fundi.
Formaður bæjarráðs óskar eftir tilnefningum í nefnd sem skuli gera breytingar á fyrirliggjandi tillögu um uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Í nefndinni verða sex fulltrúar.
Tilnefndir af meirihluta bæjarstjórnar eru:
Jón Emil Halldórsson (D)
Atli Geir Júlíusson (D)
Þórir Sigfússon (G)
Tilnefndir af minnihluta bæjarstjórnar eru:
Magnús Andri Hjaltason (S)
Gunnlaugur Jón Hreinsson (B)
Einn áheyrnarfulltrúi verður tilnefndur af stjórn UMFG næstkomandi mánudag.
Bæjarráð skipar Jón Emil Halldórsson formann nefndarinnar.
Með nefndinni starfa sviðsstjóri frístunda- og menningarsvið sem verður verkefnisstjóri, forstöðumaður íþróttamannvirkja og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að boða til fyrsta fundar.7. Sala á Víkurbraut 34, gamli tónlistarskólinn
Það er komið tilboð
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir því að Víkurbraut 34 var auglýst til sölu þann 7. nóvember síðastliðinn, í samræmi við reglur um sölu íbúða Grindavíkurbæjar.
Eitt tilboð hefur borist í eignina.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að gera tilboðsgjafa gagntilboð.8. Skólastjórar tónlistarskóla á Suðurnesjum senda bæjarstjórnum áskorun vegna verkfalls
Áskorun frá skólastjórum tónlistarskóla á Suðurnesjum vegna verkfalls Félags tónlistarkennara lögð fram. Jafnframt er lagt fram minnisblað frá samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Grindavíkurbær hefur framselt samningsumboð sitt til Sambands íslenskra sveitarfélaga og hefur því ekki beina aðkomu að samningsgerðinni, kjaraviðræðurnar fara fram milli samninganefnda aðila hjá ríkissáttasemjara.9. Styrkbeiðni, Golfklúbbur Grindavíkur óskar eftir styrk til malbikunar bílastæðis
Set þetta á dagskrá ef það er vilji til að setja eitthavð fé inn í fjárhagsáætlun 2015-2018
Beiðni Golfklúbbs Grindavíkur um styrk til frágangs og malbikunar bílastæða tekin fyrir að nýju.
Bæjarráð vísar beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar.10. Umsókn um styrk á grundvelli Reglna um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík.
Umsögn lögð fram. taka þarf ákvörðun fyrir afgreiðslu fjárhagsáætlunar
Framhald frá fundi 1363.
Guðmundur Grétar Karlsson sækir um styrk á grundvelli Reglna um styrkveitingar Grindavíkurbæjar til uppbyggingar gamalla húsa í Grindavík, til endurbóta á Garðhúsi í Grindavík.
Umsögn frístunda- og menningarnefndar lögð fram.
Bæjarráð vísar beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar 2015 og leggur til við bæjarstjórn að veittur verði styrkur til verkefnisins að fjárhæð 2,1 milljón krónur, sem er í samræmi við fyrri úthlutun úr sjóðnum.