Bæjarráð Grindavíkur - 1346. fundur
- 18.03.2014
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1346
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Þorsteinn Gunnarssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
1. Blátt áfram forvarnarverkefni óskar eftir styrk til að halda málþing í tilefni 10 ára afmælis samtakanna.
Blátt áfram forvarnarverkefni óskar eftir styrk til að halda málþing í tilefni 10 ára afmælis samtakanna.
Bæjarráð samþykkir að styrkja ráðstefnu samtakanna um 30.000 kr. sem færist af lið bæjarráðs.2. Snemma beygist krókurinn. Jafnrétti til framtíðar. Styrkumsókn.
Heilsuleikskólinn Krókur og Svandís Anna Sigurðardóttir kynjafræðingur sækja um styrk í þróunarsjóð skólastofnana í Grindavík í verkefnið ,,Snemma beygist krókurinn-jafnrétti til framtíðar".
Markmið verkefnisins er að sinna jafnréttisfræðslu starfsfólks og upplýsa og fræða foreldra og
forráðamenn leikskólabarna. Samin verði jafnréttisáætlun með því markmiði að bæta og efla
jafnréttisstarfið á þann hátt að Heilsuleikskólinn Krókur geti starfað sjálfstætt í átt að auknu jafnrétti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um verkefnið og leggja fram tillögu um stuðning við það með vísan nýrrar skólanámskrár leik- og grunnskóla og tillögu að nýrri jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar. Í báðum þeim áætlunum er gert ráð fyrir vinnu að jafnréttismálum á sambærilegan hátt og þessu verkefni.3. Tillaga að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar sbr. 9 gr. laga nr. 138/2011
Sjá samþykktir annarra varðandi t.d. ráðningar.$line$http://www.innanrikisraduneyti.is/verkefni-raduneytis/malaflokkar/sveitastjornarmal/log/nr/22901
Farið yfir tillögu að nýjum samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð vísar tillögunni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.4. Reglur um gatnagerðargjöld
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir gildandi Samþykkt um gatnagerðargjöld í Grindavík.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leggja fram tillögu um breytingu á ákvæðum samþykktarinnar.5. Sveitarfélagamörk. Krafa Hafnarfjarðarbæjar, um að Óbyggðanefnd úrskurði um sveitarfélagamörk.
Fundargerð endurupptöku málsins hjá Óbyggðanefnd lögð fram.
Fundargerð endurupptöku málsins hjá Óbyggðanefnd lögð fram. Málið varðar sveitarfélagamörk Grindavíkurbæjar til norðausturs.
6. Stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík
Drög að samkomulagi um 10 milljóna kr styrk lögð fram
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs kom á fundinn og kynnti drög að samkomulagi milli Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG um stuðning við rekstur og afreksstarf félagsins.