Bæjarráð Grindavíkur - 1304. fundur
- 20.11.2012
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1304
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Bryndís Gunnlaugsdóttir Holmvaraformaður
- Páll Valur Björnssonaðalmaður
- Guðmundur L. Pálssonáheyrnarfulltrúi
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón ÞórissonSviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs
- Nökkvi Már Jónssonsviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs
1. Samningar við félagasamtök
Fara yfir samninga við félagasamtök sem losna á árinu 2013.
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarmála kom á fundinn og fór yfir samninga við félagasamtök sem losna á árinu 2013 og tillögur að nýjum samningum.
Ákveðið að við endurnýjun samninga verði miðað við að þeir renni út 31. desember 2015.2. Íþróttamannvirki áfangi 1.
Tilboð í gólfefni lögð fram. Minnisblað frá KJR kemur i kvöld
Kristinn Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarmála kom á fundinn og fór yfir tilboð í gólfefni fyrir skemmtanir á gólf íþróttahússins.
3. Krafa um miskabætur
Framhald fundi 1296. Nökki Már kemur til fundarins og fylgir málinu eftir.
Framhald frá fundi 1296.
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom á fundinn og gerði grein fyrir kröfu lögmanns KÍ um miskabætur fyrir hönd skjólstæðings síns.
Bæjarráð samþykkir að taka til varna í málinu.4. Fjárhagsáætlun 2013 og þriggja ára rammaáætlun
Umsögn hafnarstjórnar liggur fyrir.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu kynnti tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2013 og þriggja ára rammaáætlun með áorðnum breytingum milli fyrri og seinni umræðu.
Bæjarráð leggur til að útsvarshlutfall ársins 2013 verði 14,28% í stað 14,48% í ár.
Samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar við síðari umræðu.5. Álagningarreglur fasteignagjalda 2013
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu kynnti tillögu að álagningarreglum fasteignagjalda árið 2013.
Samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.6. Þjónustugjaldskrár 2013
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu kynnti tillögu að þjónustugjaldskrám Grindavíkurbæjar árið 2013.
Samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.7. Tekjuviðmið 2013 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi.
Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslu kynnti tillögu að tekjuviðmiðum 2013 vegna afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignaskatti og fráveitugjaldi fyrir árið 2013.
Samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Landgræðslan óskar eftir styrk til uppgræðslu 2013
Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til verkefnisins á árinu 2013 og vísar fjárhæðinni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2013.
9. Virkjun óskar eftir fjárstyrk fyrir starfsárið 2013.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og vísar til þess að Virkjun fær styrk gegnum Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
10. Stígamót óska eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2013
Bæjarráð samþykkir að veita 50.000 kr. styrk til Stígamóta á árinu 2013 og vísar fjárhæðinni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2013.
11. Stuðningur við Snorraverkefnið sumarið 2013.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
12. Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
13. Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla
Lokateikningar lagðar fram. Afgreiða þarf formlega heimild til fullnaðarhönnunar og gerðar útboðsgagna
Lokateikningar lagðar fram.
Bæjarráð felur skipulags- og umhverfissviði að ganga frá fullnaðarhönnun verkefnisins og útbúa útboðsgögn og leggja fyrir bæjarráð.14. Beiðni um umsögn frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs(Hlutverk Reykjavíkurflugvallar, heildarlög), 120. mál.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um frumvarp til laga um miðstöð innanlandsflugs(Hlutverk Reykjavíkurflugvallar, heildarlög), 120. mál.
Lagt fram.15. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar
Tillaga frá starfsmannafundi um sí-og endurmenntunarsjóð. Hefja umræðu
Bæjarstjóri fór yfir tillögur frá starfsmannadeginum 5. október sem snúa að stofnun sérstaks sí-og endurmenntunarsjóðs fyrir starfsmenn Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna hugmyndina fyrir forstöðumönnum og vinna málið áfram.16. Samningur við Pílufélag Grindavíkur
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17. Sjúkraflutningar í Grindavík 2013
Svar HSS og BS við ályktun bæjarstjórnar lagt fram.
Svar forstjóra HSS og slökkvistjóra BS við ályktun bæjarstjórnar varðandi sjúkraflutninga lagt fram, þar sem boðið er upp á viðræður um yfirtöku Grindavíkurbæjar á ábyrgð á sjúkraflutningum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við HSS.18. Svæðisskipulag Suðurnesja
Við afgreiðslu þarf að árétta að GP og RR séu fulltrúar Grindavíkurbæjar í samvinnunefndinni. Það hefur láðst að tilnefna fulltrúa formlega.
Tillaga að Svæðisskipulagi Suðurnesja lögð fram.
Bæjarráð tilnefnir Guðmund Pálsson og Róbert Ragnarsson til að sitja áfram í samvinnunefnd um svæðisskipulag á Suðurnesjum, en mun starfa áfram eftir að skipulagið tekur gildi.19. Tjaldsvæði - útboðsgögn
Drög að útboðsgögnum lögð fram.
Tillaga að útboðsgögnum lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gögnin og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.20. Vinna og virkni
Tillaga sambandsins og VMST um átak vegna þeirra sem munu detta út af atvinnuleysisskrá
Tillaga Sambands íslenskra sveitarfélaga og Vinnumálastofnunar um átak vegna þeirra sem munu falla út af atvinnuleysisskrá á næsta ári lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu. Forsendur fyrir því að Grindavíkurbær taki þátt í verkefninu er að stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs og ríkisstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu og að almenn þátttaka sveitarfélaga verði í verkefninu.21. Þjónustumiðstöð, útvíkkun á starfsemi
Kostnaðarmat og minnisblað.
Með vísan til minnisblaðs sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs dags. 8. október leggur bæjarstjóri til að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði heimilt að breyta starfslýsingu byggingafulltrúa og fela honum mannaforráð og ábyrgð á verkefnum þjónustumiðstöðvar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.