Bæjarráð Grindavíkur - 1684. fundur
- 18.06.2025
- Fundargerð
- Kl. 14:00 - 16:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1684
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiraðalmaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Kristín Ragnheiður Eiríksdóttirvaramaður
Starfsmenn
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Guðjón Bragasonlögfræðingur
Í upphafi fundar óskar formaður eftir að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum, sem 13. mál.
2506014 Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi - tímabundin ákvæði
Samþykkt samhljóða.
1. Nýting á Kvikunni sumarið 2025
Kristín María Birgisdóttir og Árdís Sigmundsdóttir hafa óskað eftir því að taka Kvikuna tímabundið á leigu.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Kristín María Birgisdóttir og Árdís Sigmundsdóttir hafa óskað eftir því að fá Kvikuna tímabundið til afnota í sumar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.2. Byggðaþróun og efling samfélags í Grindavík - Styrkur til SSS
Samband sveitarfélga á Suðurnesjum fékk styrk til að vinna að byggðaþróun og eflingu samfélags í Grindavík.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Samband sveitarfélga á Suðurnesjum fékk styrk til að vinna að byggðaþróun og eflingu samfélags í Grindavík.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.3. Sýning á verkum Gunnlaugs Scheving í Grindavík
Lagt fram minnisblað þar sem reifuð er sú hugmynd að Grindavíkurbær og Listasafn ASÍ standi fyrir sýningu á verkum Gunnlaugs Schevings í Grindavík í haust.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Lagt fram minnisblað þar sem reifuð er sú hugmynd að Grindavíkurbær og Listasafn ASÍ standi fyrir sýningu á verkum Gunnlaugs Schevings í Grindavík í haust.
Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs falið að vinna málið áfram.4. Farsældarráð barna
Lögð fram samstarfsyfirlýsing um um stofnun Farsældarráðs Suðurnesja, í samræmi við 5. gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Lögð fram samstarfsyfirlýsing um um stofnun Farsældarráðs Suðurnesja, í samræmi við 5. gr. laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Bæjarráð samþykkir samstarfsyfirlýsinguna og felur bæjarstjóra að undirrita hana fyrir hönd Grindavíkurbæjar.5. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Lögð fram endanlega tillaga um leiguverð vegna útleigu á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs (Teams), hafnarstjóri, skipulagsfulltrúi (Teams) og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Bæjarráð samþykkir að grunnur leigu verði meðalfermetraverð sambærilegra eigna á Reykjanesi en veittur verður mismunandi afsláttur miðað við aldur, stærð og ástand eigna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að auglýsa íbúðahúsnæði í eigu sveitarfélagsins til útleigu.6. Rekstrarkostnaður slökkviliðs Grindavíkur
Lögð fram gögn um samskipti við Almannavarnir vegna reksturs slökkviliðs Grindavíkur.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, skipulagsfulltrúi (Teams) og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lögð fram gögn um samskipti við Almannavarnir vegna reksturs slökkviliðs Grindavíkur.7. Aðgerðaáætlun 2 vegna sprunguverkefnis og afhendingaröryggis veitukerfa
Lögð fram lokaútgáfa af aðgerðaáætlun 2 ásamt sundurliðun framkvæmda.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, skipulagsfulltrúi (Teams) og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lögð fram lokaútgáfa af aðgerðaáætlun 2 ásamt sundurliðun framkvæmda.8. Hleðslustöðvar samningur ON
Samningur við ON lagður fram til samþykktar.
Kostnaðaráætlun liggur fyrir, sbr. excelskjaliðGestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri, skipulagsfulltrúi (Teams) og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Samningur við ON lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.9. Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Bláa lónið hreinsistöð
Fyrir hönd Eldvarpa ehf. óskar Eva Dís Þórðardóttir eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu hreinsistöðvar hjá Bláa lóninu, Fyrir liggur afstaða byggingarfulltrúa um að framkvæmdin sé byggingarleyfisskyld en afstöðu bæjarráðs vantar um hvort framkvæmd samræmist skipulagi.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Fyrir hönd Eldvarpa ehf. óskar Eva Dís Þórðardóttir eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu hreinsistöðvar hjá Bláa lóninu. Fyrir liggur afstaða byggingarfulltrúa um að framkvæmdin sé byggingarleyfisskyld en afstöðu bæjarráðs vantar um hvort framkvæmd samræmist skipulagi.
Bæjarráð heimilar byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi enda er framkvæmdin í samræmi við skipulag svæðisins.10. Einland 129172 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málinu var vísað til bæjarráðs þar sem Einland er í Þórkötlustaðarhverfi og í gildi er verndaráætlun. Sótt er um byggingarleyfi til að byggja fjárhús/vélageymslu á N-V horni lóðarinnar Einland L129172. Erindinu fylgja aðaluppdrættir frá apparatinu dags. 21.5.2025.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Málinu var vísað til bæjarráðs þar sem Einland er í Þórkötlustaðarhverfi og í gildi er verndaráætlun. Sótt er um byggingarleyfi til að byggja fjárhús/vélageymslu á N-V horni lóðarinnar Einland L129172. Erindinu fylgja aðaluppdrættir frá apparatinu dags. 21.5.2025.
Bæjarráð samþykkir byggingaáformin.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.11. Fyrirspurn til skipulags- og umhverfissviðs - Víkurhóp 51-59
Beiðni um afstöðu bæjaryfirvalda vegna fyrirhugaðrar nýtingar fasteigna að Víkurhópi 51-59 til skammtímaleigu. Meðfylgjandi er skjal dags.27.5.2025
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Lögð fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar nýtingar fasteigna að Víkurhópi 51-59 til skammtímaleigu.
Bæjarráð felur lögfræðingi Grindavíkurbæjar og skipulagsfulltrúa að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.12. Fyrirspurn til skipulags- og umhverfissviðs - súkkulaðiverksmiðja
Fyrirspurn hefur borist um mögulegan rekstur súkkulaðiverksmiðju á Hafnargötu.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Lögð fram fyrirspurn um mögulegan rekstur súkkulaðiverksmiðju á Hafnargötu.
Bæjarráð telur að áformin séu í samræmi við skipulag svæðisins.13. Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi - tímabundin ákvæði
Skipulagssvið óskar eftir að bæjarráð taki afstöðu til tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem þykir brýn og hvort hún sé óveruleg eða ekki. Breytingin er tvíþætt; bætt er við tímabundnum ákvæðum m.a. um eftirlits- og rannsóknarstarfssemi og settur er inn nýr kafli um tímabundin ákvæði til að gefa út framkvæmda- og byggingarleyfi án skipulagsbreytinga vegna afleiðinga hamfara.
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi (Teams).
Lögð fram tillaga að óverulegri aðalskipulagsbreytingu varðandi breytingar á lið 2.2.10 Stakar framkvæmdir og tímabundin ákvæði, að við bætist:
- Tímabundnar framkvæmdir, eftirlits- og rannsóknarstarfssemi s.s. tilraunaborholur, rannsóknamöstur (allt að 80 m), skoðun jarðefna, tímabundnar vinnubúðir, aðstaða verktaka vegna framkvæmda o.fl.
- Umfangsmeiri starfsemi s.s. vinnubúðir, vinnuplön, aðstaða verktaka eða önnur sambærileg aðstaða fyrir fleiri en 20 manns og/eða umfang meira en 0,1 ha skal deiliskipulagt en krafa um deiliskipulag skal metin fyrir aðrar framkvæmdir hverju sinni. Ekki er heimilt að hafa slíka starfsemi lengur en 8 ár.
Jafnframt er lögð fram tillaga að breytingu til að gefa út framkvæmda- og byggingarleyfi án skipulagsbreytinga vegna náttúruhamfara:
Tímabundið ákvæði vegna náttúruhamfara: Átt er við aðgerðir til að verja innviði (gang- og akbrautir, stíga, bílastæði, veitur og lagnir), og aðlaga, breyta legu eða staðsetningu innviða vegna afleiðinga náttúruhamfara og aðgerðir sem Almannavarnir og aðrir aðilar hafa gripið til, t.a.m. er Vegagerðinni heimilt að lagfæra vegi sem lagðir hafa verið í hamförum enda um almannaöryggi að ræða.
Ákvæðið á einnig við um stakar framkvæmdir til að verja ofangreinda innviði og mannvirki í Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir ofangreindar breytingar með vísan til 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga en vísar öðrum þáttum tillögunnar til innviðanefndar til frekari umfjöllunar.14. Endurskoðun á grunni álagningar á fasteignir
Borist hefur erindi frá Félagi atvinnurekenda þar sem lagt er til að sveitarfélögin skoði að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði.
Lagt fram erindi frá Félagi atvinnurekenda þar sem lagt er til að sveitarfélögin skoði að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði.
15. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 47. aðalfundar Kölku dags. 10.04.2025 er lögð fram til kynningar.
Fundargerð 47. aðalfundar Kölku dags. 10.04.2025 er lögð fram til kynningar.