Bæjarráð Grindavíkur - 1477. fundur
- 17.04.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1477
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jóna Rut Jónsdóttirvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Félagsleg heimaþjónusta: Breyting á reglum
Bætt inn ákvæði um heimsendingu matar. Jafnframt óskað eftir viðbótar gjaldalið i þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Félagsmálanefnd leggur til að færður verði inn nýr töluliður nr. 7 undir 5. gr. reglna Grindavíkurbæjar um félagslega heimaþjónustu svohljóðandi:
7. Heimsending matar
Þeir sem geta ekki eldað sjálfir um skemmri eða lengri tíma geta sótt um að fá heimsendan mat á opnunartíma mötuneytis í Víðihlíð.
Jafnframt leggur félagsmálanefnd til að tekinn verði inn nýr gjaldaliður í þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar:
Heimsendur matur til eldri borgara 1.150 kr.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu félagsmálanefndar en leggur jafnframt til að álagið verði 200 kr. og skammturinn kosti því 1.200 kr.2. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Fyrir liggur kauptilboð í fasteignina að Gerðavöllum 17.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mættu á fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta bæjarstjórnarfund.3. Ársuppgjör 2017: Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur 2017 lagður fram ásamt skýringum forstöðumanna á helstu frávikum rekstrareininga.$line$Vísa þarf ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Ársreikningur 2017 lagður fram ásamt skýringum forstöðumanna á helstu frávikum rekstrareininga.
Bæjarráð vísar ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.4. Lánasjóður sveitarfélaga: Arðgreiðsla 2018
Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna arðgreiðslu á árinu 2018 að fjárhæð 4.225.320 kr.
Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna arðgreiðslu á árinu 2018 að fjárhæð 4.225.320 kr.
5. Lionsklúbbur Grindavíkur: Ósk um styrk
Styrkurinn jafngildir leigugjaldi vegna Kútmagakvölds í íþróttahúsinu.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Lionsklúbb Grindavíkur um 100.000 kr. vegna fjáröflunarkvölds Lionsklúbbsins í íþróttahúsinu.
6. Steinbogi-kvikmyndagerð: Ósk um styrk
Óskað er eftir styrk vegna gerðar heimildarmyndar um flugslys í Fagradalsfjalli.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en útgreiðsla 50.000 kr. styrks yrði ekki fyrr en gerð heimildarmyndarinnar er lokið.