Bæjarráð Grindavíkur - 1396. fundur
- 17.11.2015
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1396
- Ritari: Róbert Ragnarsson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Róbert Ragnarssonbæjarstjóri
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Dagbjartur Willardssonvaramaður
- Ágústa Inga Sigurgeirsdóttirvaramaður
1. Hópsnes: Úrgangur á lóð Grindavíkurbæjar
Ármann tekur upplýsir
Ármann Halldórsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs kynnti stöðu málsins og viðbrögð lóðarhafa. Unnið hefur verið að hreinsun lóðarinnar og fram er komin tillaga að útfærslu framtíðarlausnar.
2. Bæjarskrifstofur Víkurbraut 62: Stækkun og breytingar
Ármann og Jón kynna
Ármann Halldórsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynntu niðurstöður útboðs í stækkun og breytingar á bæjarskrifstofum.
Tvö tilboð bárust. Annað tilboðið reyndist ógilt þar sem gögn vantaði. Hitt tilboðið er 107% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar öllum tilboðum í samræmi við grein 0.4.6.3. Fasteignir bæjarsins: Nýtt húsnæði fyrir bókasafn og tónlistarskóla - framhaldsmál
samantekt kostnaðar lögð fram
Ármann Halldórsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynntu stöðu á kostnaði við nýtt húsnæði bókasafns og tónlistarskóla.
4. Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Stöðuyfirlit kostnaðar lagt fram.
Ármann Halldórsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynntu stöðu á kostnaði við nýtt íþróttamannvirki.
5. Grindavíkurhöfn: Fjárhagsáætlun 2016
Bókun hafnarstjórnar lögð fram.
Afgreiðsla hafnarstjórnar á tillögu að fjárhagsáætlun 2016 lögð fram, þar sem fram kemur að hafnarstjórn áréttar að fjárhæðir og tímaáætlanir til uppbyggingar á Miðgarði verði í samræmi við tillögur Vegagerðarinnar og hafnarstjórnar.
6. Fasteignagjöld 2016
Bæjarráð afgreiðir fasteignagjöld til bæjarstjórnar
Jón Þórisson sviðsstjóri kynnti tillögu að álagningu fasteignaskatta og gjalda árið 2016.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.7. Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega á fasteignagjöldum : Tekjuviðmið 2016
Jón Þórisson sviðsstjóri kynnti tillögu að afsláttarreglum fasteignaskatta til elli- og örorkulífeyrisþega árið 2016.
Bæjarráð leggur til að tekjuviðmiðin hækki um 5% og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2016
Jón Þórisson sviðsstjóri kynnti tillögu þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2016.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.9. Fjárhagsáætlun 2016: Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars 2016
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á árinu 2016, þ.e. 13,99%
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt á árinu 2016, þ.e. 13,99%
10. Fjárhagsáætlun SSS 2016: sameiginlega rekin verkefni
Tillaga stjórnar SSS að fjárhagsáætlun sameiginlega rekinna stofnanna árið 2016 lögð fram.
Hlutur Grindavíkurbæjar er 48.244.000 kr.,eða um 13,9% af kostnaði í samræmi við íbúafjölda.11. Íþróttamannvirki: Beiðni um aukið stöðugildi í fjárhagsáætlun 2016
Beiðni forstöðumanns íþróttamannvirkja um 38% aukningu á stöðugildi í fjárhagsáætlun 2016 lögð fram.
Bæjarráð hafnar tillögunni þar sem ekki er komin nægileg reynsla á starfsemi í nýju mannvirki.12. Leikskólinn Laut: Beiðni um aukið stöðugildi í fjárhagsáætlun 2016
Beiðni skólastjóra Leikskólans Laut um 50% stöðugildi, framlengingu á auknu hlutfalli stjórnunar hjá aðstoðarleikskólastjóra til júní 2016 og heimild til greiðslu TV eininga í fjárhagsáætlun 2016 lögð fram. Tillagan var rædd á fundi fræðslunefndar 16. september.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og leggur til að hún verði færð í fjárhagsáætlun ársins 2016.13. Fjárhagsáætlun 2016-2019: Grindavíkurbær og stofnanir
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2016 og rammaáætlun 2017-2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
14. Fasteignamat: Tillaga um endurmat eigna vegna breyttrar nýtingar
Framhald frá fundi 1392.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri fór yfir minnisblað um endurmat eigna vegna breyttrar nýtingar og áhrif mismunandi útfærslna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilkynna aðilum sem bjóða upp á heimagistingu, breytta skráningu á eignum þeirra frá og með árinu 2016.15. Kvikan: breytt nýting eða sala
Verðmat fasteignasala lagt fram. Tekin ákvörðun um að auglýsa
Verðmat fasteignasala lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að auglýsa húsnæði Kvikunnar að Hafnargötu 12a til sölu.16. Sjóvá: Ágóðahlutdeild Grindavíkurbæjar vegna ársins 2014
Lagt fram yfirlit um ágóðahlutdeild Grindavíkurbæjar vegna lítilla tryggingatjóna á árinu 2014. Fjárhæðin nemur 387.024 kr.
Jón Þórisson sviðsstjóri kynnti yfirlit um ágóðahlutdeild Grindavíkurbæjar vegna lítilla tryggingatjóna á árinu 2014. Fjárhæðin nemur 387.024 kr.
17. Slökkvilið Grindavíkur: Dælubíll
Slökkvistjóri óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 675.000 kr. til kaupa á búnaði á dælubíl.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 675.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.18. Snorrasjóður: Stuðningur við Snorraverkefnið 2016
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
19. Ungmennaráð: Breyting á samþykktum
Frestað frá síðasta fundi
Framhald frá fundi 1395.
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti minnisblað með samanburði á verkefnum og fyrirkomulagi ungmennaráða víða um land.
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.20. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar: breytingatillaga vegna heilsustyrkja
frestað frá síðasta fundi
Framhald frá fundi 1395.
Kristín María og Ásrún viku af fundi við afgreiðslu málsins, í ljósi þess að þær eru starfsmenn Grindavíkurbæjar.
Dagbjartur Willardsson, varamaður Kristínar Maríu, og Ágústa Sigurgeirsdóttir, varamaður Ásrúnar, tóku þeirra sæti.
Bæjarstjóri leggur fram breytingatillögu við kafla um heilsueflingu í Starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Markmið breytinganna er að koma betur til móts við mismunandi heilsueflingu starfsmanna. Jafnframt er gerð tillaga um nýjan kafla um samgöngusamninga.
Tillagan er samþykkt með atkvæðum B og G lista. Fulltrúi D lista er á móti.21. Beiðni um umsögn: umsókn Halpal ehf. um rekstrarleyfi í flokki II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina, en vísar að öðru leyti til umsagna byggingafulltrúa og eldvarnareftirlits.